Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Qupperneq 43
FRÆÐSLUMÁL
og önnur verkefni á sviði sí-
menntunar sem verkefnisstjóm-
in telur æskilegt að taka upp.“
Verkefnisstjórnin hefur ákveðið
að í ár verði vikan 3.-9. september
vika símenntunar. Þema hennar
verði Island og umheimurinn og
undirtitill tungumálakunnátta og
tölvulæsi.
Sambandið á fulltrúa í verkefnis-
stjóminni. Það hefur verið Valgerð-
ar H. Bjarnadóttur, sem nú hefur
beðist lausnar frá störfum í stjóm-
inni eftir að hún réðst sem forstöðu-
rnaður Jafnréttisstofú.
Stjóm sambandsins hefúr tilnefnt
í verkefnisstjómina í stað Valgerðar
Ingu Sigurðardóttur, bæjarfúlltrúa á
Akranesi og forstöðumann Símennt-
unarstofnunar Vesturlands í Borgar-
nesi. Aðrir í verkefnisstjóminni em
Kristján Bragason, framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasambands íslands,
tilnefndur af Alþýðusambandi ís-
lands, Davíð Stefánsson stjómsýslu-
fræðingur, tilnefndur af Samtökum
atvinnulífsins, Elna Katrin Jónsdótt-
ir, formaður Félags framhaldsskóla-
kennara, tilnefnd af Hinu íslenska
kennarafélagi, Halldór Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Tölvu- og verk-
fræðiþjónustunnar, Gissur Péturs-
son, forstöðumaður Vinnumálastof-
unnar, tilnefndur af félagsmálaráðu-
neytinu, og Þórir Hrafnsson, starfs-
maður Háskólans í Reykjavík, sem
er formaður verkefnisstjómarinnar.
Karl Kristjánsson, deildarsérfræð-
ingur í menntamálaráðuneytinu,
starfar með nefndinni.
Ferðir skólafólks
með varðskipunum
Frá árinu 1994 hefúr Landhelgis-
gæslan í samstarfi við sambandið
staðið að starfskynningu nemenda í
síðasta bekk grunnskólans. Hefur
nemendum verið boðið að taka þátt
í ferðum varðskipanna yfir sumarið,
þ.e. í skólahléinu. Mismargar ferðir
eru í boði frá sumri til sumars en
oftast hafa milli 40 og 50 unglingar
tekið þátt í þessu verkefni ár hvert.
Til þessa hefúr hálft fimmta hundr-
að nemenda tekið þátt í þessum
námsferðum. Á komandi sumri
standa til boða níu ferðir og munu
því 54 unglingar taka þátt í störfúm
Landhelgisgæslunnar í 14 til 18
daga í sumar. Mun þá láta nærri að
Síðumúla 13
Sími: 588 5108 & 897 3608 • Fax: 588 5109
Ýmsir litir
AC 726224TE - AC 726221PE
kr. 38.651.- Ertil í perulit og tekklit.
AC 75535 - kr. 27.456,-
Einnig til með perulitaðri borðplötu og bláum fótum.
AC 73701PE
Fjölbreytt úrval tölvuborda frá Spáni
Skrifstofuhúsgögn
- Samstæða í horn kr. 50.556.- (P.l. Personal 700)
Er til í perulit og tekklit.
AC 75645 - kr. 35.379.- Er til í gráum lit.
1 05