Morgunblaðið - 21.11.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
ÓDÝRT
ALLA DAG
A!
– fyrst og
fremst
ódýr!
BAKSVIÐ
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
samþykkti í gær málamiðlunartillögu
ráðherranna fyrrverandi Björns
Bjarnasonar og Friðriks Sophusson-
ar í ályktun utanríkismálanefndar en
þar var lögð til eftirfarandi máls-
grein:
„Landsfundur ályktar að gera skuli
hlé á aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið og þær ekki hafnar að
nýju nema það verði samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Tillagan málamiðlun
Áður en til samþykktar fundarins
kom voru líflegar umræður um efni
tillögunnar sem var ætlað að sameina
andstæð sjónarmið, allt frá þeim
sjálfstæðismönnum sem vilja klára
aðildarviðræður og til hinna sem vilja
slíta þeim. Vildu margir fá að tjá sig
um efnið og varð fólki tíðrætt um að
hér væri verið að setja fram mála-
miðlunartillögu.
Margir ræðumanna töldu að með
tillögunni væri náð því markmiði að
sameina andstæða póla þegar kæmi
að ESB-aðild. Því væri ástæða til að
hvetja til samþykktar hennar.
Þeirra á meðal voru Ólöf Nordal,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
þingmaður og fyrrverandi varafor-
maður, og Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir þingmaður.
Ragnheiður sagði: „Ég er ein
þeirra sem segja og hafa sagt að ljúka
eigi aðildarviðræðum við ESB. Ég
hef hins vegar aldrei sagt að inn-
ganga Íslands í Evrópusambandið sé
það besta sem fyrir landið getur kom-
ið og mun ekki segja.“ Hún hvatti
fundarmenn til að styðja tillöguna og
sýna að innan flokksins rúmaðist fólk
með ólíkar skoðanir.
Illugi Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði flokkinn
miklu stærri en svo að ESB-málið
ætti að valda honum vandræðum, líkt
og væri heitasta ósk andstæðinga
flokksins. Það væri skýrt að þjóðin
ætti að fá að velja.
Vildu slíta viðræðum
Aðrir sjálfstæðismenn, t.d.
Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi
menntamálaráðherra, og Elliði Vign-
isson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
töldu hins vegar að tillagan gengi
ekki nógu langt og lögðu fram tillögur
um slit aðildarviðræðna.
Lagði Tómas Ingi fram breyting-
artillögu þar sem meðal annars var
tekið undir tillögu utanríkismála-
nefndar fundarins, að ekkert tillit
hefði verið tekið til aðvarana Sjálf-
stæðisflokks um að hefja aðildarvið-
ræður við ESB án þess að leggja þær
fyrst í dóm þjóðarinnar:
„Þeirri viðvörun var ekki sinnt.
Umsókn um aðild að ESB var því lögð
fram á fölskum forsendum. Sjálf-
stæðisflokkurinn telur því að draga
eigi til baka aðildarumsókn að ESB.“
Tillaga Tómasar Inga var samþykkt
með handauppréttingu, þar sem talin
voru 258 atkvæði með tillögunni og
253 atkvæðum gegn henni. Þegar
ljóst var að aðeins munaði fimm at-
kvæðum var farið fram á að atkvæða-
greiðslan yrði endurtekin og þá skrif-
lega. Mun fleiri eða 1.026 manns tóku
þátt í kosningunni og var tillaga Tóm-
asar Inga um slit aðildarviðræðna við
ESB felld með 665 atkvæðum gegn
355.
Fyrst þjóðaratkvæðagreiðslu
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, lagði einnig fram til-
lögu um að viðræðum yrði slitið. Ekki
yrði gengið aftur til viðræðna fyrr en
þjóðin hefði sýnt vilja sinn í verki í
gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu.
Landsfundur felldi tillöguna með 617
atkvæðum gegn 430 atkvæðum.
Geir Waage sóknarprestur steig í
ræðustól eftir að niðurstöður lágu
fyrir og sagði: „Hér eru menn látnir
kjósa þar til rétt niðurstaða liggur
fyrir.“
Tómas Ingi og Elliði lýstu því hins
vegar báðir yfir að þeir sættust á nið-
urstöðu fundarins og sagði Tómas
tíma kominn til að bera klæði á vopn-
in.
Hlé verði á ESB-viðræðum
Miklar umræður urðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um hvort álykta ætti að slíta viðræðum við
ESB eða gera hlé Samþykkt málamiðlunartillaga um hlé á viðræðum og að fá samþykki þjóðarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Já Fundarmenn landsfundar Sjálfstæðisflokksins brugðu bláum jáum eða eftir atvikum rauðum neium á loft þegar
gengið var til atkvæða um þær ályktanir og tillögur þeim tengdar sem til umræðu voru á landsfundinum.
„Við náðum sáttum í utanríkismálanefndinni,“ sagði
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, eftir að lands-
fundur hafði samþykkt málamiðlunartillögu hans og
Friðriks Sophussonar, fyrrverandi ráðherra, um að hlé
yrði gert á ESB-viðræðum. Það væri greinilega afger-
andi stuðningur við hana.
