Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 36
MENNINGARMAL
Frá undirritun fyrsta bakhjarlasamkomulagsins sem var gert við Landsvirkjun. Á mynd-
inni eru, talið frá vinstri, Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúl Landsvirkjunar, Frið-
rik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður stjórn-
ar Landsvirkjunar, Helgi Gíslason, formaður stjórnar Gunnarsstofnunar, Skúli Björn
Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, og Sigríður Sigmundsdóttir, fulltrúi At-
vinnuþróunarfélags Austuriands í stjórninni. Myndina tók Agnes Vogler.
hennar sé í raun Austurland allt.
Greinarhöfundur tók við starfi
forstöðumanns Gunnarsstofnunar 1.
október 1999 og má segja að fyrstu
mánuðir í starfi hafi farið í mótun
stefnu fyrir stofnunina ásamt hug-
myndavinnu og skipulag vegna
framtíðarstarfs á Skriðuklaustri.
Stjóm stofnunarinnar tók þá ákvörð-
un að uppbygging Skriðuklausturs
sem menningar-, sögu- og ffæðaset-
urs yrði að njóta forgangs fram yfir
aðra þætti í starfi stofnunarinnar.
Því var allur kraftur settur í að koma
af stað endurbótum á húsakosti að
Skriðuklaustri svo að þar mætti
opna fyrir almenningi eigi síðar en í
júní 2000.
Endurbótasjóður menningarbygg-
inga féllst á að leggja fé i endurbæt-
urnar sem skipti sköpum fyrir
hversu miklu tókst að hrinda í verk.
Ljúka tókst á tilsettum tíma um-
fangsmiklum endurbótum á húsi
skáldsins og gerðu húsinu kleift að
sinna sínu nýja hlutverki. Segja má
að lokið hafi verið við allar stærri
endurbætur innandyra ásamt því að
koma vatns- og ffáveitumálum í rétt
horf. Því til viðbótar var húsið
Skriða síðan gert upp. Næsta skref í
endurbótum er að taka Gunnarshús í
gegn að utan sem brýn þörf er á.
Vonandi tekst að afla fjár til þess að
hefja það verk sem fyrst.
Fjölsóttur staður
Frá 20. júní til 10. september á
síðasta ári var Skriðuklaustur opið
almenningi alla daga nema mánu-
daga. Gestir fengu leiðsögn um hús-
ið og gátu skoðað sýningar af ýms-
um toga auk þess að kaupa sér veit-
ingar. Óhætt er að segja að strax á
fyrsta sumri hafi staðurinn orðið
fjölsóttur af ferðamönnum því að
ríflega 3.500 gestir lögðu leið sína
þangað á þessum tíma. Voru það
nær eingöngu Islendingar, sem sýnir
að áhugi fyrir menningarsetri af
þessum toga er svo sannarlega fyrir
hendi. Ætlunin er þó að hafa á
boðstólum sýningar og viðburði
sem ekki síður höfða til erlendra
ferðamanna yfir sumarið.
Starfsemin að Skriðuklaustri er
með nokkuð öðru sniði yfir vetrar-
tímann. Þennan fyrsta vetur hefur
verið bryddað upp á ýmsu. Má þar
nefna kvöldvökur með blandaðri
dagskrá, Grýlugleði, listsýningar,
fyrirlestra, tónleika og lomberspila-
mennsku. Auk þess tók stofnunin
þátt i rithöfundarallíi i desember-
byijun og bókavöku í Safhahúsinu á
Egilsstöðum. Ánægjulegt er ffá því
að segja að aðsókn á viðburði að
Skriðuklaustri sl. vetur var með ein-
dæmum góð og hafa íbúar víða úr
fjórðungnum sótt staðinn heim.
Lítil fundarstofa í fyrrum kolageymslu.
98