Morgunblaðið - 21.11.2011, Qupperneq 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
✝ Sigríður Gunn-arsdóttir fædd-
ist í Von við
Laugaveg í
Reykjavík 26. sept-
ember 1927. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
11. nóvember 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Margrét
Gunnarsdóttir,
hússtýra í Von og
Gunnarshólma,
fædd að Yzta-Gili í Langadal
28.12. 1891, d. 1.7. 1985 og
Gunnar Sigurðsson, kaup-
maður, í Von frá Fossi á Skaga,
f. 2.2. 1883, d. 2.2. 1956. Systk-
ini hennar eru: Gyða, f. 20.2.
1923. Guðríður, f. 29.5. 1926,
maki Daníel Helgason, f. 4.5.
1927. Auður, f. 22.1. 1931, maki
Haraldur Árnason, f. 2.12.
1927. Edda, f. 29.12. 1933, maki
Konráð Adolphsson, f. 5.11.
1931.
Fyrri eiginmaður Sigríðar
var Sigurður Jónsson, frá
Einarsstöðum, f. 23.1. 1920, d.
18.6. 2003. Foreldrar hans voru
Jón Haraldsson og Þóra Sigfús-
dóttir, ábúendur að Ein-
arsstöðum í S-Þing. Þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Lilja Sig-
urðardóttir, f. 28.3. 1949, maki
Óli G. Jóhannsson, f. 13.12.
1945, d. 20.1. 2011. Börn þeirra
eru: a) Örn, f. 11.7. 1971, maki
Christina E. Nielsen, börn
þeirra eru: Sigurd, Freja og
Anna. b) Sigurður, f. 5.2. 1973,
áttu góða æsku og eyddu sumr-
um á Gunnarshólma þar sem
móðir þeirra Margrét stjórnaði
af skörungsskap á meðan
Gunnar faðir þeirra sá um kjöt-
verslunina í Von. Eftir hefð-
bundna skólagöngu fór Sigríð-
ur (Sísí) ásamt Gígju systur
sinni í Kvennaskólann í Reykja-
vík. Sísí var í Fimleikaflokki
Ármanns og sýndi sá flokkur
víða og fór meðal annars í sýn-
ingarferðalag til Svíþjóðar. Sig-
ríður fluttist með fyrri eig-
inmanni sínum og dóttur
búferlum til Vancouver í Kan-
ada, þar sem Jón Gunnar fædd-
ist. Þar nam hún og lærði
tískufræði. Þegar heim kom
stofnaði hún Tískuskólann, sem
var sá fyrsti sinnar tegundar
hér landi. Hún varð fljótlega
andlitið á bakvið Fegurð-
arsamkeppni Íslands rak hana
og stjórnaði til margra ára.
Sigríður vann alla tíð mikið að
málefnum sem snertu tísku,
fegurð og heilsu. Stofnaði hún
meðal annars Heilsulindina á
Hverfisgötu sem var ein fyrsta
heilsuræktin sem hér var rekin.
Um árabil starfaði hún með Jó-
hanni Marel eiginmanni sínum í
fyrirtækinu JOCO L.M. Jó-
hannsson & Co. Hún var mikil
ferðakona og íslensk náttúra
og ferðalög sífellt í huga henn-
ar.
Útför Sigríðar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 21. nóv-
ember 2011, og hefst athöfnin
kl. 13.
maki Áshildur Hlín
Valtýsdóttir, börn
þeirra eru: Viktor,
Anton, Lilja Kar-
ítas og Katrín Líf.
c) Hjördís, f. 28.9.
1974, maki Björn
L. Þórisson, börn
þeirra eru: Þórir
Örn og Jóhann
Valur. Sonur Hjör-
dísar frá fyrra
sambandi er Ólafur
Hrafn, faðir hans
Kjartan Ólafsson. d) Hrefna, f.
