Morgunblaðið - 21.11.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Tillögur um hækkun kolefnisgjalds á
eldsneyti í föstu formi sem lagðar
hafa verið fram af fjármálaráðherra
hafa vakið hörð viðbrögð.
Samtök ferðaþjónustunnar leggj-
ast alfarið gegn því að kolefnisgjald á
flugvélaeldsneyti verði hækkað en
hækkunin kemur aðallega niður á
innanlandsflugi og hópbifreiðum.
„Það sem við höfum sérstaklega
við þetta að athuga er að frá og með
næstu áramótum eða janúar 2012
verður útblásturinn tvískattaður,“
segir Árni Gunnarsson, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar og fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands, en
hann vísar þar til þess að frá og með
janúar 2012 mun Ísland falla undir
viðskiptakerfi ESB um útstreymis-
heimildir gróðurhúsalofttegunda.
„Við gerum að okkar mati þá eðli-
legu kröfu að þetta innlenda gjald
falli þá niður,“ segir Árni. Kolefnis-
gjald á flugvélaeldsneyti var sett á
með lögum árið 2009 og tók gildi árið
2010. Það var hækkað um 50% um
síðustu áramót og er nú áætlað að
það hækki um 30% í viðbót. Árni seg-
ir hækkunina einnig óréttláta sé
horft á málið frá umhverfissjónar-
miðum. Kolefnisskattur hljóti eðli
málsins samkvæmt að eiga að stuðla
að minni útblæstri en valkosturinn
hér við innanlandsflugið sé að keyra í
einkabíl.
„Við erum þá í raun að beina fólki í
ekki jafn umhverfisvænan ferðamáta
og áhrif skattsins eru því í raun að
menga fremur meira en minna. Okk-
ur finnst þetta mikið réttlætismál og í
rauninni má velta fyrir sér hvort
þessi kolefnisskattur á innanlands-
eldsneyti geti heitið eitthvað annað ef
þetta hefur ekkert með útblásturinn
að gera,“ segir Árni. Að óbreyttu
áætlar hann að þetta muni samtals
kosta innanlandsflugið í heildina um
80 milljónir.
Hækkun kolefnisgjaldsins snýr
einnig að hópferðabifreiðunum sem
njóta ekki skattaívilnunar eins og
aðrir flutningsmátar. Víðtækar
hækkanir hafa verið gerðar í skatt-
kerfinu frá árinu 2007 líkt og sjá má í
yfirgripsmikilli töflu Viðskiptaráðs
Íslands sem send var til Alþingis í
tengslum við frumvarpið um ráðstaf-
anir í ríkisfjármálum.
Ljóst er af innsendum erindum og
umsögnum að almenn óánægja ríkir
með lagafrumvarpið. Forsvarsmenn
Samtaka atvinnulífsins leggja til að
mynda einnig til að fallið verði frá
hækkun kolefnisgjaldsins.
Útblásturinn tvískattaður verði
innlent gjald ekki fellt niður
Samtök ferðaþjónustunnar leggjast gegn frumvarpi um hækkun kolefnisgjalds
Áhrif skattsins verða þau að menga meira fremur en minna, segir Árni Gunnarsson
Morgunblaðið/Ernir
Hækkun Bitnar á innanlandsflugi.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Rannsókn lögreglunnar í tengslum
við skotárás í austurborginni á föstu-
dagskvöld hefur miðað vel áfram yfir
helgina.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var skotið tvisvar á bílinn en
svo virðist sem honum hafi verið ekið
frá Tangarhöfða niður eftir gömlu
Ártúnsbrekkunni og að hringtorginu
við Elliðaárnar en þar fannst hlað úr
haglabyssu.
Tveir menn í haldi lögreglu
Tveir menn eru nú í haldi lögregl-
unnar og hefur annar þeirra verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25
nóvember. Hann var handtekinn að-
faranótt laugardags.
Yfirheyrslur fara nú fram yfir hin-
um manninum en hann gaf sig fram
við lögregluna á höfuðborgarsvæð-
inu síðdegis í gær. Eru mennirnir
báðir á þrítugsaldri. Í gær lagði lög-
reglan einnig hald á bifreið sem talið
er að árásarmennirnir hafi verið á en
bíllinn fannst í sama borgarhluta og
árásin var gerð.
Ökumaður tilkynnti árás
Forsaga málsins er sú að ökumað-
urinn komst undan og ók á lögreglu-
stöðina við Hverfisgötu þar sem
hann tilkynnti árás við bílaumboð
Ingvars Helgasonar og B&L við
Sævarhöfða um kl. 22 á föstudags-
kvöldið. Rúða brotnaði í bílnum en
ökumanninn sakaði ekki.
