Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Page 56
FERÐAMÁL
Ferðamálafulltrúar stofna félag
til eflingar samstarfi og fræðslu
AsborgArnþórsdóttir, ferðamálafulltníi Uppsveita Arnessýslu
Umhverfi ferðaþjónustunnar á ís-
landi hefur breyst gífurlega að und-
anfómu og er gjaman talað um að
ferðaþjónustan sé loksins orðin al-
vöru atvinnugrein sem taka beri
alvarlega. Tölumar tala sínu máli, á
síðasta ári fór fjöldi erlendra gesta
til landsins yfir 300.000 sem er 40
þúsund fleiri en árið áður og er
aukningin þar með orðin 50% á
þremur árum. Gjaldeyristekjur af
ferðaþjónustu á síðasta ári vom 30
milljarðar og er ferðaþjónustan þar
með komin í annað sæti, næst á eftir
sjávarútvegi. Vöxtur greinarinnar
hefúr farið töluvert fram úr áætlun-
urn sem flestar hafa gert ráð fyrir
6-8% aukningu milli ára. Þessar
breytingar kalla á fjölbreytt sérhæfð
störf, öfluga upplýsingamiðlun og
faglega ráðgjöf.
Ferðamálafulltrúar eru vaxandi
stétt á Islandi þrátt fyrir að starfs-
heitið sé tiltölulega ungt. Með ört
vaxandi ferðaþjónustu á undanföm-
um árum og örum breytingum á
starfsumhverfi greinarinnar hefur
þörf fyrir slíka starfskrafta aukist
mjög. Helstu samstarfsaðilar ferða-
málafulltrúa eru sveitarfélög og
ferðaþjónustuaðilar og gegna þeir
ásamt atvinnuráðgjöfúm mikilvægu
hlutverki i þróun ferðaþjónustunnar
og stefnumótun. Starfsvettvangur
og vinnuumhverfi starfandi ferða-
málafulltrúa er mjög mismunandi,
en engu að síður hafa þeir haft með
sér óformlegt samstarf, hist reglu-
lega og ráðið ráðum sínum. Til
slíkra samráðsfunda hefur gjaman
verið boðið forsvarsmönnum stofn-
ana og samtaka í ferðaþjónustu.
Einnig hafa ferðamálafúlltrúar tekið
þátt í samstarfi innan ferðaþjónust-
unnar hérlendis, sem og erlendis.
I framhaldi af þessari góðu sam-
vinnu ákváðu ferðamálafulltrúar á
íslandi að stofna með sér félag sem
vettvang fyrir samstarf, faglega um-
ræðu og fræðslu. Aðild að félaginu
eiga einnig forstöðumenn upplýs-
ingamiðstöðva. Upplýsingamið-
stöðvum ijölgar nú ár frá ári enda er
öflug upplýsingamiðlun sífellt mik-
ilvægari í ljósi breytinga á ferða-
venjurn í þá vem að æ fleiri ferðast
Ferðamálafulltrúar á fundl í Vestmannaeyjum. A myndlnnl eru, tallð frá vlnstrl, Ásborg
Arnþórsdóttlr, ferðamálafulltrúl Uppsvelta Árnessýslu, Johan D. Jónsson, ferðamála-
fulltrúl Suðurnesja, Slgríður Slgmarsdóttlr, forstöðumaður Upplýslngamlðstöðvar Vest-
mannaeyja, Gunnlaugur Elnarsson, ferðamála- og markaðsfulltrúl Grlndavíkur, Aurora
Frlðrlksdóttlr, ferðamálafulltrúi Vestmannaeyja, Ómar Banine, ferðamálafulltrúi, At-
vinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Sigríður Hrönn Theodórsdóttir, ferðamálafulltrúi/at-
vinnuráðgjafi, Atvinnuráðgjöf Vesturlands, Jakob Frímann Þorsteinsson, atvinnumála-
ráðgjafi, Atvinnuþróunarfélagi Skagafjarðar, Jón Halldór Jónasson, ferðamálafulltrúi og
forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar Hafnarfjarðar, Hrafnhildur Tryggvadóttir, for-
stöðumaður Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands, Sigríður Þórðardóttir,
þróunarsviði Byggðastofnunar, Jóhanna Gísladóttir, Markaðsstofu Austurlands, Brynj-
ar Sindri Sigurðsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi, Þrótti - samtökum um atvinnu- og
ferðamál, Siglufirði, Þorvarður Guðmundsson, ferðamálafulltrúi Húnaþings vestra, Inga
Huld Sigurðardóttir, ferðamálafulltrúi Vesturlands, Haukur Garðarsson, ferða- og mark-
aðsfulltrúi A-Húnavatnssýslu, og Davíð Samúelsson, forstöðumaður Upplýsingamið-
stöðvar Suðurlands. Ljósm. Sigurgeir Jónasson.
1 1 8