Morgunblaðið - 21.11.2011, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
Ef marka má útgönguspár sem birtar
voru í gærkvöldi bendir allt til þess að
Þjóðarflokkurinn fái hreinan meiri-
hluta á spænska þinginu. „Skilaboð
spænsku þjóðarinnar munu vera þau
að segja heiminum að hér getum við
og munum gera það rétta,“ sagði
Mariano Rajoy, leiðtogi Þjóðarflokks-
ins á Spáni, við kjósendur en þing-
kosningar fóru fram á Spáni í gær,
sunnudag. Rajoy hefur bætt við sig
miklu fylgi en hann hefur gefið loforð
um lagfæringu á þeirri djúpri efna-
hagskrísu sem Spánn á við að etja
sem og um minnkun atvinnuleysis.
Kannanir spá 45% kosningu
„ Ég er tilbúinn til þess að veita
Spánverjum það sem þeir vilja,“ sagði
Rajoy þegar hann kaus í gærdag í
fylgd eiginkonu sinnar. Nýjustu
skoðanakannanir bentu til þess að
hinn hægrisinnaði Þjóðarflokkur sem
hefur verið í stjórnarandstöðu síðustu
átta ár fengi 45% atkvæða sem er um
15% meira fylgi en Sósíalistaflokkn-
um er spáð en hann er nú leiddur af
Alfredo Perez Rubalca. Kannanir
benda til þess að Spánverjar séu að
refsa Sósíalistaflokknum fyrir lang-
varandi efnahagskreppu með hæstu
atvinnuleysistölur sem sést hafa inn-
an Evrópusambandsins. Þar að auki
hafi forsætisráðherra Sósíalista-
flokksins, José Luis Rodrigez Zapa-
tero, lögleitt óvinsælar niður-
skurðaraðgerðir á síðasta ári sem
fólu í sér 5 % lækkun á launum op-
inberra starfsmanna, frystingu á líf-
eyrisgreiðslum og hækkun eftir-
launaaldurs úr 65 í 67 ár. Rajoy hefur
lofað að komist hann í forsætisráð-
herrastól muni hann ekki skerða líf-
eyrisgreiðslur og hann lofar einnig að
skoða þann möguleika að veita fyr-
irtækjum skattaafslætti til þess að
hvetja þau til frekari ráðninga.
Rubalca hefur þó ásakað Rajoy í
kosningabaráttunni um að ætla að
skera enn meira niður í heilbrigðis-
og menntakerfinu.
Á Spáni er nú 21,5% atvinnuleysi
en 45% atvinnuleysi meðal ung-
menna. Um fimm milljónir manna
eru án vinnu.
Reuters
Kosningar Leiðtogi Þjóðarflokksins (PP) Mariano Rajoy ræðir við fréttamenn á kjörstað í gær, 20. nóvember.
Rajoy boðar
nýja stefnu
Ungir Spánverjar áhyggjufullir
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
Forsætisráðherra Líbíu, Adburra-
him al-Keib, hefur heitið því að
sonur Gaddafis, Saif al-Islam,
muni fá að njóta réttlátra rétt-
arhalda en hann var handtekinn er
hann reyndi að flýja til Níger í
Afríku. Sagðist ráðherrann treysta
uppreisnarhernum í bænum Zint-
an til að gæta hans. Talið er að al-
menningur í Líbíu geti loks verið
áhyggjulaus þar sem al-Islam
hafði hótað að koma aftur.
Al-Islam var talinn mögulegur
arftaki föður síns og hafði verið
opinber verjandi hrottalegrar ein-
ræðisstjórnar. Ekkert var vitað
um afdrif hans í marga mánuði en
í ágúst síðastliðnum hafði hann
samband við sjónvarpsstöð í Sýr-
landi, þar sem hann sagðist vera
staddur í úthverfi Trípólí og hvatti
Líbíubúa til þess að rísa gegn upp-
reisnarmönnum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá BBC-fréttastofunni
ætluðu saksóknarar í Líbíu að
hefja yfirheyrslur í gær, sunnu-
dag. Samkvæmt upplýsingum frá
Abdel Basset Zueraik, opinberum
starfsmanni, þurfa yfirheyrslur að
hefjast innan við 48 tíma frá hand-
töku samkvæmt líbískum lögum.