9.12. 1977, maki Sverrir Gests-
son, börn þeirra eru: Salka,
Sólon og Sölvi. 2) Jón Gunnar
Sigurðsson, f. 11.4. 1955. Eig-
inkona hans er Cheryl Bean
(Jonsson), f. 31.12. 1956, hún á
tvær uppkomnar dætur. Fyrri
eiginkona Jóns er Elsa Ósk-
arsdóttir, börn þeirra eru: a)
Kristín, f. 17.5. 1980, maki Ótt-
ar Eggertsson, börn þeirra eru:
Elísabet, Jón Eggert og Alex-
ander Óli. b) Davíð, f. 14.10.
1987, maki Marissa Jonsson. c)
Sara, f. 18.4. 1992.
Seinni eiginmaður Sigíðar
var Jóhann Marel Jónasson,
stórkaupmaður í Reykjavík, f.
30.6. 1926, d. 12.12. 1991. For-
eldrar hans voru hjónin Jónas
Jónsson og Jóhanna Ingibjörg
Bjarnadóttir. Börn Jóhanns
Marels frá fyrra hjónabandi
eru: Viðar Marel, Birgir Marel
og Björk.
Systurnar fæddust og ólust
upp í Von á Laugavegi 55. Þær
Elsku hjartans mamma mín,
þetta var heldur óvænt en þú
kvaddir fallega.
Lífið þekki ég ekki án þín.
Ekki eru allir svo lánsamir að
hafa mömmu sína með í lífs-
hlaupinu.
Við gengum saman hlýjar
götur, grýttar, síðan góðar og
loks ljúfar.
Takk fyrir lífið sem þú gafst
mér í allri sinni litadýrð og
þroskann að takast á við það.
Minningin um einstaka konu
sem fór ótroðnar slóðir mun lifa
í hjarta mínu.
Ástarþakkir, mamma mín, ég
elska þig.
Þín
Lilja.
Sísí amma skildi við þennan
heim hinn 11.11.11. Blessuð sé
minning yndislegrar og tignar-
legrar ömmu.
Fagnaðarfundirnir hafa verið
magnaðir leyfum við okkur að
halda þarna uppi, Jói afi, Óli
tengdasonur, Píla og Perla hafa
tekið á móti henni með opnum
örmum.
Þegar við heimsóttum Meist-
aravelli 33 og síðan Laugaveg
55 hér á árum áður var alltaf
tilhlökkun í ungu hjarta því Sísí
amma og Jói afi tóku alltaf á
móti manni eins og kóngafólk
væri á ferðinni. Alltaf var okkur
gefið vel að borða, ísköld mjólk
sem fyrirfinnst hvergi nema í
minningunni sem og banani úr
ísskápnum, svo fékk maður að
kíkja í nammiskúffuna og gauka
smávegis að Pílu og Perlu í leið-
inni. Laumað var að okkur Co-
coa Puffs-pakka áður en heim í
Kelduhverfið var haldið, þvílíkt
sport!
Sísí amma lagði mikla
áherslu á að við værum heið-
arleg og samkvæm sjálfum okk-
ur og einnig var hún mikil
smekkmanneskja og tókum við
alltaf mikið mark á því sem hún
sagði um útlit og tísku.
Eins og þegar María litaði
hárið á sér dökkt hérna um árið
þá sagði Sísí amma ekki neitt
en svo lýsti hún það aftur og þá
sagði hún svo ofurvarlega eins
og henni einni var lagið: „María
mín, viltu gera það fyrir mig að
lita hárið þitt ekki aftur svona
dökkt.“
Einnig er það okkur systk-
inunum minnisstætt þegar
amma og afi tóku okkur með á
landsleiki og þá var hún alltaf
klár með ullarteppin, treflana
og húfurnar ef það skyldi nú
kólna.
Elsku Sísí amma, við kveðj-
um þig með þakklæti og mun-
um minnast þín með góðum
minningum um ókomna tíð.
Elsku Lilja, Nonni og fjöl-
skyldur, við vottum ykkur okk-
ar dýpstu samúð. Takk fyrir allt
og allt.
