Morgunblaðið - 21.11.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann
29. nóvember á frábæru tilboði. Þú bókar flugsæti og fjórum
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Kanarí
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
29. nóvember í 21 nótt
Frá kr. 109.900
Stökktu til
Verð kr. 109.900
Netverð á mann, m.v. tvo til fjóra í
herbergi/stúdíó/íbúð í 21 nótt.
Verð kr. 169.900 allt innifalið
Netverð á mann, m.v. tvo í herbergi á Jardin del
Atlantico í 21 nótt með allt innifalið.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Á þessum fundi höfum við verið að
meitla vopnin fyrir baráttuna og þau
munu skila árangri,“ sagði Bjarni
Benediktsson, endurkjörinn for-
maður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu
sinni á lokadegi landsfundar flokks-
ins sem haldinn var í Laugardals-
höll.
Í kosningunni til formanns hlaut
Bjarni alls 727 atkvæði eða sem jafn-
gildir um 55 prósentum greiddra at-
kvæða. Mótframboð Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur hlaut 577 atkvæði
eða um 44 prósent. Alls tóku 1.323
þátt í kosningunni um formann
flokksins sem fram fór í gær.
„Flokkurinn mun sterkari“
Eftir að úrslit lágu ljós fyrir sagð-
ist Bjarni vera óendanlega þakklát-
ur þeim mikla og mikilvæga stuðn-
ingi sem honum hefði verið sýndur á
landsfundinum. Jafnframt væri það
honum mikill heiður að fá áfram-
haldandi tækifæri til að gegna for-
ystu og leiða sterkasta og mikilvæg-
asta stjórnmálaafl landsins á
þessum mikilvægu tímum.
Hann segir ljóst að Sjálfstæðis-
flokkurinn standi sterkari fótum nú
en hann gerði fyrir landsfund.
„Flokkurinn er mun sterkari. Hing-
að höfum við mætt til þess að herða
stálið fyrir átökin sem framundan
eru gegn vinstristjórninni.“
Í ræðu sinni á fundinum sagði
Bjarni m.a. að Sjálfstæðisflokkurinn
byggi yfir öllum þeim eiginleikum
sem þurfa þykir til að mæta ósk
þjóðarinnar um að fleyta landi og
þjóð áfram á sigurbraut. „Og að við
verðum aftur Ísland, landið þar sem
að best er að búa, landið sem skipar
sér stað meðal þjóða þar sem lífskjör
eru hvað mest.“
Ríkisstjórnin sundurlynd
Ólöf Nordal var endurkjörin vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins með
80 prósent gildra atkvæða og segist
hún vera hrærð yfir þeim mikla
stuðningi sem hún fékk í kjöri til
embættisins. Halldór Gunnarsson í
Holti, sem jafnframt bauð sig fram
til sama embættis, fékk níu prósent
atkvæða og Hanna Birna sjö. „Ég er
mjög þakklát fyrir þann mikla
stuðning sem ég fékk á þessum
fundi. Eindreginn stuðning til þess
að halda áfram því starfi sem að ég
hef verið að sinna,“ segir Ólöf og
bætir við að landsfundurinn hafi
verið mjög árangursríkur og já-
kvæður fyrir flokkinn. „Við höfum
verið að takast hér á við mikilvæg
mál. Við höfum verið að skerpa sýn-
ina og það hefur verið einstaklega
góður andi á þessum fundi.“ Að-
spurð hvernig hún meti stöðu
flokksins nú eftir landsfund segir
Ólöf engan vafa á því leika að flokk-
urinn sé mun sterkari nú enda hafi
hann náð að sameinast á fundinum
og tekið afstöðu til mikilvægra
deilumála. Næstu skref flokksins
eru skýr að hennar mati; að halda
áfram að styrkja stöðu Sjálfstæðis-
flokksins og vinna að því að koma
sitjandi ríkisstjórn frá völdum.
„Okkur miðar ekkert áfram því hún
er sundurlynd og sér ekki þær
lausnir sem að bíða okkar í náinni
framtíð. Við þurfum að ræða við
fólk, skýra okkar stefnu, okkar sýn
og undirbúa flokkinn fyrir næstu
kosningar.“
Morgunblaðið/Golli
Endurkjör Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í gær með um 55 prósentum greiddra atkvæða.
