Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Page 12
Nýtt sveitarfélag á Austurlandi
sameinast í eitt sveitarfélag með Fjarða-
byggð og Fáskrúðsfjarðarhreppi, með
stjórnsýslu- og þjónustukjarna á Reyðar-
firði. Hann segir það lykilatriði að strax
náist samstaða um uppbyggingu þjónustu-
kjarnans þó svo að bíða þurfi í einhver ár
eftir sameiningu.
- Er samstaða á svæðinu um þennan þjón-
ustukjarna, jafnt innan ykkar raða sem og
meðal stjórnenda og íbúa Fjarðabyggðar?
„Það er algjör samstaða um þetta í okk-
ar röðum. Það hefur ekki verið haldinn
formlegur fundur um þetta mál en mér
finnst mjög trúlegt að það náist um þetta
breið samstaða því þetta er lykilatriði í því
að keppa um búsetu fólksins. Um leið og
álverið kemur hér og menn fara að setja
sig niður með búsetu þá er spurningin:
Verður sú búseta á Fjörðum eða á Héraði?
Ég vona það að það náist samstaða um
þetta meðal ráðamanna í Fjarðabyggð."
Guðmundur segist eiga von á því að mjög
fljótlega muni menn ræða saman um
þennan þjónustukjarna á Reyðarfirði.
- En hvað svo?
„Ég vona að formlegar viðræður um
sameiningu verði mjög fljótt líka en á
samt frekar von á því að menn reyni að-
eins að ná áttum. Við þurfum að koma
rekstri þessara tveggja sveitarfélaga í eitt,"
segir Guðmundur og bætir við að í raun
sé Fjarðabyggð dálítið í lausu lofti einnig
og á kafi í verkefnum eins og stendur. „En
ég vona innilega að okkur takist mjög
fljótt að fara að ræða um þetta því fram-
tíðin liggur í því."
Spurður um hvenær næstu skref verða
stigin og hvort menn hafi sett stefnuna á
sameiningu í tengslum við kosningar til
sveitarstjórna 2006 segir Guðmundur að
ekkert hafi verið tímasett nákvæmlega í
því sambandi. „Ég get sagt persónulega
fyrir sjálfan mig að ég yrði mjög kátur
með það og nánast allir held ég í okkar
sveitarstjórn. Ég er þó ekki viss um að það
sé raunhæft að setja það þannegin upp en
ég tel alveg klárt að það verður komið á
góðan rekspöl þá."
Grænmetið kemur úr jörðinni
- ekki bara úr búðinni!
Á Seltjarnarnesi hefur það verið venjan
undanfarin ár að setja niður nokkurt um-
frammagn grænmetis í skólagarðana og
fimm ára börnum á leikskólum bæjarins
síðan boðið að taka upp það sem eftir
verður á haustin. Börnunum þykir þetta
jafnan fróðlegt og skemmtiiegt í senn -
uppskeran jafnvel borðuð nánast beint
upp úr görðunum og sum börnin verða
jafnvel hissa á því að grænmetið skuli
koma upp úr jörðinni en ekki bara úr
búðinni!
Uppskeran er fyrir nokkru komin í hús
en tilgangurinn með því að fá fimm ára
börnin með þessum hætti í skólagarðana
er að kynna þeim þennan möguleika,
vekja áhuga þeirra og hvetja þau til að
sækja skólagarðana þegar réttum aidri er
náð - en skólagarðarnir eru fyrir yngri ár-
ganga grunnskólans. Á myndinni eru
hróðugir „græmetisbændur" af Seltjarnar-
nesi.
Frá hugmynd
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
bauð nú í september í fyrsta skipti upp á
námskeiðið Frá hugmynd til framkvæmd-
ar\ samvinnu við Sparisjóðinn í Keflavík
ogTKC-Group, sem áætlað er að haldið
verði mánaðarlega. Markmiðið með
til framkvæ
námskeiðinu er að styðja og efla frum-
kvöðla og athafnafólk. Leitast er við að
veita góða sýn yfir gerð viðskiptaáætlana,
farið er yfir opinbert stoðkerf frumkvöðla
og fjármögnun verkefna. Aðstandendur
námskeiðsins segja það ánægjuefni hve
mdar
mikinn áhuga málefni frumkvöðla með
atvinnurekstur í huga vekur á Suðurnesj-
um, en aðsókn á námskeiðið var mjög
góð og tókst það vel að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá Sambandi sveit-
arfélaga á Suðurnesjum.
12 ------