Jóhann Marel, Erla
Huld og María Björk
Viðarsbörn.
Ef þú bara vissir elsku amma
hvar við erum stödd þessa
stundina. Hér sitjum við systk-
inin saman. Við eldhúsborðið á
Gunnarshólma. Á æskuheimili
þínu. Einstök stund.
Í gegnum tíðina var fjarlægð-
in oft mikil. Þrátt fyrir að
landshlutar og jafnvel heims-
höfin hafi skilið okkur að þá
fylgdist þú ávallt stolt með stór-
fjölskyldunni. Það var einstak-
lega hlýtt og notalegt að koma í
heimsókn á þitt fallega heimili.
En þú varst engin pönnukö-
kuamma, eins og þú orðaðir það
sjálf.
Nú glottir þú út í annað og
við líka. En einmitt fyrir það
erum við svo þakklát. Þú varst
engri lík. Sagan þín er engri lík.
Þú varst sjálfstæð og sterk
kona sem fórst ótroðnar slóðir.
Ávallt skrefi á undan. Frum-
kvöðull og brauðtryðjandi.
Sama hvað á dundi þá barstu
höfuðið hátt. Þú varst glæsileg
amma. Einstaklega ljúf en á
sama tíma algjört hörkutól. Af
slíkri kjarnakonu er hægt að
læra ótal margt. Það gerðum
við systkinin.
Minning þín lífir áfram í
hjörtum okkar allra. Sögu-
stundirnar verða án efa margar
í framtíðinni. Ömmu Sísi sög-
urnar geyma svo ótal margt.
Fullar af fróðleik. Skondnar og
jafnvel snúnar.
Takk fyrir allt, elsku amma
okkar.
Þín ömmubörn,
Örn, Sigurður, Hjördís
og Hrefna og gullmol-
arnir þrettán.
Ógleymanlegt er það okkur,
þegar Sigríður sem í okkar hópi
var kölluð „Sísí“ setti af stað
Tískuskóla Sigríðar Gunnars-
dóttur. Þetta var kærkomið
tækifæri fyrir ungar konur,
sem kannski voru svolítið
óframfærnar og feimnar. Þarna
opnaðist nýr heimur, allt var
þetta þessari framsýnu konu að
þakka.
Ævinlega verður undirrituð
þakklát fyrir þetta góða tæki-
færi. Tískusýningar voru þá
talsverður viðburður í skemmt-
analífi okkar. Þá var gaman.
Nýlega birtist í fjölmiðlum
umfjöllun varðandi æsku þess-
arar merku konu.
Fimm voru þær systurnar,
dætur Margrétar og Gunnars
kaupmanns í Versluninni Von á
Laugavegi í Reykjavík.
Þessar fimm systur voru
hver annarri glæsilegri. Enda
voru þau Margrét og Gunnar
afar flott hjón.
Nú er Sísí okkar kvödd með
miklum söknuði og fjölskyldu
hennar er send samúð og bless-
un Guðs.
Edda Sigrún Ólafsdóttir.
Sigríður Gunnarsdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma – þú
ert með fallegt og gott
hjarta.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann
mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Hvíldu í friði.
Þín
Filippía.
✝ KarólínaKristín Jóns-
dóttir Waagfjörð
fæddist í Vest-
mannaeyjum 19.
apríl 1923. Hún
lést á Droplaug-
arstöðum 10. nóv-
ember 2011. For-
eldrar hennar
voru Jón Waag-
fjörð, málara- og
bakarameistari, f.
15.10. 1883 við Seyðisfjörð, d.
2.3. 1969 í Vestmannaeyjum, og
Kristín Jónsdóttir húsmóðir, f.
7.8. 1890, Efri-Holtum Eyjafjöll-
um, d. 21.11. 1968 í Vestmeyj-
um. Systkini Karólínu eru: Jón,
f. 24.2. 1920, d. 17.9. 2005, Sím-
on, f. 1.5. 1924, d. 13.12. 2007,
Jónína, f. 18.10. 1926, d. 10.1.
