Morgunblaðið - 21.11.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
Í Silfri Egils í gær var uppstillingineins og venja er, einn hægrimað-
ur á móti fjórum og breytti engu þó
að helsta umræðuefnið væri lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins.
Baldur Þórhallsson, varaþing-maður Samfylkingarinnar, var
að sjálfsögðu á staðnum, enda nauð-
synlegt að fá ekki aðeins fram hlut-
laust mat Árna Þórs Sigurðssonar á
landsfundinum.
Baldur tjáði sigum mismun-
andi tillögur um
Evrópusambands-
mál sem voru óút-
kljáðar á fundinum
á meðan þátturinn
stóð yfir.
Hann sagði að í rauninni væribara verið að takast á um smá-
atriði, „það er hvort það eigi að slíta
aðildarviðræðunum eða gera hlé.
Um það er ágreiningurinn. Ég veit
nú ekki alveg hver meiningarmun-
urinn er þar.“
Svo bætti hann því við að „Evr-ópusinnar“ hefðu augljóslega
algerlega orðið undir á fundinum og
hreinlega verið „kastað út“ og væru
„ekki lengur með“.
Auðvitað var engum kastað út, enminnihlutinn fékk ekki að
ákveða stefnuna frekar en annars
staðar þar sem farið er að leik-
reglum lýðræðisins.
Það er hins vegar hárrétt stöðu-mat hjá varaþingmanninum að
enginn munur sem máli skiptir var á
tillögunum sem kosið var á milli.
Sjálfstæðismenn komust að sömu
niðurstöðu og áður, að þeir vilja
hætta aðlögunarviðræðunum og
vilja ekki aðild. Sú stefna þarf ekki
að koma neinum á óvart.
Baldur
Þórhallsson
Enginn meiningar-
munur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 20.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 léttskýjað
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 5 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 2 skýjað
Vestmannaeyjar 5 heiðskírt
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 11 skýjað
Kaupmannahöfn 7 þoka
Stokkhólmur 6 skýjað
Helsinki -7 heiðskírt
Lúxemborg 10 heiðskírt
Brussel 8 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 7 þoka
París 11 heiðskírt
Amsterdam 7 alskýjað
Hamborg 6 heiðskírt
Berlín 7 heiðskírt
Vín 1 alskýjað
Moskva -3 skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg -15 léttskýjað
Montreal 11 skúrir
New York 13 alskýjað
Chicago 5 alskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:15 16:13
ÍSAFJÖRÐUR 10:43 15:55
SIGLUFJÖRÐUR 10:27 15:37
DJÚPIVOGUR 9:50 15:37
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Minningarathöfn um fórnarlömb
umferðarslysa fór fram við bráða-
móttöku Landspítalans í gærmorg-
un. Hún hófst með ávarpi forseta Ís-
lands, en kl. 11 var einnar mínútu
þögn. Með athöfninni var ætlunin að
minnast fórnarlamba umferðarslysa
en jafnframt heiðra þær starfsstéttir
sem koma að björgun og aðhlynn-
ingu þeirra sem lenda í alvarlegum
umferðarslysum. Fulltrúar þeirra
starfstétta voru viðstaddir en það
voru áhöfn þyrlusveitar Landhelgis-
gæslunnar, lögreglu-, sjúkraflutn-
inga-, björgunarsveitar- og slökkvi-
liðsmenn auk lækna, hjúkrunarfólks
og starfsmanns Rannsóknarnefndar
umferðarslysa.
Svipuð minningarathöfn fór fram
á sama tíma við Sjúkrahúsið á Akur-
eyri.
Erfitt ef börn eiga í hlut
Við athöfnina á Landspítalanum
sagði Leifur Halldórsson rannsókn-
arlögreglumaður frá reynslu sinni
og störfum á vettvangi umferðar-
slysa. Hann segir að það sé alltaf
mjög erfitt að koma að umferðar-
slysum, sérstaklega ef börn eiga í
hlut. „Eftirvinnslan er líka erfið og
við rannsóknarlögreglumennirnir
erum oft í hlutverki sálusorgara,“
segir Leifur. Hann hefur verið í lög-
reglunni síðan árið 1998 en hóf störf
sem rannsóknarlögreglumaður árið
2007 og er nú í rannsóknardeild al-
mennu deildar LRH sem sinnir m.a.
umferðar- og vinnuslysum.
Hann segir að með árunum verði
að einhverju leyti auðveldara að
koma á vettvang umferðarslyss en
að vissu leyti venjist það aldrei. „Það
sem venst aldrei er sá hluti starfsins
að sinna fólki eftir á,“ segir Leifur
en rannsóknarlögreglumenn gæta
hagsmuna fórnarlamba gegnum
rannsókn slysa og snýst starf þeirra
því um miklu meira en að rannsaka
aðeins slysstaðinn. „Vettvangs-
vinnan kemst upp í vana, þar fer
maður í ákveðinn gír og gerir það
sem þarf að gera en eftirvinnan og
það að koma að slysum þar sem börn
eiga í hlut venst aldrei.“
Leifur segir að þrátt fyrir að
reyna að reiðast ekki í starfinu verði
hann oft fúll þegar komið er að slysi
þar sem hinn látni eða slasaði notaði
ekki bílbelti. „Það er svo tilgangs-
laust að maður verður pirraður, að
þessi litla hreyfing sem hefði getað
komið í veg fyrir meiðslin var ekki
framkvæmd.“
Eru oft í hlutverki sálusorgara
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minningarathöfn Athöfnin hófst á ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Sameinuðu þjóðirnar hafa frá
árinu 1993 tileinkað þriðja sunnudag nóvembermánaðar minningu fórnarlamba umferðarslysa.
Eftirvinnsla umferð-
arslysa venst aldrei
12 banaslys í umferðinni
» Á hverju ári látast um 1,2-1,4
milljónir manna í umferðar-
slysum í heiminum og hundruð
þúsunda bíða varanlegan skaða.
» Síðan skipt var yfir í hægri
umferð á Íslandi hinn 26. maí
1968 hafa 958 manns látið lífið í
umferðinni og rúmlega 8.600
manns hlotið alvarleg meiðsl.
» U.þ.b. 2% allra dauðsfalla í
heiminum eru af völdum um-
ferðarslysa og er þetta hærra
hlutfall en fjöldi þeirra sem lát-
ast t.d. af völdum berkla og mal-
aríu.
» Það sem af er árinu hafa 12
manns látist í umferðinni hér á
landi, þar af er helmingur þeirra
17 ára og yngri.
» Í upplýsingum sem
Umferðarstofa tók saman um
algengustu dánarmein fólks á
aldrinum 17-26 ára á Íslandi
kemur í ljós að á árunum 1999
til 2008 voru umferðarslys al-
gengasta dánarorsök kvenna á
þessum aldri og er hún tvöfalt
algengari orsök en sjálfsvíg sem
er næstalgengasta orsökin.