Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Qupperneq 29
Sveitarstjórnarkosningar
Kosið til sveitarstjórna 25. maí
Almennar kosningartil sveitarstjórna fara fram laugadaginn 25. maí. Sú breyting
hefur orðið að felld hefur verið niður heimild eldri laga til að fresta kjördegi í
dreifbýli fram til annars laugardags í júní, enda þótti möguleiki á tveimur kjördög-
um úreltur miðað við nútímaaðstæður. Því verður kosið í öllum sveitarfélögum
landsins 25. maí.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst
2. apríl og fer fram hjá sýslumönnum um
land allt. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
erlendis er einnig hafin og fer fram í öll-
um sendiráðum íslands og aðalræðisskrif-
stofum íslands í New York og Winnipeg.
Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar
hjá um 130 kjörræðismönnum íslands í
50 löndum. í utankjörfundaratkvæða-
greiðslu er gert ráð fyrir að kjós-
endur kynni sér sjálfir hverjir eru í
framboði og hvaða listabókstafir
eru notaðir í viðkomandi sveitarfé-
lagi. Athygli kjósenda er ennfremur
vakin á því, að þeim ber sjálfum að
póstleggja atkvæði sín eða koma
þeim á annan hátt í tæka tíð til við-
komandi kjörstjórnar á íslandi.
Kjörskrá
Kjörskrá skal lögð fram eigi síðar
en 15. maí og skal framlagning
hennar auglýst fyrir þann tíma.
Kjörskráin skal liggja frammi til
kjördags.
Á kjörskrá eiga að vera þeir íbú-
ar sveitarfélagsins sem uppfylla öll
kosningarréttarskilyrði á viðmiðun-
ardegi kjörskrár, það er 4. maí, að
viðbættum nöfnum þeirra sem
dveljast á hinum Norðurlöndunum og
eiga að hafa hér kosningarétt. Nánar til-
tekið hafa kosningarétt þeir sem eru 18
ára þegar kosning fer fram, eru íslenskir
ríkisborgarar og voru skráðir með lög-
heimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúa-
skrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag,
það er 4. maí.
Þessu til viðbótar er rétt að vekja at-
hygli á að erlendir ríkisborgarar öðlast nú
kosningarétt og kjörgengi að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Allir erlendir ríkis-
borgarar, sem búið hafa á íslandi í fimm
ár fá nú kosningarétt í sveitarstjórnarkosn-
ingum. Er það á meðal nýmæla í breyt-
ingu á lögum um kosningar til sveitar-
stjórna nr. 5/1998 sem samþykkt var á Al-
þingi í byrjun apríl. Danskir, norskir,
sænskir og finnskir ríkisborgarar skulu
áfram njóta þessa réttar eftir að hafa átt
lögheimili í landinu í þrjú ár samfellt fyrir
kjördag. Lögin hafa verið þýdd á ensku og
er ætlunin að kynna þau meðal útlend-
inga á íslandi.
Kjörstjórn auglýsi
dvalarstað sinn
í breytingum á lögum um kosningar til
sveitarstjórna sem Alþingi afgreiddi í byrj-
un apríl er kveðið á um að yfirkjörstjórn f
hverju sveitarfélagi auglýsi með nægum
fyrirvara aðsetur sitt þar sem tekið er við
framboðslistum og hvar kjörstjórnin dvelur
meðan kosning fer fram.
Ekki þarf sérstakan dyravörð
Ekki er lengur skylt að skipa sérstakan
dyravörð við hverja kjördeild við sveitar-
stjórnarkosningar samkvæmt breytingum á
lögum um kosningar til sveitarstjórna sem
samþykktar hafa verið á Alþingi. Þess í
stað getur kjörstjórn ákveðið að einn kjör-
stjórnarmanna annist dyravörslu jafnframt
því sem hann fylgist með því að kjósendur
leggi kjörseðil í atkvæðakassa.
Kjörf undur
Kjörfundur hefst í fyrsta lagi klukkan 9 ár-
degis og í síðasta lagi klukkan tólf á há-
degi. Kjörfundur skal almennt
standa í að minnsta kosti átta
klukkustundir og ekki má slíta kjör-
fundi fyrr en hálf klukkustund er lið-
in frá því að kjósandi gaf sig síðast
fram. Heimilt er að Ijúka kjörfundi
ef allir sem eru á kjörskrá hafa greitt
atkvæði. Heimilt er að Ijúka kjör-
fundi eftir fimm klukkustundir ef öll
kjörstjórnin og umboðsmenn eru
sammála um það, enda sé liðin hálf
klukkustund frá því að kjósandi gaf
sig síðast fram. Kjörfundi skal vera
lokið eigi síðar en kl. 22. Þeir kjós-
endur sem hafa gefið sig fram fyrir
þann tíma eiga þó rétt á að greiða
atkvæði.
Kosningavefur á Netinu
Félagsmálaráðuneytið hefur í sam-
vinnu við Samband íslenskra sveit-
arfélaga opnað kosningavef á Netinu,
www.kosningar2002.is. Á vefnum er unnt
að nálgast allar helstu upplýsingar varð-
andi kosningarnar og framkvæmd þeirra,
hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem hyggjast
bjóða fram lista, upplýsingar fyrir kjör-
stjórnir, sveitarstjórnir, fjölmiðla og síðast
en ekki sfst kjósendur sjálfa. Ætlunin er að
bæta upplýsingum á vefinn eftir því sem
þurfa þykir og er hann færður upp að
minnsta kosti einu sinni í viku. Þá er ætl-
unin að birta úrslit sveitarstjórnarkosning-
anna á vefnum jafnskjótt og þau berast
auk upplýsinga um þá sem verða í sveitar-
stjórnum á landinu að kosningunum lokn-
um.
Kosningaréttur og kjörgengi miðast við að kjósandi hafi náð átján ára
aldri þegar kosið er. Nokkur kjörtímabil munu líða þangað til þessi
unga stúlka fær kosningarétt en myndin var tekin við kjörstað á
kjördag 1998.
29