2009, Óskar, f. 15.2. 1929, Auð-
ur, f. 15 2. 1929, d. 15.9. 2010,
Vigfús, f. 17.2. 1930, d. 21.7.
2010, og Anna, f. 2.9. 1934, d.
24.4. 2002.
Karólína giftist 18.9. 1948
Snorra Páli Snorrasyni, hjarta-
og lyfjasérfræðingi og prófess-
or við læknadeild Háskóla Ís-
lands, f. 22.5. 1919, d. 16.5.
2009. Foreldrar hans voru
Snorri Halldórsson, héraðs-
ingarhjúkrun 48-49 og sér-
hæfða hjúkrun við Vífilsstaði
sama ár. Karólína fylgdi manni
sínum til USA í sérnám við
Massachusettes General Hospit-
al í Boston. Hún vann þar sem
hjúkrunarfræðingur þann tíma
sem hann var þar við nám. Til
gamans má geta þess að á
þessu tímabili annaðist hún
m.a. Eisenhower Bandaríkja-
forseta. Eftir heimkomuna
starfaði hún sem hjúkr-
unarfræðingur á Landspít-
alanum til ársins 1959. Karól-
ína stóð ávallt sem klettur við
hlið eiginmanns síns og fylgdi
honum ávallt á læknaþing og
ráðstefnur erlendis, allt þar til
hann hætti störfum. Karólína
bjó mestallan tímann í Hvassa-
leitinu og sinnti heim-
ilisstörfum ásamt fjölskyldunni
jafnframt því að vinna á lækna-
stofu eiginmanns síns. Sam-
hliða þessu gafst henni samt
tími til að sinna áhugamálum
sínum, sem voru m.a. alls kon-
ar hannyrðir, dans og bókalest-
ur.
Karólína verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í dag, 21.
nóvember 2011, og hefst at-
höfnin kl. 15.
læknir og símstjóri
og oddviti á
Breiðabólstað á
Síðu í V-Skaft., f.
18.10. 1889, d. 15.7.
1943, og Þórey Ein-
arsdóttir, f. 18.9.
1888, d. 29.3. 1989,
frá Hömrum í Eyja-
firði. Karolína og
Snorri eignuðust
tvö börn þau eru:
1) Snorri Páll, f.
24.2. 1959, maki Helga S. Þór-
arinsdóttir, f. 16.11. 1959 og
eiga þau þrjú börn: Þórarin, f.
29.8. 1979; Snorra Pál, f. 30.9.
1984, maki Ilze Lakstigala, f.
13.1. 1988; og Huldu Dís, f.
20.12. 1999. 2) Kristín, f. 8.2.
1963, maki Magnús Jakobsson,
f. 5.8. 1954 og eiga þau þrjú
börn: Söndru, f. 8.8. 1984, maki
Andri Reyr Vignisson, f. 21.1.
1982 og eiga þau þrjú börn;
Reyni Pál, f. 30.9. 1987, maki
Katrín Einarsdóttir, f. 12.2.
1988 og eiga þau eitt barn; og
Kristínu Bryndísi, f. 30.3. 1992.
Karólína lauk námi frá
Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja 1940, nam hjúkr-
unarfræði við HSÍ 46-48 og
skurðstofuhjúkrun 1948, fæð-
Elsku amma mín.
Ég mun aldrei gleyma því hvað
það var gott að koma til ykkar
afa. Þegar ég var lítil var alltaf
svo margt að skoða og gramsa í
og leyndust oft stórir jafnt sem
litlir fjarsjóðir í skápunum í
Hvassaleitinu. Ég gat alltaf kom-
ið inn í eldhús til þín og fengið
rúlluost (upprúllaðan ost) eða
eitthvert annað góðgæti sem
leyndist í skápunum og svo að fá
að koma í mat til ykkar þar sem
ég fékk að bragða á heimsins
bestu sósu sem mér fannst svo
góð að þú lagðir alltaf teskeið við
hliðina á matardisknum svo ég
gæti sötrað á henni.
