Morgunblaðið - 21.11.2011, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
Ævintýri Þau eru sannarlega hæfileikarík krakkarnir sem tóku þátt í Stíl, hönnunarsamkeppni Samfés.
Eggert
Hér berja ýmis öfl
hausnum við steininn
og halda áfram að tala
um mikilvægi þess að
Ísland gangi í Evr-
ópusambandið og taki
upp evru. Það mætti
halda að fréttir bær-
ust bara til Íslands
með haust- og vor-
skipi, þannig er um-
ræðan. Þeir sem leiða
atvinnulífið virðast jafn veikir og
Samfylkingin. Þeir kljúfa sín sam-
tök og vilja sjá aðildarsamning sem
eigi að greiða atkvæði um. Þetta
gerði stjórn Samtaka atvinnulífsins
á dögunum. Og þeir trúa því að við
séum í samningaviðræðum þegar
upplýst er af ESB að allar viðræður
frá 1994 séu aðlögunarviðræður og
undanþágur séu takmarkaðar og
tímabundnar.
Enn er hluti forystumanna at-
vinnulífsins hér svo illa upplýstir um
stöðu evrunnar að þeir loka augum
og eyrum fyrir staðreyndum. Fær-
ustu efnahagssérfræðingar og
stjórnmálamenn efast um að hún lifi
af sem mynt. Það gleðst enginn yfir
því en í upphafi gátu
menn séð þetta fyrir,
segja örfáir hagfræð-
ingar nú. Auðvitað gátu
ólík ESB-ríki ekki lifað
við sama gjaldeyri, mis-
tök misviturra hag-
fræðinga og stjórn-
málamanna.
Klofna samtök at-
vinnulífsins
og iðnaðarins?
Margir innan at-
vinnulífsins og iðnaðar-
ins eru orðlausir eftir síðustu álykt-
un. Sá sem þetta ritar fer fyrir
stórum samtökum innan iðnaðarins,
Samtökum mjólkur- og kjöt-
framleiðenda (SMK). Þessir aðilar
hljóta vegna hagsmuna skjólstæð-
inga sinna og þjóðarinnar að velta
því fyrir sér hvort þeir eigi lengur
samleið með hagsmunasamtökum
sem láta misnota sig í pólitísku
dekri við núverandi stjórnvöld í von-
lausu og dýru ESB-ferlinu. Land-
búnaður sem grunnatvinnuvegur, sá
stærsti í sveitum og byggir sveit-
irnar blómlegum búum og skapandi
þúsundir starfa í matvælaiðnaði í
þéttbýli, ber aldrei sitt barr ef geng-
ið verður í ESB. Það gerir ekki held-
ur sjávarútvegurinn þegar Bretar,
Spánverjar og allir hinir koma inn á
miðin á ný. Utanríkisráðherra Öss-
ur Skarphéðinsson hefur sagt að í
sjávarútvegsmálum þurfi engar
undanþágur. Mér er sagt að þá hafi
verið flaggað í Hull og Grímsby og
klappað fyrir okkar manni. Ferða-
þjónustan er nú í örri sókn vegna
leiðréttingar gengisskráningar
krónunnar, ótrúlegt en satt.
Leppstjórnir ESB taka völdin
í Evrópu
Stóru leiðtogarnir Angela Merkel
Þýskalandskanslari og David Came-
ron forsætisráðherra Bretlands eru
á öndverðum, hún sér fyrir sér stóra
ríkið sem Þjóðverjar ráða í framtíð-
inni og allir vita að evran væri end-
anlega hrunin ef Þjóðverjar borg-
uðu ekki brúsann. David Cameron
hins vegar segist vera orðinn efa-
semdarmaður um ESB og um helm-
ingur Breta vill nú yfirgefa ESB.
Cameron vill minni miðstýringu frá
Brussel og auka sjálfstæði hvers að-
ildarríkis. Danir segjast aldrei taka
upp evru og flestir Norðmenn, milli
80 og 90%, segja að ekki komi til
greina að ganga í Brussel-ríkið.