Vildi hann ekki staðfesta hvort
fanginn væri staddur í bænum
Zintan eða í borginni Misrata en
áhyggjur af slæmri meðferð hafi
vaknað eftir að Gaddafi var drep-
inn á meðan hann var í haldi.
Saif al-Islam er síðasti afkom-
andi Gaddafi-fjölskyldurnnar sem
er eftirlýstur af Alþjóðaglæpadóm-
stólnum (ICC, International Crim-
inal Court) og á yfir sér kæru
vegna glæpa gegn mannkyninu.
Saksóknari Alþjóðaglæpadóm-
stólsins, Luis Moreno Ocampo,
mun heimsækja Líbíu á næstu vik-
um þar sem réttarhöldin verða að
öllum líkindum haldin. Alistair
Burt, fulltrúi breska utanríkis-
ráðuneytisins, sagði að sameigin-
leg réttarhöld gætu verið haldin í
Líbíu en um það þyrftu fulltrúar
Alþjóðaglæpadómstólsins að ræða
við líbísk yfirvöld.
Hafði lengi hótað líb-
ísku þjóðinni hefndum
Sonur Gaddafis, Saif al-Islam, handtekinn á leið sinni til Níger
Reuters
Glæpir Lofað hefur verið að Saif al-
Islam fái réttláta málsmeðferð.
Naktar ísraelskar konur sátu fyrir
hjá ljósmyndara í Tel Aviv hinn 19.
nóvember síðastliðinn til þess að
sýna stuðning við egypska konu að
nafni Aliaa Magda Elmahdy, sem
birti nektarmynd af sjálfri sér á
bloggsíðu sinni og hefur myndbirt-
ingin vakið mikla athygli. Þessi
hópur ísraelskra kvenna styður
tjáningarfrelsi hennar og mótmælir
íslamskri öfgastefnu. Nekt er litin
alvarlegum augum í egypsku sam-
félagi og hefur myndbirting El-
madhy vakið sterk viðbrögð. Flest-
ar múslímskar konur nota
höfuðklút og forðast að sýna hand-
leggi og fótleggi á almannafæri. El-
mahdy skrifaði á bloggsíðu sinni að
hún vildi koma á framfæri mótmæl-
um til þjóðfélags sem byggðist á of-
beldi, kynþáttafordómum, kynja-
mismunun, kynferðislegri áreitni
og hræsni . mep@mbl.is
Nekt í Tel Aviv
Reuters
Styðja tján-
ingarfrelsi
kynsystur
Arababandalagið hefur hafnað kröfu
Sýrlendinga um að breyta friðar-
áætlun sinni til að binda enda á átök í
landinu. 3.500 manns hafa nú þegar
látist í átökunum. Bandalagið felldi
tillögu Sýrlendinga um breytingu á
þeirri áætlun að 500 manna sendi-
nefnd færi til Sýrlands og fylgdist
með málum. Forseti Sýrlands Bas-
har al-Assad hefur sagt að þjóð sín
muni ekki beygja sig undan þrýst-
ingi og spáði því að átökin myndu
halda áfram. Arababandalagið til-
kynnti að neyðarfundur yrði haldinn
á meðal utanríkisráðherra araba-
landanna í Kaíró næstkomandi
fimmtudag til þess að ræða málefni
Sýrlands. Litið hefur verið á áætlun
Arababandalagsins sem bestu von-
ina um að átökin verði leyst með frið-
samlegum hætti en hún virðist hafa
mistekist hrapallega. mep@mbl.is
Reuters
Sýrland Íbúar landsins fjölmenntu á fjöldafund til stuðnings Bashar al-
Assad í Damaskus í gær, 20. nóvember.
Hafnar kröfu Sýrlendinga
um breytingu á áætlun