Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Side 24
ERLEND SAMSKIPTI
Við Gullfoss. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Jens-Oluf Lundgren, fjármálastjóri
Uummannaq, Þórir Sveinsson, Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri Biskupstungna-
hrepps, James Bianco, bæjarritari íTasiilaq, Sveinn A. Sæland, oddviti Biskupstungna-
hrepps, Ole Molgárd-Motzfeld, bæjarritari í Narsaq, Sara Mathiassen, ráðgjafi á skrif-
stofu KANUKOKA, og Martha Labansen, framkvæmdastjóri KANUKOKA. Myndirnar
með greininni tók Unnar Stefánsson.
virkin. Laufey Jóhannsdóttir, for-
maður bæjarráðs Garðabæjar,
skýrði ffá rekstri sveitarfélagsins og
ýmsum samstarfsverkefnum sveitar-
félaganna á höfuðborgarsvæðinu
auk þess sem hún fjallaði um ferða-
þjónustu almennt og opnaði um-
ræðu um möguleika á auknum
ferðalögum milli íslands og Græn-
lands, en hún er framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofúnnar Plúsferða ehf.
í Vogum á Vatnsleysuströnd tóku
á rnóti hópnum Sigurður Jónsson,
formaður Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS), Þóra Braga-
dóttir, oddviti Vatnsleysustrandar-
hrepps, og Sigurður Kristinsson,
hreppsnefndarmaður þar.
A fundi með gestunum kynntu
þau rekstur sveitarfélagsins og aðild
þess að margvíslegum samstarfs-
verkefnum sveitarfélaga með þátt-
töku hreppsins í starfi SSS. Skoðuð
var íþróttamiðstöðin þar sem fúnd-
urinn var haldinn og Snæbjörn
Reynisson, skólastjóri Stóru-Voga-
skóla, kynnti skólastarfið urn leið og
gengið var um vistlegt húsnæði
skólans og skoðað bókasafú, tölvu-
stofa og skólaeldhús og borið saman
skólahald í grunnskólum á Islandi
og Grænlandi. Loks var ekið um
Vogana, hafnarsvæðið skoðað, at-
vinnuhættir kynntir og litið inn í lít-
ið fyrirtæki, Beiti, þar sem fram-
kvæmdastjórinn, Hafsteinn Olafs-
son, sýndi línuspil, beitingarvélar,
færavindur og fleiri tæki sem fyrir-
tækið framleiðir.
í Hafnarfirði var skoðað hið nýja
íþróttahús Hauka. Síðan tók Níels
Indriðason, yfirverkfræðingur hjá
VST hf., á rnóti gestunum í verk-
fræðistofunni en hún annaðist alla
verkffæðihönnun íþróttahússins.
Níels kynnti starfsemi verkfræði-
stofunnar. Arkitektar hússins voru
Arkitektar Skógarhlíð ehf. og kom
Helgi Már Halldórsson, á fundinn
og lýsti byggingunni.
A síðasta degi Islandsheimsókn-
arinnar var Flugmálastjórn á
Reykjavíkurflugvelli heimsótt þar
sem Haukur Hauksson aðstoðar-
flugmálastjóri fjallaði í erindi um
uppbyggingu og rekstur flugvalla á
íslandi. Sérstaklega var rætt um
skilyrði fyrir flugi við erfiðar að-
stæður og möguleika á gerð nýrra
flugvalla á Grænlandi í samvinnu
við íslendinga.
Dagana 13. til 16. október skipu-
lagði Grænlandsnefndin ráðstefnu
og kynnisferð fimm sveitarstjómar-
manna sem hingað komu á vegum
KANUKOKA undir forystu Martha
Labansen, framkvæmdastjóra sam-
bandsins. Fulltrúarnir voru frá
Nuuk, Narsaq, Tasiilaq og
Uummannaq. Tilgangur fararinnar
var að kynnast rekstri íslenskra
sveitarfélaga, ffæðast um samvinnu
og samstarfsverkefni sveitarfélaga
og starf Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
Biskupstungnahreppur var heim-
sóttur þar sem Sveinn A. Sæland
oddviti og Ragnar Sær Ragnarsson
sveitarstjóri sýndu gestunum helstu
stofnanir sveitarfélagsins, s.s.
grunnskólann í Reykholti, nýbyggt
íþróttahús úr límtré, sundlaug og fé-
lagsheimilið Aratungu, og skýrðu
frá rekstri hreppsins. Borin voru
saman verkefúi sveitarfélaga í stijál-
býli á íslandi og á Grænlandi.
Kynnt voru samstarfsverkefni
hreppa í uppsveitum Árnessýslu,
s.s. að ferðamálum, og komið að
helstu ferðamannastöðum í hreppn-
um, Geysi og Gullfossi.
Gestgjafarnir sögðu frá þeim
breytingum sem víða hafa orðið á
atvinnuháttum til sveita og sýndu
ræktun blóma með raflýsingu.
Á ráðstefnu sem haldin var 15.
október að Háaleitisbraut 11 voru
erindi flutt um stjómsýslu íslenskra
sveitarfélaga, um hlutverk þeirra í
samfélaginu, efnahagsumhverfi og
fjármál. Ennfremur um samskipti
sveitarfélaga og ríkisins og um
launakerfi og kjarasamninga í ís-
lenskum sveitarfélögum og allt bor-
ið saman við aðstæður í Grænlandi.
Á fundi með fulltrúum Græn-
landsnefndarinnar, formanni sam-
bandsins og gestunum var fjallað al-
mennt um framhald samskipta ís-
lenskra og grænlenskra sveitarfé-
laga, um samstarf sveitarstjórnar-
sambandanna og möguleika á frek-
ari samvinnu á fleiri sviðum.
86