Gömlu lýðræðisríkin Grikkland
og Ítalía eru svo illa farin í ESB að
þau búa nú við leppstjórnir, gamla
embættismenn skipaða til valda af
Brusselríkinu. Leppstjórnir hafa
fengið harða dóma í tímans rás.
Að leggja ESB-viðræðurnar
til hliðar
Hvers vegna telur forsætisráð-
herra Bretlands að ESB skorti
veruleikatengsl? Veit hann í hring-
iðunni minna en Össur og Jóhanna?
Á sama tíma segir forsætisráðherra
Íslands úti í Brussel að Íslendingar
hafi sérstakan áhuga á stækkun
ESB og að ljúka samninga-
viðræðum. Össur Skarphéðinsson
og sérvaldir spekingar hafa ómæld-
an aðgang að fjölmiðlum hér til að
lofa evruna og aðildarumsóknina
sem hlýtur að nálgast endalok sín.
Það eina sem bæði Alþingi Íslend-
inga og ESB geta gert er að koma
sér saman um að leggja aðild-
arviðræðurnar til hliðar vegna
ástandsins, ekki síst í Evrópu. Við
Íslendingar getum ekki haldið
áfram að ausa fé í aðildarviðræður
sem eru veruleikafirrtar við núver-
andi aðstæður. Hér er ESB að koma
með hundruð milljóna í áróður um
pólitískt mál.
Stærsta fyrirskipunin er nú að
berja á atvinnugreinum sem snerta
vitund og sögulegar hefðir landsins,
gera lítið úr starfi bóndans og telja
mönnum trú um að gullið sem hafið
gefur okkur sé minna virði. Morg-
undagurinn þarf á samstöðu að
halda til að allar hendur hafi verk að
vinna og að landflóttanum linni.
Stærsta mál Íslands er að stækka
þjóðarkökuna og skapa á ný velferð
í landinu. Þessa veruleikafirringu,
sem aðildarviðræður Íslands að
„Stórríkinu í Brussel“ eru, verður
að stöðva. Það er skynsamlegt fyrir
bæði ríkin við núverandi aðstæður.
Eftir Guðna
Ágústsson » Þessir aðilar hljóta
vegna hagsmuna
skjólstæðinga sinna og
þjóðarinnar að velta því
fyrir sér hvort þeir eigi
lengur samleið með
hagsmunasamtökum
sem láta misnota sig í
pólitísku dekri við nú-
verandi stjórnvöld í
landinu.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra.
Veruleikafirring og blekkingar
einkenni ESB-viðræðurnar
Í áranna rás hefur mér
fundist þjóðfélagið ganga
út á að hegna þeim sem
vilja vera heiðarlegir og
ábyrgir, en umbuna þeim
sem eru nógu klókir og
ófyrirleitnir. Tökum
dæmi:
Þegar framþróun varð í
landbúnaði og fram-
leiðslan fór fram úr eft-
irspurn á sínum tíma voru bændur hvatt-
ir til að minnka framleiðslu tímabundið, á
meðan birgðir minnkuðu í landinu. Marg-
ir „kjánar“ fóru samviskusamlega eftir
þessu meðan „krimmarnir“ juku við og
fengu jafnvel niðurgreidd lán til að
byggja upp á meðan aðrir drógu saman.
Akkúrat þessi ár voru svo notuð til við-
miðunar þegar kvóti var settur á í land-
búnaði. Kjáni.
Þegar kvótinn var settur á í fiskveiðum
sáu margir trillukarlar sér leik á borði og
seldu aflaheimildir sínar til stórútgerða
og græddu vel meðan „kjánarnir“ héldu
áfram að gera út og skuldsetja sig til að
kaupa meiri kvóta, þó að ekki væri nema
til að halda í horfinu á móti aflaskerð-
ingum. Núna með strandveiðikerfinu er
verið að færa „krimmunum“ aftur rétt til
að veiða frítt við hliðina á skuldsettum
„kjánum“, sem töldu sig hafa skyldur við
samfélagið sem þeir búa í. Kjáni.
