Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Qupperneq 54
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Nýtt sveitarfélag í Þingeyjarsýslu
Reinhard Reynisson, bœjarstjóri á Húsavík ogformaður
samstarfsnefiidar
Samstarfsnefnd um sameiningu
Skútustaðahrepps, Reykjahrepps,
Aðaldælahrepps, Tjörneshrepps,
Kælduneshrepps, Öxarijarðarhrepps
og Húsavíkurkaupstaðar hefur verið
að störfum með hléum frá fyrsta
fundi nefndarinnar sem haldinn var
2. nóvember 1998. I upphafí starfs-
ins voru 13 sveitarfélög aðilar að
nefndinni en Þórshafnarhreppur,
Svalbarðshreppur, Raufarhafnar-
hreppur, Ljósavatnshreppur, Bárð-
dælahreppur og Reykdælahreppur
hafa hætt þátttöku í starfi nefndar-
innar.
Nefndin hefur á þessum tíma
haldið 10 bókaða fundi, þ.m.t. fund
hinn 7. febrúar sl. með öllum sveit-
arstjómarmönnum í sveitarfélögun-
um sjö sem að samstarfsnefndinni
standa í dag. A þeim fúndi var farið
yfir drög að ályktun og greinargerð
samstarfsnefndarinnar til að fá fram
umræður meðal sveitarstjórnar-
manna um þær áherslur sem þar
verða lagðar. Samkvæmt vinnuáætl-
un nefndarinnar er gert ráð fyrir að
tillaga hennar verði lögð fram nú í
vor og að sveitarstjórnir hafi lokið
umfjöllun sinni um hana fyrir 1.
september. Þá hefur nefndin gert þá
tillögu til sveitarstjómanna að kosið
verði um sameiningu sveitarfélag-
anna 3. nóvember nk. og að sveitar-
stjórn hins nýja sveitarfélags verði
kosin við reglubundnar sveitar-
stjómarkosningar vorið 2002.
Samstarfsnefndin hefur lagt
áherslu á það í vinnu sinni að draga
fram ákveðna sýn á það hvernig
móta megi hið nýja sveitarfélag,
bæði hvað varðar uppbyggingu
stjórnsýslu þess en einnig hvað
varðar fyrirkomulag ýrnissa þjón-
ustuþátta. I þessu sambandi hefur
nefndin sett upp tillögu að skipuriti
og mun einnig leggja fram tillögu
að samþykktum um stjóm og fund-
arsköp hins nýja sveitarfélags. Er
þetta m.a. gert til þess að tryggja
skilvirka stjómsýslu hins nýja sveit-
arfélags sem fyrst eftir að það verð-
ur til. Með því að draga fram
ákveðna mynd af fyrirkomulagi
stjómsýslu og þjónustu nýs sveitar-
félags vill nefndin leggja sitt af
rnörkum til að umræðan meðal
sveitarstjómanna og íbúanna snúist
um raunverulega uppbyggingu nýs
sveitarfélags í stað þröngrar hags-
munagæslu þar sem fyrst og fremst
er horft á hvað menn hafa í dag.
En hvers vegna að búa til nýtt
sveitarfélag? Skipan stjórnsýslu,
hvort sem er ríkis eða sveitarfélaga,
hlýtur á hverjum tíma að þurfa að
fylgja þeim raunvemleika senr hið
mannlega samfélag stendur frammi
fyrir. Sú skipan sem hin mörgu
smáu sveitarfélög byggja á rekur
rætur sínar til allt annarrar samfé-
lagsgerðar og tæknistigs en við
búum við í dag. Til að takast á við
nútíð og framtíð þarf að skapa það
stór stjómsýslu- og þjónustusvæði
að innan þeirra sé raunverulega
Frá fundi um sameiningarmál sveitarfélaganna í félagsheimilinu Ýdölum 8. febrúar sl. Á
myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Rúnar Ragnarsson, framkvæmdastjóri héraðs-
nefndar Þingeyinga, Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, Hulda Ragnheiður
Árnadóttir, Hraunkoti, hreppsnefndarfulltrúi i Aðaldælahreppi, og Þorgrlmur Sigurðs-
son, Skógum II, oddviti Reykjahrepps.
1 1 6