Morgunblaðið - 21.11.2011, Page 1
M Á N U D A G U R 2 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 273. tölublað 99. árgangur
LITRÍK ÆVINTÝRI
UNGLINGANNA
Á STÍLNUM
LIVERPOOL
LAGÐI
CHELSEA
KRAFTAVERK
Í BÓNUS
KOMA VIÐ SÖGU
JOHNSON HETJA
LIÐSINS ÍÞRÓTTIR BÓNUSSTELPA RÖGNU 26HÖNNUNARKEPPNI SAMFÉS 10
Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG »
Morgunblaðið/Kristinn
Skógarhögg Jólastemning í Heiðmörk.
Skógræktarfélögin munu í fyrsta
sinn hinn 10. desember nk. opna
smásölu á jólatrjám í miðbæ
Reykjavíkur. Þetta er liður í því að
auka sölu á íslenskum jólatrjám en
þrátt fyrir að skógarbændur hafi
nú einnig bæst á markaðinn hefur
heildarfjöldi íslenskra jólatrjáa á
markaðnum nær ekkert breyst í 15
ár. Margir vilja frekar kaupa ís-
lensk tré en eiga erfitt með að átta
sig á muninum á þeim íslensku og
erlendum í verslunum. Nokkuð hef-
ur færst í aukana undanfarin ár að
fólk sjái sjálft um að fella jólatré
t.d. í Heiðmörk eða í skógum Skóg-
ræktarfélags ríkisins. 12
Þó að margir vilji
frekar íslensk
jólatré stendur
salan í stað
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Áætlað er að á seinustu þremur árum,
eða frá því kreppan skall á, nemi bóta-
svik í atvinnuleysisbótakerfinu um
þremur milljörðum kr. Talið er að um-
fang ásetningsbrota, þar sem einstak-
lingar svíkja með einum eða öðrum
hætti út atvinnuleysisbætur, sé um 5%
af heildargreiðslum til atvinnuleysis-
bóta og nemi einum milljarði á ári.
Þessar upplýsingar komu fram í er-
indi Unnar Sverrisdóttur, forstöðu-
manns stjórnsýslusviðs Vinnumála-
stofnunar, á ársfundi VMST.
Eftirlit hefur verið hert og skilaði
það góðum árangri í fyrra þegar
sparnaður vegna eftirlitsstarfsemi
VMST var varlega áætlaður um 700
milljónir kr.
Stærri bótasvikamál eru að verða
algengari og þeir sem verða uppvísir
að því að hafa svikið út bætur geta
þurft að endurgreiða háar fjárhæðir. Í
einu tilviki var þess krafist að einstak-
lingur endurgreiddi 2,5 milljóna kr. of-
greiddar bætur að meðtöldu álagi. Á
ársfundinum greindi Unnur frá dæm-
um um bótasvik. Þ.á m. var ábending
um mæðgin sem væru erlendis á sama
tíma og þau þæðu atvinnuleysisbætur.
Þau þvertóku fyrir það en voru beðin
um að staðfesta veru sína hér á landi á
þessu tímabili. Þau afhentu bankayfir-
lit sem reyndist gloppótt. Viður-
kenndu þau síðar brotin á bótareglun-
um og voru bæði sett á tveggja
mánaða biðtíma og rukkuð um of-
greiddar bætur, rúmlega 924 þús. kr.
MStærri bótasvikamál »16
Bótasvikin milljarður á ári
Einstaklingur þurfti að endurgreiða 2,5 milljónir króna
Stærri bótasvikamál eru að verða algengari en áður
Sparnaður 2010
vegna eftirlitsstarfsemi
Vinnumálastofnunar (áætlun)
Ábendingar
Stimplanir
erlendis
Virkt eftirlit
Samkeyrslur
Samtals: 700 milljónir króna
(Milljónir króna)
140
130
135
295
Þjóðarflokkurinn með Mariano
Rajoy í fararbroddi hafði fengið
43,61% atkvæða og 187 þingsæti í
fulltrúadeild spænska þingsins þeg-
ar búið var að telja 70% atkvæða í
þingkosningunum á Spáni í gær-
kvöldi. Talsmenn flokksins lýstu yfir
sigri í kosningunum.
Sósíalistaflokkurinn sem hefur
farið með völd síðustu sjö ár hafði þá
fengið 28,2% atkvæða og 111 þing-
sæti. José Luis Rodrigez Zapatero,
forsætisráðherra Spánar frá árinu
2004, hafði ákveðið fyrir kosningarn-
ar að gefa ekki kost á sér og Alfredo
Perez Rubalca leiddi því flokkinn.
Alls eru 350 þingsæti í fulltrúa-
deildinni og því virtist Þjóðarflokk-
urinn hafa náð hreinum meirihluta
þingsæta. Kjósendur ætlast nú til
þess að Rajoy finni lausn á þeim
vandamálum sem blasa við þjóðinni
eins og gífurlegum skuldum ríkis-
sjóðs, litlum hagvexti og mesta at-
vinnuleysi sem hefur mælst í löndum
ESB. Allt útlit er fyrir að hægri-
flokkur hafi í gær unnið sinn stærsta
sigur frá lokum einræðisstjórnar
Franco árið 1975.
mep@mbl.is
Þjóðarflokkurinn sigrar
Hægrimenn unnu sögulegan kosningasigur á Spáni í gær
Reuters
Sigurvegari Mariano Rajoy hefur
unnið sögulegan sigur í spænskum
stjórnmálum.
Bjarni Benediktsson var í gær endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins
á landsfundi með 55 prósentum greiddra atkvæða en Hanna Birna Krist-
jánsdóttir hlaut um 44 prósent atkvæða. „Ég er óendanlega þakklátur ykk-
ur öllum fyrir þennan mikla og mikilvæga stuðning sem ég hef fengið til að
leiða áfram stærsta, sterkasta og mikilvægasta stjórnmálaaflið á Íslandi,“
sagði Bjarni eftir að niðurstaða kosninga lá fyrir. »4-6
Bjarni endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Golli
Dregur höf-
undar- og hug-
verkaréttur úr
sköpun og
framþróun?
Myndu bæði
neytendur, lista-
menn og rann-
sakendur njóta
góðs af ef um-
hverfinu væri
breytt? Þessu heldur Smári
McCarthy fram en hann er einn
stofnenda Félags um stafrænt frelsi
á Íslandi. Hann segir gamla múra
standa í vegi fyrir nýjum og betri
viðskiptaleiðum og þeir sem græða
mest á núverandi kerfi séu þeir sem
síst eiga það skilið. »14
Skemmir höfund-
arrétturinn fyrir?
Smári McCarthy