Morgunblaðið - 21.11.2011, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
KORTIÐ GILDIR TIL
31.01.2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum
og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
AFSLÁTTUR Á LEIKRITIÐ
„EFTIR LOKIN“ SEM SÝNT
ER Í TJARNARBÍÓI
SuðSuðVestur í samstarfi við Tjarnarbíó sýnir leikritið
„Eftir lokin“ eftir Dennis Kelly. Dennis Kelly er eitt
fremsta nútímaleikskáld Breta. Leikrit hans hafa verið
sýnd víða um heim. Verk hans „Elsku barn“ var t.d.
sýnt við fádæma undirtektir í Borgarleikhúsinu.
Eftir lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og
Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi
eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af tog-
streitu og spennu, ástandið er eldfimt og spurningin er:
Þau lifðu hörmungarnar af, en lifa þau hvort annað af?
Leikarar: Lilja Nótt Þórarinsdóttir
og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Leikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson
Sýningar í boði:
17. nóvember
18. nóvember
25. nóvember
26. nóvember
Sýningin hefst kl. 20:00
Almennt verð á sýningu: 3.200 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 2.200 kr.
Miðasala Tjarnarbíós er opin alla virka daga frá kl. 13:00 til 15:00
og klukkutíma fyrir viðburði. Símanúmer 527 2102. Einnig má senda
póst á midasala@tjarnarbio.is
MOGGAKLÚBBUR
Til skamms tíma
deildu menn hart hér
vestra um hvort perla
Vestfjarða héti Dynj-
andi eða Fjallfoss.
Skiptust menn í flokka
og héldu margir fast
með sínu nafni, þó ekki
hafi hlotist af meið-
ingar eða mannvíg líkt
og trúlega hefði gerst á
Sturlungaöld. Þótt enn
eimi eftir af því deilu-
máli, má segja að tíminn hafi skorið
úr um þessar nafngiftir. Einnig
rannsakaði Kjartan Ólafsson, Nestor
vestfirskra fræðimanna, það mál of-
an í kjölinn og varð hans áliti ekki
áfrýjað.
En nú er komið upp annað deilu-
mál af svipuðum toga. Í Morgun-
klúbbnum í sundlauginni á Þingeyri í
Dýrafirði, þar sem mál eru krufin til
mergjar af mikilli speki, deila menn
nú hart um hvort heiðin eða skarðið
milli Fossdals í Arnarfirði og Kirkju-
bólsdals í Dýrafirði heiti Álftamýr-
arheiði eða Fossdalsheiði og við
sjálft liggur að þingheimur berjist,
en sumir eru að vísu hlutlausir í mál-
inu.
Skal nú kalla til nokkra dómbæra
menn í þessu álitamáli og fyrstan
telja þjóðfræðamanninn Kjartan
Ólafsson áðurnefndan. Í Kjart-
ansbók segir svo:
„Leið okkar liggur nú frá Álfta-
mýri út með ströndinni. Spölurinn
frá túnfætinum út að Fossá, sem
einnig er nefnd Fossdalsá, mun að-
eins vera tveir kílómetrar. Dalurinn
sem áin fellur um heitir Fossdalur og
er liðlega fjórir kílómetrar á lengd.
Um hann liggur leiðin á Álftamýr-
arheiði sem á fyrri tíð var alfaraveg-
ur yfir í Kirkjubólsdal í Dýrafirði.
Sjálf heiðin er aðeins mjór hryggur í
544 metra hæð og upp á hana er farið
úr innanverðum dalbotninum. Vetr-
arleið úr botni Fossdals yfir í Kirkju-
bólsdal lá aðeins utar og var þá farið
yfir Kvennaskarð.“ (Firðir og fólk
900-1900, Vestur-Ísafjarðarsýsla,
útg. Útgáfufélag Búnaðarsambands
Vestfjarða 1999, bls.
64.)
Og nú yfir á 19. öld-
ina.
