Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 22
ERLEND SAMSKIPTI
Samskipti við grænlenska sveitar-
stjórnarmenn
Þórir Sveinsson, jjármálastjóri Isajjarðarbœjar ogfor~maður
Grœnlandsnefndar sambandsins
Um allmörg ár hafa sveitarstjóm-
armenn á Islandi og Grænlandi átt
með sér samstarf í tengslum við
vinabæjasamskipti sveitarfélaga.
Þau samskipti hafa aðallega byggst
á heimsóknum kjörinna fulltrúa og
stjómenda sveitarfélaganna, starfs-
mannaskiptum og heimsóknum
íþróttafólks og listamanna svo og
þemaverkefnum nemenda.
Á Grænlandi eru 18 sveitarfélög
og eru tíu íslensk sveitarfélög í
formlegum vinabæjatengslum við
þarlend sveitarfélög en þau eru
Reykjavík, Seltjamames, Kópavog-
ur, Hafnarfjörður, Akranes, Isa-
fjörður, Akureyri, Fjarðabyggð,
Dalvíkurbyggð og Árborg.
Áhugi á Grænlandi á tengslum
við Island hefur vaxið mjög hin síð-
ari ár og hafa grænlenskir sveitar-
stjórnarmenn sýnt málinu mikinn
áhuga og vilja með öllum ráðum
efla tengsl milli þessara tveggja
grannþjóða.
Samstarfsyfirlýsing sveitar-
félagasambandanna
Samtök íslensku og grænlensku
sveitarfélaganna hafa um nokkurt
skeið tekið á móti gestum viðkom-
andi landa og sent fúlltnia á ársþing
sambandanna. Edward Möller, for-
maður KANUKOKA (Sambands
grænlenskra sveitarfélaga), ásamt
Frank Hedegaard Jörgensen, bæjar-
ritara Nanortalik, heimsóttu ísland í
apríl 1996 til viðræðna við fúlltrúa
sambandsins um hugsanlegt sam-
starf á milli landanna. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, endurgalt
heimsóknina með því að sitja árs-
þing grænlenska sveitarstjómarsam-
bandsins sem haldið var i Ilulissat í
maí það sama ár.
Á fimmtíu ára afmælishátíð Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga í júní
1996 þar sem gestir frá grænlenskra
sveitarfélagasambandinu voru við-
staddir var í kjölfar viðræðna full-
trúa sveitarfélagasambandanna
ákveðið að taka upp nánari sam-
vinnu milli sveitarstjórnarmanna
landanna. Árið áður höfðu verið
samin drög að samstarfssáttmála
sem hlaut staðfestingu beggja sam-
bandanna haustið 1996 og var und-
irritaður21. ágúst 1996.
Samstarfssáttmálinn er i formi
viljayfirlýsingar sem felur m.a. í sér
að aðilar auki samstarfið með því að
stuðla að nánara samstarfi milli
sveitarfélaga á Grænlandi og á ís-
landi, milli kjörinna fúlltrúa í sveit-
arstjómum og starfsmanna sveitar-
félaga, aðstoði við að koma á vina-
bæjatengslum, komi á fyrirlestrum
og námskeiðum, einkum á sviði
stjórnunar og félagsmála fyrir
starfsfólk sveitarfélaga og kjörna
fulltrúa, stuðli að auknu samstarfi í
menningarmálum sérstaklega á
sviði skóla- og íþróttamála, vinni að
eflingu ferðamála milli landanna og
að því að betri samgöngumöguleik-
ar milli landanna leiði til aukinnar
verslunar og viðskipta þeirra á milli.
Grænlandsnefnd
A fundi stjórnar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 25. september
1998 var skipuð nefnd til að vinna
að ffamgangi samstarfsyfirlýsingar-
innar frá árinu 1996 milli sam-
bandsins og grænlenska sveitarfé-
lagasambandsins. Grænlandsnefnd-
ina skipa Þórir Sveinsson, fjánnála-
stjóri í Isafjarðarbæ, formaður, Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, og
Unnar Stefánsson, ritstjóri Sveitar-
stjómannála.
Þá þegar um haustið var hafist
handa við að efla tengsl milli land-
anna með því að ræða mögulegar
leiðir til að vinna að markmiðum
samstarfsyfirlýsingarinnar.
Nefndin hefur á undangengnum
tveimur ámm staðið að og skipulagt
inargvíslegar ráðstefnur, fundi og
heimsóknir til íslenskra fyrirtækja,
stofnana og sveitarfélaga með þátt-
töku grænlenskra gesta.
Heimsóknir 1999 og 2000
A árinu 1999 tók nefndin á móti
tveimur hópum grænlenskra sveitar-
stjómarmanna.
í byijun júní á því ári komu fjórir
fulltrúar fræðslunefndar græn-
lenskra sveitarfélaga undir forystu
Jakob Janussen, þáverandi fram-
kvæmdastjóra KANUKOKA. Full-
trúamir voru frá Nuuk, Nanortalik
og Tasiilaq. Tilgangur fararinnar
var að kynnast námskeiðahaldi á ís-
landi fyrir starfsmenn sveitarfélaga
og að ræða samstarf á grundvelli
gildandi samstarfsyfírlýsingar sveit-
arfélagasambandanna.
Gestunum var kynnt starfsemi fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar,
námskeiðahald, starfsmannaáætlun
og starfsmannastefna borgarinnar.
Ennfremur námskeið á vegum ým-
issa fyrirtækja og stofúana, s.s. Nýs-
is ehf., Endurmenntunarstofnunar
Háskóla Islands, Námsflokka
Reykjavíkur, Reksturs og ráðgjafar
84