Herða stálið fyrir átökin
Formaður og varaformaður einhuga um að Sjálfstæðisflokkurinn komi sterk-
ur frá landsfundi Næsta mál á dagskrá að koma ríkisstjórninni frá völdum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skýr niðurstaða Ólöf Nordal var endurkjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 80 prósent atkvæða.
„Ég var auðvitað
að vonast eftir
annarri niður-
stöðu,“ segir
Hanna Birna
Kristjánsdóttir,
eftir að úrslit um
kosningu til for-
manns lágu ljós
fyrir. „Ég hef tal-
að fyrir því að
það þurfi að
verða breytingar á forystu Sjálf-
stæðisflokksins en niðurstaðan er
þessi og ég uni því.“ Hún segist eng-
ar ákvarðanir hafa tekið um næstu
skref. „Ég er kjörinn fulltrúi í
Reykjavík og verð það áfram en svo
sjáum við til með framhaldið.“
Tekur hún undir þau ummæli að
flokkurinn standi nú sterkari fótum.
„Ég held að flokkurinn styrkist bara
við að fara í gegnum svona lýðræðis-
legar kosningar.“ Hanna Birna segir
það jafnframt ljóst að hún hafi ekki
náð þeim árangri sem hún ætlaði sér
með framboði sínu og að það séu
vissulega vonbrigði. „Fundurinn á
endanum ræður þessu og þetta er
niðurstaðan.“ khj@mbl.is
Hlaut um
44 prósent
atkvæða
Vildi sjá breyt-
ingar á forystu
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Samþykktar voru
breytingar á
skipulagsreglum
Sjálfstæðis-
flokksins með yf-
irgnæfandi meiri-
hluta á
landsfundi
flokksins í gær.
Tillaga Elliða
Vignissonar, bæj-
arstjóra í Vest-
mannaeyjum, var felld á fundinum
en hún var þess efnis að tillögum
framtíðarnefndar flokksins um
breyttar skipulagsreglur yrði vísað
til kjördæmisráða og síðan fjallað
um þær á fundi flokksráðs á næsta
ári. Samkvæmt nýsamþykktum
skipulagsreglum er miðstjórn
flokksins m.a. skylt að láta fara fram
almenna kosningu meðal flokks-
manna um tiltekið málefni berist
skrifleg ósk um það frá a.m.k. 5000
flokksbundnum félagsmönnum.
Breytingar á
skipulags-
reglum
Kristján Þór
Júlíusson
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég tel að flokkurinn komi sterkur út
úr þessum landsfundi og að allir hafi
haft fullan sóma af þeim kosningum
sem hér fóru fram. Þær voru drengi-
legar og niðurstaðan afgerandi þannig
að ég tel að flokkurinn hafi eflst við
þennan fund,“ segir Geir H. Haarde,
fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins.
„Ég er líka mjög þakklátur fyrir þann
mikla stuðning sem ég hef fengið hér á
fundinum.“
Geir var meðal þeirra fjölmörgu sem ávörpuðu lands-
fund flokksins um liðina helgi og vék hann að stöðu
stjórnmála á Íslandi í ræðu sinni en þar sagði hann m.a.
að núverandi ríkisstjórn hefði mistekist að snúa við
ástandinu í landinu og því væri það mikilvægasta verk-
efnið í stjórnmálum í dag að koma ríkisstjórninni frá
völdum.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrum
formaður Sjálfstæðisflokksins, var kosinn ræðumaður
landsfundar af Málfundafélaginu Óðni og verkalýðsráði
Sjálfstæðisflokksins en í tilkynningu segir að ræða Dav-
íðs hafi þótt bæði hæfilega löng og hnyttin. Í öðru sæti
var séra Halldór Gunnarsson en einnig fengu Geir H.
Haarde, Elliði Vignisson, Bjarni Benediktsson og Hanna
Birna Kristjánsdóttir góða kosningu fyrir ræður sínar.
Geir segist þakklátur
fyrir mikinn stuðning
Davíð Oddsson kosinn ræðumaður nýliðins landsfundar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í ræðustól Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæð-
isflokksins, ávarpar fundinn síðastliðinn laugardag.
Geir Haarde