Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Qupperneq 24

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Qupperneq 24
Styrkir í stað niðurfellingar Nefnd um undanþágur frá fasteignaskatti skiiar áliti Meðal þeirra byggirtga sem undanþegnar hafa verið fasteignaskatti eru kirkjur. Nefnd um und- anþágur frá fasteignaskatti telur að fækka beri undanþágum eða fella þær alveg niður. Myndin er frá Húsavík. Nefnd er fjallað hefur um undanþágur frá fasteignaskatti hefur skilað áliti um að þeim beri að fækka eða fella algerlega niður. Bendir nefndin á að í stað niðurfell- ingar fasteignaskatts af einstökum fasteign- um geti sveitarfélög veitt þeim, er notið hafa ívilnana vegna starfsemi sinnar, beina styrki í stað þess að veita undanþágur frá skattinum. Með því móti verði öll fjármál varðandi álagningu og innheimtu gegn- særri auk þess sem niðurfelling fasteigna- skatta í einskökum tilfellum geti skekkt og skaðað samkeppnisstöðu. Nefndin telur að við setningu núgild- andi laga um tekjustofna sveitarfélaga frá 1995 hafi ekki verið fyrirséðar þær breyt- ingar sem orðið hafa í viðskiptalífinu hér á landi á síðustu árum. Einkum sú vaxandi áhersla sem nú er lögð á jafnræði í sam- keppni og takmarkanir sem orðið hafa á starfsemi hins opinbera af þeim sökum. Auk þess kaupi opinberar stofnanir og fyr- irtæki í auknum mæli þjónustu á grund- velli samninga um einkaframkvæmdir. í því sambandi bendir nefndin á þær breyt- ingar sem orðið hafa á fjármögnun opin- berra mannvirkja þar sem algengara er orðið að opinberar stofnanir og fyrirtæki leigi húsnæði fyrir starfsemi sína í stað þess að eiga það. Skólar og sjúkrastofnanir vega þyngst Húsnæði sem undanþegið hefur verið álagningu fasteignaskatts er kirkjur, sjúkra- stofnanir, grunnskólar, framhaldsskólar, háskólar og heimavistir, barnaheimili, íþróttahús, bókasöfn, sem og önnur safna- hús, sendiráð erlendra ríkja, skipbrots- mannaskýli og sæluhús auk eigna RARIK og Orkubús Vestfjarða. Alls er um að ræða 2.366 matshluta að fasteignamati upp á tæpa 100 milljarða króna samkvæmt skýrslu nefndarinnar frá því í desember 2001. í þessu efni vega undanþágur vegna húsnæðis skóla og sjúkrastofnana þyngst. Þar sem húsnæði grunnskóla er undan- tekningalítið í eigu sveitarfélaganna hafa undanþágur frá fasteignaskatti þeirra vegna lítil áhrif á fjárhag sveitarfélaganna. Annað skólahúsnæði ásamt húsnæði sjúkrastofnana er að stærstum hluta í eigu ríkissjóðs þótt nú sé tekið að gæta eignar- aðildar annarra að slíkum byggingum. Auk framangreindra tegunda húsnæðis er sveitarstjórnum heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt af heilsuhælum, end- urhæfingarstöðvum og tómstundahús- næði. Þá er einnig samkvæmt núgildandi lögum heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt af útihúsum í sveitum sem aðeins eru nýtt að hluta eða standa ónot- uð auk þess sem leyfilegt er að lækka eða fella niður fasteignaskatta sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða. Sveitarfélögin ráði ívilnunum Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga í nefndinni voru einhuga um þá afstöðu að ákvörðunarvald um niðurfellingu, af- slætti og styrkveitingar til greiðslu fast- eignaskatts eigi að vera á hendi sveitarfé- laganna sjálfra. Einnig voru þau sjónarmið ráðandi að ívilnanir af því tagi verði í formi beinna styrkveitinga í framtfðinni. Með því verði allar ívilnanir sýnilegri auk þess sem slík aðferð myndi tryggja betur að fyllsta jafnræðis verði gætt við álagn- ingu. Nefndin telur rétt að bætt verði í lög um tekjustofna sveitarfélaga ákvæði þar sem skýrt verði kveðið á um skyldur sveit- arfélaga að setja reglur um þetta atriði auk þess að skýrt verði tekið fram að ávallt sé skylt að leggja fasteignaskatt á fasteignir sem nýttar eru til samkeppnisreksturs. í nefndinni eiga sæti: Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, Hjörleifur Kvaran, borgarlögmaður í Reykjavík, og lögfræð- ingarnir Guðjón Bragason og Ólafur Páll Gunnarsson. Ríkið hækki framlög til húsaleigubóta Rýmri réttur leigjenda til húsaleigubóta og fjölgun fólks á leigumarkaði hafa orðið til þess að framlög ríkisins vegna húsaleigubóta ná ekki að viðhalda óbreyttu hlutfalli ríkis og sveitarfélaga hvað upphæðir bótanna varðar. Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur félagsmálaráðherra og ríkisstjórn til þess að beita sér fyrir að framlög ríkisins til greiðslu húsa- leigubóta verði nægjanleg á hverjum tíma til þess að viðhalda því skipta- hlutfalli sem nú er og verði hlutfallið miðað við þær bótafjárhæðir sem ákveðnar verða hverju sinni. Fulltrúa- ráðið telur að verði framlög ríkisins ekki aukin frá því sem gert er ráð fyrir í fjárlögum ársins 2002 sé ekki annað fyrirsjáanlegt en lækka verði húsaleigu- bætur til leigjenda verulega frá því sem nú er. 24

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.