„Ég sagði það líka í morgun að ég tryði því ekki að
Sjálfstæðisflokkurinn lenti nokkurn tíma í sömu aðstöðu
og Vinstri grænir að vera í ríkisstjórn á móti aðild að
Evrópusambandinu en samt að vinna að aðildinni. Það
kæmi ekki til greina. Það er óhugsandi að sjálfstæð-
ismenn lendi í þeirri stöðu. “
Þegar spurt er um þýðingu þess að fundurinn samþykkti ályktun utan-
ríkismálanefndar, segir Björn ljóst að þeir sem vilji tala við Sjálfstæð-
isflokkinn verði að hætta að tala við Evrópusambandið. Það sé í meiri
vanda með málið heldur en jafnvel ríkisstjórn Íslands, þótt hún sé klofin í
málinu. Það detti því engum heilvita manni í hug að ræða við Evrópusam-
bandið eins og ekkert hafi í skorist, nema Samfylkingunni.
Afgerandi stuðningur við málamiðlun
Björn Bjarnason
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í
Vesturbyggð, fékk flest atkvæði í
miðstjórnarkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins, sem fór fram á landsfundi
flokksins í gær.
Aðrir, sem náðu kjöri, voru í þess-
ari röð: Elínbjörg Magnúsdóttir, El-
ín Káradóttir, Ólafur Jónsson, Ein-
ar Bárðarson, Sigþrúður Ármann,
Jens Garðar Helgason, Sigurður
Örn Ágústsson, Guðbjörg Péturs-
dóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Jensen og Karen Elísabet Halldórs-
dóttir.
Alls buðu 15 manns sig fram í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Bæjarstjóri Vesturbyggð-
ar með flest atkvæði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmenni Landsfundur.
„Það var afgerandi fellt að setja inn orðalagið slíta,“
segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, en landsfundarmenn samþykktu orða-
lagið „hlé á viðræðum“.
Hún segir niðurstöðuna sýna að Sjálfstæðisflokkurinn
sé með skýra stefnu í málefnum Evrópusambandsins;
hann sé andsnúinn aðild að Evrópusambandinu.
„En það sem hefur komið í ljós við þessar atkvæða-
greiðslur og meðbyr fundarins við þessa umfjöllun er að
þessi hópur sem var talinn lítill af sumum, hann er stærri
en menn vilja að minnsta kosti vera láta. Sá hópur var
einnig sýnilegri en hann hefur nokkru sinni verið á
landsfundi.“
Þorgerður segist ekki endilega sátt við þá málamiðlunartillögu sem var
samþykkt í ályktun utanríkismálanefndar. „Ég er ekki endilega efnislega
sammála þeirri niðurstöðu að gera hlé en ég stend með samþykktum þessa
fundar.“
Afgerandi fellt að slíta viðræðum
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
„Fjármál heimilanna eru forgangs-
mál hjá Sjálfstæðisflokknum,“ sagði
Guðlaugur Þór Þórðarson á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins í gær þar
sem tekin var fyrir ályktun flokksins
um fjármál heimilanna og uppskar
dynjandi lófaklapp fundarmanna
fyrir. Guðlaugur sagði kveða við nýj-
an tón þegar kæmi að verðtygging-
unni. Við þyrftum að vinna okkur út
úr henni, ekki þó banna hana alveg
en verðtrygging ætti ekki að vera
valkostur þegar kæmi að íbúða- og
neytendalánum. Koma yrði til móts
við þá sem hefðu orðið fyrir for-
sendubresti með almennum hætti.
Laða að erlenda fjárfesta
Ýmsar ályktanir voru samþykktar
á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
sem lauk í gær, þar á meðal álykt-
anir um atvinnumál, efnahags- og
skattamál, innanríkismál, mennta-
mál, og velferðarmál.
Í ályktun um atvinnumál var lögð
áhersla á að lækka skatta og einfalda
skattkerfi til að flýta fyrir efnahags-
bata. Lögð er áhersla á afnám gjald-
eyrishafta og að erlendum fjárfest-
um yrði gert auðveldara að fjárfesta
í íslensku atvinnulífi. Lykilforsenda
þess að laða að fjárfesta væri að
stöðugleiki ríkti í efnahags- og
stjórnmálum. Einnig var lögð
áhersla á að flýta endurskipulagn-
ingu skulda fyrirtækja og heimila
sem. Áfram verði stuðst við afla-
markskerfi í sjávarútvegi.
Samþykkt var ályktun í efnahags-
og skattamálum, sem felur m.a. í sér
komið verði á þjóðarsátt og sam-
ræmdri stefnu í opinberum fjármál-
um. Sjálfstæðisflokkurinn komi á
nefnd til að kanna framtíðarskipan
gjaldeyrismála á Íslandi. Skattkerfið
verði einfaldað og gert gagnsærra og
dregið úr millifærslum þannig að
velferðarkerfið og skattkerfið verði
aðskilin. sigrunrosa@mbl.is
Forgangsmál að vinna úr
fjármálum heimilanna
Mæta þeim sem hafa orðið fyrir almennum forsendubresti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atkvæði Gengið með kjörkassa á
landsfundi sjálfstæðismanna.