Morgunblaðið - 21.11.2011, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Athens-sveitina R.E.M. þraut
örendi ekki alls fyrir löngu eftir
meira en þrjá áratugi í fremstu víg-
línu dægurtónlistarbröltsins. Það
var sannarlega kominn tími á hana,
hún hafði lítið fram að færa sköp-
unarlega hin síðustu ár og það var
rétt ákvörðun hjá þeim Mike Mills,
Peter Buck og Michael Stipe, þrenn-
ingunni sem skipaði bandið undir
restina, að henda inn handklæðinu
svo ég sæki nú myndlíkingu til
hnefaleikaíþróttarinnar. Að kveðju-
gjöf fáum við aðdáendur bústna
safnplötu þar sem ferillinn í heild
sinni er gerður upp. Á Part Lies,
Part Heart, Part Truth, Part Gar-
bage: 1982-2011 er bæði að finna lög
frá I.R.S.-árum sveitarinnar, þegar
hún var að taka út glæsta þroska-
kippi sína á níunda áratugnum og
svo þau ár sem sveitin gerði út frá
Warner-risanum. Þrjú ný lög prýða
þá pakkann, en þau er eingöngu að
finna hér og er um að ræða loka-
hljóðritanir sveitarinnar.
Það er ekki oft sem maður veltir
svona safnpökkum sérstaklega fyrir
Þá er það síðasti naglinn í kistuna …
R.E.M. kveður með safnplötu Inniheldur þrjú lög sem eru lokahljóðritanir sveitarinnar
sér, þetta er eðlilegur hlutur af
poppbransanum og ekkert sérstakt
við þennan pakka R.E.M. þannig
séð. Ástæða þessara skrifa liggur
hins vegar í gagnrýni sem ég las á
þeim eðla – og umdeilda – vef Pitch-
fork en þar er platan hafin upp til
skýjanna sem og hljómsveitin. Ritari
fer mikinn í að dásama hljómsveitina
og gerir það á skýru og skiljanlegu
máli. Skrúðyrði, tilgerð, upphafnar
og þrællyklaðar lýsingar hafa verið
máttur og megin Tónkvíslarinnar og
því kom þessi dómur á óvart. Og líka
að hann hafi verið um hljómsveit
eins og R.E.M., sem er jafnan rifin
niður af miðlum af þessu tagi, þar
sem nýjabrum og „hipp- og kúlheit“
skipta öllu. Mig grunar helst að
R.E.M. eigi hreinlega svona stóran
stað í hjarta meðal-Bandaríkja-
mannsins eftir allt saman. Þannig að
þegar það blasir loksins við að dæm-
ið sé búið sameinist allir kanar, Jói á
bolnum, herra Hipp og dr. Kúl í sorg
vegna þess. Rýnir Pitchfork, Matt-
hew Perpetua, bendir á að safnið
gefi mjög gott yfirlit yfir ferilinn
sem heild, smáskífum sé blandað við
minna þekkt lög af eftirtektarverðri
natni. Ég vil svona næstum því vera
sammála honum, mér sýnist þetta
verk hafa tekist eins vel og hægt er.
Hér hefur eðlilega þurft að nota
skurðarhnífinn af krafti og sumt
hreinlega getur ekki farið inn, eigi
að búa til tveggja diska heildstætt
safn (athugið að sveitin gaf út fimm-
tán hljóðversplötur). Auðvitað hefði
ég viljað fá fleiri eldri lög inn á plöt-
una (ca. tvö lög af hverri) en í tilfelli
platna eins og Green og Automatic
for the People dugir ekkert minna
en fjögur lög, eðli málsins sam-
kvæmt. Plötur eins og Up og Reveal
fá eitt lag og síðasta plata, Collapse
into Now, þrjú sem á eftir að verða
of mikið (menn sjá það ekki núna,
upprifnir af nýja barninu). Nýju lög-
in eru ekkert sérstök. „A Month of
Saturdays“ er reyndar verulega
slæmt, en gleymum því ekki að
R.E.M., ein fárra hljómsveita, hafði
ríkan húmor fyrir því þegar hún var
ekki í stuði eða lét eitthvað frá sér
sem var hreint og beint lélegt (eins
og sannast á hinni dásamlegu b-hliða
safnplötu Dead Letter Office). Matt-
hew Perpetua lokar gagnrýni sinni
með þeirri tilgátu að R.E.M. hafi
verið búin að setja markið það hátt
að í seinni tíð hefði verið hægt að
túlka eitthvað sem væri „helvíti
gott“ sem hrein afglöp í ljósi þeirra
snilldarverka sem þegar lágu fyrir.
Þetta er góður punktur.
- US WEEKLY
HHHH
- BACKSTAGE
HHHH
ROWAN ATKI
HHH
- K.I. -PRESSAN
- OK
HHHHH
- THE SUN
HHHH
MÖGNUÐ
GAMANMYND
VIKMYNDIR.IS
HHHH
GILSHÖLL
NSON
.IS
K
- EMPIRE
HHHH
SÝND Í E
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D VIP
TOWERHEIST kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 14
THE IDES OF MARCH kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 8 - 10:30 2D 16
THEHELP kl. 5:40 - 8:20 2D L
JOHNNYENGLISHREBORN kl. 5:50 2D 7
/ ÁLFABAKKA
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:40 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:30 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 8 - 10:30 2D 16
ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:30 - 8 3D 7
THEHELP kl. 10:20 2D L
ÞÓR kl. 5:30 3D L
THETHREEMUSKETEERS kl. 5:30 3D 12
TWILIGHT:BREAKING kl. 8 2D 12
IMMORTALS kl. 10:30 3D 16
WHATS YOUR NUMBER kl. 8 - 10:20 2D 12
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 10:40 2D 16
THEHELP kl. 5:20 - 8 2D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 - 10:30 2D 12
THESKINILIVEIN kl. 8 2D 16
THETHREEMUSKETEERS kl. 10:20 2D 12
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL
OG KRINGLUNNI
SÝND Í EGILSHÖLL OG
AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
NÆSTU SÝNINGAR Á ÞRIÐJUDAGSÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
Leikstjóri: James Levine
Leikarar: Marina Rebeka, Barbara Frittoli,
Moja Erdmann, Ramón Vargas, Mariusz Kwiecien,
Luca Pisaroni, Joshua Bloom.
SVIKRÁÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
MAGNAÐUR ÞRILLER
100/100
PHILADELPHIA
INQUIRER
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
„MÖGNUÐ OG VEL
GERÐ MYND“
-H.V.A. - FBL
HHHH
www.operubio.is
Satyagraha
Phillip Glass
23. nóv kl.18:00
Endurflutt
-
Á
VERTU MEÐ ÞEIM
FYRSTU Í HEIMINUM
TIL AÐ SJÁ HIÐ
MAGNAÐA ÆVINTÝRI
UM BELLU, EDWARD
OG JACOB
Lokaútgáfa R.E.M. „… í seinni
tíð hefði verið hægt að túlka eitt-
hvað sem væri „helvíti gott“ sem
hrein afglöp í ljósi þeirra snilld-
arverka sem þegar lágu fyrir.“