Í einhverri eldsneytishækkunarból-
unni voru bíleigendur hvattir til að skipta
yfir í dísilbíla þar sem þeir væru mun
sparneytnari og umhverfisvænni auk
þess sem ríkisstjórnin myndi stuðla að
minni álögum á dísilolíu í samræmi við
það sem þróunin væri annars staðar.
Margir fóru að þessum tilmælum og sala
á dísilbílum snarjókst. Kjáni.
Á undanförnum árum hafa sprottið
upp allskonar félög um útivist og ferða-
lög. Í þessum hóp eru t.d. skotveiðifélög
og jeppaklúbbar og hefur markmið þess-
ara félaga ekki síst verið að kenna mönn-
um að umgangast landið og veiðar af
skynsemi og ábyrgð til að fækka „krimm-
unum“ sem alltaf vilja leynast innanum.
En nú ber svo við að akkúrat þessi fé-
lagsskapur hefur verið gerður óvelkom-
inn í nýja þjóðgarðinn „okkar“, en
„krimmarnir“ glotta við tönn því nú munu
félögin hætta að setja þeim lífsreglurnar
eftir þessa blautu vatnstusku frá Svan-
dísi, sem nota bene hefur einmitt sýnt svo
vel að ekki þarf að fara að reglum.
Stjórnvöld eru alltaf að brýna fyrir
okkur „kjánum“ þessa lands að sýna
ábyrgð og ráðdeild í fjár-
málum, en þessi sömu stjórn-
völd breyta svo skattalögum
milli jóla og nýárs og breyta
þar með öllum forsendum um
vaxtabætur, barnabætur,
tekjuviðmið og svo fram-
vegis, nota bene afturvirkt
fyrir næstliðið álagningarár.
Svo skilja þessi stjórnvöld
ekkert í því að fólk skuli ekki
treysta þeirra stjórnvisku.
Þegar bankarnir fóru út á
íbúðalánamarkaðinn og betri
aðgangur varð að lánsfé fóru „krimm-
arnir“ af stað og fengu lán langt umfram
það sem nauðsynlegt var til íbúðakaup-
anna og keyptu nýjan bíl, hjólhýsi og
fleira dót á meðan „kjánarnir“ tóku bara
það sem nauðsynlegt var til að koma sér
þaki yfir höfuðið. Þegar kreppan skall svo
á og lánin fóru upp úr öllu valdi tóku
„kjánarnir“ út séreignarsparnaðinn sinn í
hljóði og greiddu niður höfuðstólinn á
meðan „krimmarnir“ vældu og skældu og
biðu eftir að „jafnaðarstjórnin“ lækkaði
höfuðstólinn hjá þeim sem nam skuld-
unum af sumarbústaðnum, hjólhýsinu og
vélsleðanum. Kjáni.
Það mætti því miður endalaust telja
upp dæmi þar sem mönnum, sem sækja
um eftir lögum og reglum, er gert enda-
laust erfitt fyrir með allskyns lagakrók-
um af misvitrum kerfiskörlum á meðan
ekkert er gert í málum þeirra sem fram-
kvæma án þess að spyrja kóng eða prest.
Svo skilja ráðamenn ekkert í að virðingu
fyrir kerfinu og siðferði í þjóðfélaginu
hafi hrakað, en mér finnst eiginlega aðdá-
unarvert hve mikið er þó eftir af heið-
arlegu og góðu fólki í landinu þrátt fyrir
allt.
Ég held og ég vona að ég hafi að mestu
verið „kjáni“ í gegnum tíðina, en nú finnst
mér að sé komið að ögurstund í íslensku
samfélagi. Það er nauðsynlegt að þeir
sem brotið hafa lög verði dæmdir og fólk
beri ábyrgð, ekki það að ég telji mig
hefnigjarnan mann, heldur verður að
skapa fólki þá trú að það sé ekki „kjána-
skapur“ að vera heiðarlegur þegn í þessu
samfélagi.
Kjáni eða krimmi?
Eftir Sigurð Ragn-
arsson
Sigurður Ragnarsson
»… hefur mér fundist
þjóðfélagið ganga út á
að hegna þeim sem vilja
vera heiðarlegir og ábyrg-
ir …
Höfundur er framkvæmdastjóri
á Egilsstöðum.