SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Qupperneq 2
2 13. nóvember 2011
Við mælum með
Föstudagur 18. nóvember
Todmobile leikur í fyrsta sinn í
Hörpu, nánar tiltekið í Eld-
borg. Hljómsveitin kemur fram
í öllu sínu veldi og meira til því
með í för verða bakradda-
söngvarar og tveir trommu-
leikarar auk strengjasveitar og
kórs. Todmobile mun spila öll
sín þekktustu lög ásamt
nokkrum nýjum en ný plata
kemur út í nóvember.
Todmobile í Hörpu
13 Litla stúlkan og hafið
Ellefu ára stúlka, Terry Jo Duperrault, varð heimsfræg á svipstundu
þegar hún fannst eftir fjóra sólarhringa á pínulítilli korkfleytu í hafinu.
16 Skemmtikraftur í tæpa öld
Hjálmar Gíslason er elstu kynslóðinni að góðu kunnur. Hann ruddi
veginn fyrir þekktustu skemmtikrafta landsins með gamanvísum.
24 Listiðnaður verður hönnun
Arndís S. Árnadóttir er margfróð um íslenska húsgagnahönnun og var
að senda frá sér bókina Nútímaheimilið í mótun.
26 Með velferð og vellíðan …
Hinn launhelgi glæpur – Kynferðisbrot gegn börnum nefnist rit sem
nýverið kom út í ritstjórn Svölu Ísfeld Ólafsdóttur.
31 Missti Alex Stepney
málið?
Fótboltaspilið nefnist nýtt borðspil fyrir 12
ára og eldri eftir Guðjón Inga Eiríksson. Þar
er að finna 1.800 spurningar um fótbolta.
36 Fór að gera sósur
með fiski
Rúnar Marvinsson snýr aftur á veitingastað-
inn Við Tjörnina og eldar þar góða og gamla rétti.
Lesbók
42 Skrásetningarbrjálæðið …
„Bókmenntatexti er vefnaður, þessi bók er vefnaður,“ segir Sigurður
Pálsson um nýja bók sína, Bernskubók.
47 Þar sem fjöllin faðma …
Í Kanada fagna menn afmæli íslensku deildarinnar í háskólanum í
Winnipeg með mörgum íslenskum uppákomum.
2
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson af Gerði G. Bjarklind.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Það er ekki mikið talað á mið-vikudagskvöldum í Peða-klúbbnum, taflmennirnir áskákborðunum eru þögulir og
helst að heyrist uml og aml í mönn-
unum sem hreyfa þá. Oft er aðeins eitt
og eitt orð auðkennanlegt: „Fjand…!“
Stundum heilar setningar: „Nei, hvað
var ég að gera!?“
Menn eiga það líka til að skella upp
úr, þá yfirleitt að eigin afglöpum, en
einstaka sinnum vegna þess að þeir
koma sjálfum sér á óvart með snilld-
arleik. Svo lýsa þeir sjálfum sér í þriðju
persónu: „Sjáðu, hvað hann er magn-
aður!“
Peðaklúbburinn var stofnaður árið
1993 þegar starfsemin í Taflfélagi Seltjarnarness
lagðist niður, en allir átta meðlimir klúbbsins voru
félagar í TS. Skákfundir eru hálfsmánaðarlega á
veturna, en það er gefið frí á sumrin.
„Það er tvöföld umferð á hverju kvöldi,“ segir
Garðar V. Guðmundsson, sem var burðarásinn í
Taflfélagi Seltjarnarness og heldur utan um alla
þræði í Peðaklúbbnum. „Svo höfum við alltaf haft
réttinn á því þessir slöku að vera með sjö mínútur,
en þeir sterkari hafa aðeins fimm.“
Þrír eru í úrvalsflokki fimm mínútna manna,
Ögmundur Kristinsson, Jón Úlfljótsson, Jón
Steinn og Gylfi Gylfason. En hinir sem fá sjö mín-
útur eru Garðar, Guðjón Þorkelsson, Ómar Egils-
son og Theodór Guðmundsson. „Þegar við keppt-
um í deildakeppninni á sínum tíma með Taflfélagi
Seltjarnarness, þá var pabbi hans Gylfi Magnússon
einn af okkar albestu skákmönnum,“ segir Garð-
ar. „Hann lést í fyrra.“
– Og það er alltaf kaffi og með því?
„Já, það eru alltaf kökur og meðlæti þegar búið
er að tefla helminginn,“ segir Garðar. „Konurnar
sjá náttúrlega um það. Þú naust góðs af því!“
Þennan miðvikudag er teflt heima hjá Jóni
Steini, Gylfi nær efsta sætinu naumlega með 12½
vinningi í 16 umferðum og Jón Úlfljótsson er ann-
ar með 12 vinninga.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Garðar í hörkuskák við Jón Ú. og Peðsfélagarnir í kring. Þeir vilja gjarnan etja kappi við aðra heimaklúbba.
Morgunblaðið/Kristinn
Æfing í Peðaklúbbnum
Albert etur kappi við Jón Ú., Jón Steinn fylgist með af næsta borði.
Tvípöndurnar Po og De De voru í banastuði þegar þær léku við móð-
ur sína, Hua Zui Ba, í dýragarðinum í Madríd á Spáni á föstudaginn.
Tvípöndurnar fæddust 7. september í fyrra fyrir atbeina gervi-
frjóvgunar sem spænskir og kínverskir vísindamenn stóðu að.
Pandabirnir höfðu ekki fæðst á Spáni í tæp 30 ár þar á undan.
Veröldin
Reuters
Tápmiklar tvípöndur
18. nóvember
Freddy Merc-
ury lést 24.
nóvember
1991. Nú 20 ár-
um síðar verður minning hans
heiðruð með tónleikum í Hofi á
Akureyri kl. 20. Söngvarar:
Matthías Matthíasson, Friðrik
Ómar, Magni Ásgeirsson, Valur
Hvanndal, Svenni Þór og Hulda
Björk Garðarsdóttir.
Kirsuberja-
garðurinn
Verkið er af
mörgum talið
eitt besta leik-
verk allra tíma, angurvært stór-
virki þar sem gaman og alvara
vegast listilega á. Sýnt í Borg-
arleikhúsinu, næst 16. og 18.
nóv. Leikstjóri er Hilmir Snær
Guðnason.