Þín verður sárt saknað, elsku
fallega og góða amma mín, ég
mun ávallt geyma góðu stundinar
sem við áttum saman.
Takk fyrir allt saman.
Elska þig, amma.
Sandra Waagfjörð.
Nú er kveðjustund, elskuleg
mágkona mín er farin eftir far-
sæla langa ævi, lengst af við góða
heilsu, en tókst á við Alzheimers-
sjúkdóm síðustu árin. Minningar
eru margar og góðar og eru þær
elstu sextíu og fimm ára. Elsti
bróðir minn Snorri Páll var svo
lánsamur að kynnast ungri og fal-
legri hjúkrunarkonu þegar hann
var við læknanám og þegar hann
veiktist hastarlega af lömunar-
veiki og var vart hugað líf þá stóð
þessi unga hjúkrunarkona, Kar-
ólína Waagfjörð, eins og klettur
við hlið hans og allar götur síðan
á langri ævi. Hennar gleði var
sambúðin með Snorra og börnun-
um Snorra Páli og Kristínu, einn-
ig vann hún með manni sínum á
læknisstofu hans. Hún var mikil
húsmóðir og naut þess að taka á
móti vinum og vandamönnum.
Fjölskylda hennar frá Vest-
mannaeyjum var stór og mjög
skemmtilegt fólk og því mikil
samskipti á milli fjölskyldna okk-
ar. Þegar Snorri bróðir var við
nám í hjartasjúkdómum við Har-
vard í Boston á sjötta áratugnum,
fór ég í heimsókn til þeirra. Kar-
ólína var þá að vinna sem hjúkr-
unarkona við spítalann og var ég
þá stoltur af mágkonu minni, ég
heyrði hvað amerísku læknarnir
hrósuðu gáfum hennar og færni
og hve vinsæl hún var meðal sjúk-
linga. Seinni árin áður en þau
Snorri fóru á hjúkrunarheimili,
helgaði hún börnunum Snorra
Páli og Kristínu, tengdabörnum
og barnabörnum alla sína ást og
umhyggju. Seinustu árin bjuggu
þau Snorri á Droplaugarstöðum
og nutu þar fyrirmyndarumönn-
unar svo sómi er að. Elsku
Snorri, Kristín og fjölskyldur,
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Guðmundur Snorrason
og fjölskylda.
Karólína Kristín
Jónsdóttir Waagfjörð
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir og afi
ÁRNI MAGNÚSSON
skipstjóri
Suðurmýri 16
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 24.nóvember kl.13:00
Móeiður Marín Þorláksdóttir,
María Árnadóttir, Pjetur Stefánsson,
Þórdís Árnadóttir, Daniel Marston,
Þorlákur Már Árnason, Edda Huld Sigurðardóttir,
Jensína G. Magnúsdóttir,
og barnabörn.
Okkar ástkæri
FRIÐRIK AXEL ÞORSTEINSSON
Markarvegi 4
Reykjavík
lést á Blóðlækningadeild 11G
Landspítalanum 19. nóvember.
Helga Þ. Einarsdóttir,
Inga Ísaksdóttir,
Matthías Örn Friðriksson, Svafa Grönfeldt,
Bjarki Hrafn Friðriksson, Bryndís Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Dröfn Friðriksdóttir, Gunnar Hafsteinsson,
og barnabörn.
Ástkær systir mín og föðursystir
ARNBJÖRG MAGGA MAGNÚSDÓTTIR
frá Traðarbakka, Akranesi
Árskógum 8, Reykjavík
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbær
4.nóvember síðastliðinn. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elín Aðalheiður Magnúsdóttir,
Magnús S. Guðmundsson,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
og fjölskyldur.