Lögreglan var með mikinn við-
búnað við svæðið og var sérsveit rík-
islögreglustjóra kölluð út. Lögreglan
leitar nú fleiri manna í tengslum við
rannsóknina.
Hleypt var af tvisvar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skotárás Lögreglan var með mik-
inn viðbúnað á svæðinu.
Úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás
Varðskip Landhelgisgæslu Íslands liggja nú öll
bundin við bryggju en varðskipin Týr og Ægir eru
nýkomin úr leiguverkefnum ytra. Annríki hefur
verið á Faxagarði að undanförnu vegna skipaflota
Gæslunnar og mun Þór fljótlega halda til eftirlits
á Íslandsmiðum. Frá því að Þór kom til landsins
hafa tæplega 15 þúsund manns heimsótt skipið og
mun fleirum gefast tækifæri til þess því skipið
mun heimsækja hafnir víðsvegar um landið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhöfn Þórs undirbýr nú eftirlitsferð um landið
Varðskipið Þór gnæfir yfir eldri skip Gæslunnar við hafnarbakkann í Reykjavík
Veðrabreytingar
liggja í loftinu
eftir langan hlý-
indakafla. Allt
stefndi í að líð-
andi mánuður
yrði sá hlýjasti í
áratugi, en svo
virðist sem metið
náist ekki, segir
Einar Svein-
björnsson veð-
urfræðingur.
Aldrei hefur verið jafn hlýtt í
nóvember á Íslandi og gerðist árið
1945. Meðalhiti þess mánaðar var
6,5 stig í Reykjavík. Eftir nítján
fyrstu daga nóvember nú er með-
alhiti 6,8 gráður. Verður þá að hafa
í huga að fyrstu þrjá daga mán-
aðarins var hiti ekki nema í með-
allagi.
„Ég er ekki að segja að stórkost-
leg veðrabrigði séu í nánd eða að
hér stefni í mikla kuldatíð. Hins
vegar eru litlar líkur á því að metið
frá nóvember 1945 falli,“ segir Ein-
ar. sbs@mbl.is
Nærri hita-
meti frá 1945
Verðrabrigði í nánd
Einar
Sveinbjörnsson
Elsa María Kristínardóttir er Ís-
landsmeistari kvenna í skák en
mótinu á Skákþingi Íslands lauk um
helgina. Í lokaumferðinni gerði hún
fremur stutt jafntefli við Doniku
Kolica og tryggði sér þar titilinn.
Elsa María hlaut 6,5 vinninga í 7
skákum. Það er óhætt að segja að
sigur Elsu sé nokkuð óvæntur enda
var hún aðeins fimmti stigahæsti
keppandinn og sló þarna við fjórum
landsliðskonum frá Ólympíu-
skákmótinu 2010.
„Sigurinn kom mér mjög svo á
óvart og ég átti engan veginn von á
þessu. Enda ætlaði ég í fyrstu ekki
að taka þátt. Ég tefldi sjö skákir og
var sú næstsíðasta einna erfiðust,“
segir Elsa María.
Elsa María
skákmeistari
Íslandsmeistari Elsa María Krist-
ínardóttir kom á óvart og sigraði.
„Flugið til New York gengur ekki
upp eins og staðan er núna. Því
verðum við að endurskoða mál,“
segir Heimir Már Pétursson, tals-
maður Iceland Express. Flug-
félagið hefur aflýst ferð þangað í
dag og áframhaldandi flug til
þessa áfangastaðar er í endur-
skoðun.
Til stóð að Iceland Express
flygi til New York fram til 9. jan-
úar og svo yrði þráðurinn tekinn
aftur upp í lok mars. Nú er verið
að endurskoða þær áætlanir.
Þeim farþegum sem áttu bókað
far með Iceland Express til New
York í dag verður útvegað far
með öðrum flugfélögum. „Verð
farmiða ræðst af mörgum sam-
verkandi þáttum; svo sem gengi
gjaldmiðla, flugvélategundum og
svo framvegis. Og hvað áhrærir
flugið til New York getum við sem
lággjaldaflugfélag ekki hækkað
verð á farmiðum til Evrópu til að
bera Bandaríkjaflugið uppi,“ segir
Heimir Már. sbs@mbl.is
Aflýsir flugi til New York
og endurskoðar áætlun
Breytingar Ameríkuflugið sett á ís.