Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Blaðsíða 34
MENNINGARMÁL
ríkið 10 árslaun sambœrileg og listamannalaun en
sveitarfélög leggi til íbúðar- og vinnuaðstöðu. Starfs-
launin verði minnst veitt til 6 mánaða en áhersla lögð á
eins árs launastyrki. Stjórn sjóðsins verði skipuð fulltrú-
um menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Bandalags íslenskra listamanna.
4. Fjölgun starfa
Menningarfulltrúar og menningarmiðstöðvar
Menningarfúlltrúar sveitarfélaga og starfsmenn menn-
ingarmiðstöðva og fræðasetra hafa mikilvægu hlutverki
að gegna sem bakhjarl menningarstarfs í skipulagningu,
kynningu og íjármögnun menningarverkefna. Þar sem
stofnað hefur verið til starfa menningarfulltrúa eða
starfsfólki menningarmiðstöðva falin verkefni af þessu
tagi, hefúr slík skipan þótt takast vel.
Lagt er til að sveitarfélög ráði menningarfulltrúa til
starfa sem bakhjarl menningarstarfs í viðkomandi sveit-
arfélagi, eða þar sem betur hentar að sveitarfélög sam-
einist um slíkan starfsmann.
Lagt er til að i samningum ríkis og sveitarfélaga verði
gert ráð fyrir starfsemi menningarmiðstöðva og þjón-
ustu þeirra.
Bæjarlistamenn
Með starfi bæjarlistamanns gefst tækifæri til að viður-
kenna framlag listamanna í heimabyggð til menningar-
lífsins og jafnframt að veita listafólki hvatningu og tæki-
færi til að keppa á víðari vettvangi, s.s. um launastyrki
listamanna.
Hvatt er til að fleiri sveitarfélög taki upp stöður bæj-
arlistamanna sem viðurkenningu fyrir störf á sviði list-
greina.
Listmenntun
Efling menningarstarfs og auknar kröfur um gæði
menningarviðburða kalla á meiri listmenntun. Fram-
kvæmd aðalnámsskrár í listgreinum leiðir af sér að
fjölga þarf listgreinakennurum. Á fúndum starfshópsins
komu fram hugmyndir um að listaskólar, s.s. tónlistar-
skólar, dansskólar og myndlistarskólar, verði efldir.
Lagt er til að í þjónustusamningi við Listaháskóla ís-
lands verði sérstaklega gert ráð fyrir fjárveitingu og
skyldum til að veita þjónustu við landsbyggóina á sviði
listmenntunar, listfrœða og kennaramenntunar.
Hvatt er til að sveitarfélög auki kennslu í listgreinum
innan grunnskólans og styðji við listaskóla og listnám-
skeið.
Því er beint til tónlistarskóla og sveitarfélaga að
kanna hvort kennsla íJleiri listgreinum geti átt heima í
útvíkkaðri starfsemi tónlistarskóla.
Byggðasöfn og héraðsskjalasöfn
í lögum um Þjóðminjasafn íslands er kveðið á um
launastyrki til byggða- og minjasafna sem uppfylli
ákveðin skilyrði. Gera verður ráð fyrir að þeim söfnum
fjölgi á næstu árum. Launastyrkirnir eru grundvöllur
langtímastefnumörkunar fyrir söfnin og því forgangs-
atriði að auka fjánnagn til þessa liðar. Víða kom ffam að
það er mjög aðkallandi að gera átak í vemdun menning-
arminja, kynningu þeirra og aðgengi almennings að
þeim.
Þjóðskjalasafn Islands hefúr nú ákveðna fjárveitingu á
fjárlögum til að styrkja héraðsskjalasöfn en þörf er á að
kveða nánar á um þessar fjárveitingar. Þar kemur helst til
greina að taka upp svipað fyrirkomulag og launastyrki
Þjóðminjasafns til minjasafna.
Lagt er til að fjárveiting Þjóðminjasafns til launa-
styrkja verði aukin til aó uppjylla lagaskyldur og vax-
andi þörf.
Þjóðskjalasafn fái sams konar Jjárveitingu til launa-
styrkja til þess að tiyggja langtímafjármögnun starfs að
uppbyggingu skjalavörslunnar í landinu.
Menningartengd ferðaþjónusta
Efling safna og annarrar menningarstarfsemi á lands-
byggðinni með áherslu á skráningu menningarminja og
rannsóknir á sögu hvers byggðarlags er forsenda upp-
byggingar í menningartengdri ferðaþjónustu. Ljóst er að
ferðamenn gera sér væntingar um að kynnast sögu og
menningu þjóðarinnar og einstakra byggðarlaga nánar en
raunin verður.
Lagt er til að veittir verði sérstakir verkefnastyrkir til
að gera söguna aðgengilegri fyrir heimamenn og ferða-
fólk.
Ráðgjöf um menningararf og kynningu hans standi til
boða þeim aðilum sem hyggja á uppbyggingu menning-
artengdrarferðaþjónustu.
Hvatt er til að söfn og frœðasetur sem vinna að kymn-
ingu á sérstöðu í menningu og náttúrufari landsins og
eintakra byggðarlaga hljóti sérstakan stuðning.
Lokaorð
í framhaldi af áliti starfshópsins og ráðstefnunni á
Seyðisfirði 14. og 15. maí undir fyrirsögninni Menning-
arlandið - stefnumótun í menningarmálum á lands-
byggðinni vil ég árétta mikilvægi þess að sem flest sveit-
arfélög móti stefnu og samþykki langtímaáætlanir í
menningarmálum. Það er löngu tímabært að litið verði á
menningarmál sem eitt af mikilvægustu verkefnum
hvers byggðarlags.
96