Séra Jón Ásgeirsson
(1804-1886) var prestur
á Álftamýri lengi og
reyndar einnig á
Hrafnseyri og eru af
honum margar sagnir.
Þeir voru systkinasynir
Jón Sigurðsson og séra
Jón og brölluðu margt
saman á yngri árum.
Séra Jón var hraust-
menni svo af bar, fimur
og harðfengur við störf. Svo var hann
yfirlætislaus við alla og ljúfur, að
slíks eru nálega engin dæmi um
mann í hans stöðu. Hann var orð-
lagður kennimaður og andríkur með
afbrigðum, en drykkjugjarn um of.
Svo segir Sighvatur Borgfirðingur.
Eitt sinn á fyrstu prestskapar-
árum sínum á Álftamýri datt séra
Jón í það á Þingeyri, eins og við
mundum orða það í dag, en Sig-
hvatur segir að hann hafi verið við
vín. Þá var staddur þar fyrir utan
verslunina fjöldi franskra duggu-
sjómanna í sömu erindum og prest-
ur, satt að segja bara blindfullir.
Jæja, kemur nú ekki Álftamýr-
arklerkur út úr verslunarbúðinni
með brennivínstunnu í fanginu og
vildu franskir gera tunnuna upptæka
af klerki með það sama, sem ekki lét
lausa tunnu sína og hófust nú slags-
mál og er með ólíkindum að lesa
hvernig séra Jón handlék þá Frans-
menn. Lauk þeim viðskiptum svo að
flótti brast í lið þeirra frakknesku og
reru ákaft út í duggur sínar og sumir
sárir. Ekki er þess getið að séra Jón
hafi særst í bardaganum og ekki var
hann þreyttur til muna, því sama dag
lagði hann á Álftamýrarheiði með
brennivínstunnuna á bakinu og kom
með hana heim til sín um kvöldið.
(Sjá: Helgi Guðmundsson, Vestfirsk-
ar sagnir, 3. hefti, Bókav. Guðm.
Gamalíelssonar 1934, endurútg.
Vestfirska forlagið 2011, bls.272.)
Á herforingjaráðskortinu frá 1913
tala þeir dönsku um Álftamýrarheiði.
Þórður Njálsson, hreppstjóri Auð-
kúluhrepps, heldur sig við einnig við
Álftamýrarheiði í þætti sínum um
hreppinn í Árbók FÍ 1951. Sama er
að segja um örnefnaskrá Álftamýrar
í skrám Örnefnastofnunar. Þá segir
Knútur Bjarnason, bóndi á Kirkju-
bóli í Dýrafirði, sem nú er á fimmta
ári hins tíunda tugar, að alltaf hafi
verið talað um Álftamýrarheiði á sín-
um bæ.
Ól. V. Þórðarson, sem alinn er upp
í Stapadal á norðurströnd Arnar-
fjarðar, segir aftur á móti að í sínu
ungdæmi hafi alltaf verið talað um
Fossdalsheiði. Fé var rekið yfir
Fossdalsheiði og menn fóru í kaup-
stað til Þingeyrar yfir þá heiði en
ekki Álftamýrarheiði.
Andrés G. Jónasson, sem alinn er
upp í Lokinhömrum, segir að engum
hafi dottið í hug að tala um Álftamýr-
arheiði á þeim bæ. Afi hans, Sigurður
Guðmundson, talaði alltaf um Foss-
dalsheiði og sama segir hann að al-
þýðuskáld Auðkúluhrepps, Njáll Sig-
hvatsson, hafi gert.
Kristján Ottósson, sem alinn er
upp í Svalvogum, segir að hann hafi
alltaf vanist því í æsku þar á útnesj-
unum að talað væri um Fossdals-
heiði.
Hvað segja menn um þetta:
Hrafnseyrardalur = Hrafnseyrar-
heiði, Lokinhamradalur = Lok-
inhamraheiði, Gemlufallsdalur =
Gemlufallsheiði, Breiðadalur =
Breiðadalsheiði, Botnsdalur =
Botnsheiði?
