Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Qupperneq 44
FRÆÐSLUMÁL
loknu komandi sumri að um 500
nemendur hafi tekið þátt í þessum
náms- og kynnisferðum á varðskip-
unum.
í hverri ferð eru 6 unglingar.
Hópnum er skipt niður á vaktir, þrír
ganga sjóvaktir, einn er á dagvakt á
þilfari, einn í eldhúsi og einn stend-
ur vakt þar sem álag er mest. Hver
hópur gengur sína vakt í þrjá sólar-
hringa. A hverri vakt njóta nemamir
stöðugrar tilsagnar þeirra sem
stjórna störfum hverju sinni, svo
sem stýrimanns, vélstjóra, bryta og
bátsmanns. Á hverri vakt á stjóm-
palli læra nemamir ýmis atriði, svo
sem að stýra, að lesa á kompás og
að fylgjast með veðri og neyðar-
bylgjum auk varðstöðu. Á dagvakt
vinna nemamir við ýmiss konar við-
hald á skipinu og tækjum þess, á
vélavakt fylgjast þeir með störfúm
vélstjóra og taka þátt í hreingeming-
um og á eldhúsvaktinni vinna þeir
við framreiðslu. Auk þess kynnast
nemarnir almennt sjómennsku og
aga um borð.
Sveitarfélögin sem þessir ungl-
ingar koma frá greiða 15.000 kr. á
hvern þátttakanda og er gjaldinu
varið til kaupa á einkennispeysu og
sem vasapeningum til unglinganna.
Ferðimar em kynntar fyrir skóla-
skrifstofum sveitarfélaganna og sjá
þær um skráningu umsókna en
skipting ferðanna milli unglinganna
er í höndum grunnskóladeildar sam-
bandsins. Áhugi á boði Landhelgis-
gæslunnar hefur verið misjafnlega
mikill, sums staðar svo inikill að
ekki hefúr reynst unnt að sinna eftir-
spum en á öðmm stöðum svo lítill
að undmn sætir.
Fullráðstafað er í allar ferðimar
með varðskipunum á komandi
sumri.
Námskeið í starfs-
mannastjórnun
Að frumkvæði grunnskóladeildar
sambandsins verður í byrjun júni
efnt til þriggja námskeiða í starfs-
mannastjórnun sem aðallega eru
ætluð skólastjómendum.
Á námskeiðinu verður fyrir há-
degi fjallað um starfsmannastjómun
og starfsmannasamtöl og eftir há-
degi um almenn atriði vinnuréttar,
stjórnunarrétt vinnuveitanda, um
fæðingarorlof og veikindarétt.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða Birgir Björn Sigurjónsson
hagfræðingur, forstöðumaður kjara-
þróunardeildar Reykjavíkurborgar,
og þau Grétar Jónasson lögfræðing-
ur og Hrefna Guðmundsdóttir sál-
ffæðingur.
í lok hvers námskeiðs er ætlaður
tími til fyrirspuma og umræðna.
Námskeiðin verða haldin á Hótel
KEA á Akureyri þriðjudaginn
5. júní milli kl. 9 og 17, í félags-
heimilinu á Seltjamamesi miðviku-
daginn 6. júní frá kl. 9 til 17 og í
Hótel Héraði, Flugleiðahóteli, á Eg-
ilsstöðum fimmtudaginn 11. júní kl.
9.30 til 17.30.
Ráðstefnugjald er 12.500 kr. Öll
ráðstefnugögn em innifalin í því svo
og hádegisverður og kaffr ráðstefhu-
daginn.
Þátttakendum er heimilt að sækja
það námskeiðanna sem þeim hentar
best.
Pottormur
Á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga (samband.is/grunn-
skoladeild/) er búið að setja upp
exelskjal sem heitir „pottormur2“.
Forritið er á sjö síðum og er fyrsta
síðan með leiðbeiningum um notk-
un þess sem nauðsynlegt er að lesa
vandlega og fýlla í skjalið í sam-
ræmi við það.
Þetta er hjálparforrit til að auð-
velda skólastjómm og launafúlltrú-
um að finna rétta launaflokka kenn-
ara, skólastjórnenda og námsráð-
gjafa og einnig reiknar forritið út
launaflokkapott (sbr. 1.3.2) miðað
við það kennslumagn sem skólanum
er úthlutað.
Þegar skólastjóri síðan úthlutar
launaflokkum sést hve miklu hefúr
verið úthlutað, hve mikið er eftir og
hver mánaðarlaun viðkomandi em.
Pottormur2 hefur verið kynntur
skólastjórum og skólaskrifstofum.
Nánari upplýsingar um forritið veit-
ir höfúndur þess, Kristinn J. Krist-
jánsson, fræðslustjóri í Kópavogi.
Hann hefur netfangið; kristinnk@
kopavogur.is.
MÁLEFNI ALDRAÐRA
Framkvæmdastjóm
um málefni
aldraðra
Þegar Ingimundur Sigurpálsson
lét af störfúm bæjarstjóra í Garðabæ
baðst hann lausnar sem fúlltrúi sam-
bandsins í framkvæmdastjórn um
málefni aldraðra.
Stjómin hefúr tilnefnt Jónu Dóm
Karlsdóttur, bæjarfúlltrúa í Hafnar-
firði, til þess að taka sæti í fram-
kvæmdastjóminni í stað Ingimund-
ar. Aðrir í framkvæmdastjórn um
málefni aldraðra em Jón Helgason,
fyrrv. ráðherra, sem er formaður, og
Jón Snædal öldmnarlæknir, skipaðir
af ráðherra án tilnefningar, Þómnn
Sveinbjörnsdóttir, fyrsti varafor-
maður Eflingar, stéttarfélags og for-
maður Öldrunarráðs íslands og til-
nefnd af því, og Benedikt Davíðs-
son, formaður Landssamtaka aldr-
aðra og tilnefndur af þeim.
Með stjórninni starfa frá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu þau Hrafn Pálsson, deildarstjóri
öldmnarmála, og Margrét Erlends-
dóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu.
Helstu verkefni framkvæmda-
stjómarinnar em að vera ráðherra
og ráðuneytinu til ráðgjafar og afla
vitneskju um ýmsa hluti varðandi
öldmnarþjónustu og málefni henn-
ar. Auk þess mælir stjórnin með
styrkveitingum úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra samkvæmt lögum og
reglum eftir að hafa gaumgæft um-
sóknir sem sjóðnum berast.
1 06