Og hvers vegna ætli Vestfirðingar
hyllist til að hafa tvö nöfn á sumum
örnefnum sínum? Það er skemmti-
legt rannsóknarefni fyrir nútíma-
fræðimenn.
„Lagði svo á Álfta-
mýrarheiði með brenni-
vínstunnuna á bakinu“
Eftir Hallgrím
Sveinsson »Hvers vegna ætli
Vestfirðingar hyllist
til að hafa tvö nöfn á
sumum örnefnum sín-
um? – Það er skemmti-
legt rannsóknarefni fyr-
ir fræðimenn okkar.
Hallgrímur
Sveinsson
Höfundur er bókaútgefandi og létta-
drengur á Brekku í Dýrafirði.
Nútímamanneskjan
ég lifi tæknivæddu lífi.
Farsíminn óx fram úr
handlegg mínum sem
nýr líkamspartur á
unglingsaldri, vefsíð-
urnar sem ég get vafr-
að um eru með öllu
ótakmarkaðar, sam-
skiptasíðurnar og -for-
ritin spanna fleiri
hundruð og ég kaupi
mér spjaldtölvu til þess eins að gera
flugferð ánægjulegri. Já, það má
með sanni segja að sá sem dirfist að
kvarta á tímum sem þessum, tímum
tækninnar, er vitleysingur eða enn
eitt vanþakklátt afkvæmi græðg-
innar.
Ég lifi ótrúlega atburði. Ferðast
um heiminn þveran og endilangan,
giftist ást lífs míns og eignast með
henni fjölda barna sem gera mig síð-
an að afa og fyrr en varir er ég sest-
ur inn á elliheimili við sjávarsíðuna,
horfi út um gluggann á fallegu ís-
lensku náttúruna og byrja að fara
yfir líf mitt í huganum.
Ég finn að minnið svík-
ur eilítið, sem það hef-
ur tekið upp á síðast-
liðnar vikur, og beygi
mig því undir rúm eftir
kassa með minningum
mínum í. Ég dusta ryk-
ið af honum, tek lokið
af og sé mér til mikillar
furðu að hann er tóm-
ur.
Hvernig má það
vera?
Hvert fóru minning-
arnar mínar?
Ég tek upp símann og hringi í vini
og vandamenn, leita að öllum hörðu
diskunum í gömlu tölvunum mínum,
símkortum, tala við eigendur allra
samskipta- og netfangasíðna sem ég
notaðist við og geðshræringin magn-
ast er ég loks kemst að sannleik-
anum: Ekkert sem var er eftir. Ég á
engar minningar. Stolið, eytt; hakk-
að, gleymt. Ég á ekki einu sinni
framkallaða mynd af mér og eig-
inkonu minni á brúðkaupsdaginn. Ó,
hvað ég hefði gefið fyrir það eitt að
hafa varðveitt minningar lífs míns.
Handskrifað bréf til vinar míns í
stað þess að eiga ópersónuleg sam-
skipti í gegnum smáskilaboð far-
síma. Framkallað myndir af börnum
og barnabörnum og gengið snyrti-
lega frá í myndaalbúmum í stað þess
að setja þær á einhverja heimsku-
lega samskiptasíðu.
Minningar eiga að vera eitthvað
sem ég get fundið fyrir, horft á frá
mismunandi sjónarhornum, haldið á
og, umfram allt, fundið fyrir. Í stað
þess hugsa ég um að þarna varð
kynslóð minni allverulega á og
tæknin, sem varð of mikil, of hratt,
vann gegn okkur með þeim afleið-
ingum að eftir stendur eyða í minn-
ingu lífsins.
Minningar nútíma-
manneskjunnar: Error
Eftir Ingólf
Sigurðsson » Greinin er hugvekja
til fólks um afleið-
ingar og áhættu þess að
leggja allt sitt traust í
hendur tækninnar.
Ingólfur Sigurðsson
Höfundur er frístundaleiðbeinandi
hjá Reykjavíkurborg.