SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Side 7
13. nóvember 2011 7
djúpt í augu hvort annars. Þessi
stórkostlega tækni hefur þó ekki
leyst allan okkar vanda. Ég bíð
spennt eftir að maðurinn í tölv-
unni geti sótt á leikskólann, sett í
þvottavél, smellt á mig kossi og
baðað strákastóðið sitt. Það gerir
hann ekki í gegnum skype. Ekki
enn, að minnsta kosti.
Merking orðsins er breytt en
upprunin snertir mig. Grasekkj-
ur nútímans endurheimta menn
sína og eiga nokkra góða daga
eða jafnvel vikur saman heima í
Nýlega komst ég aðmerkingu orðsinsgrasekkja. Það er tal-ið eiga uppruna sinn í
dönsku og vísar til stúlku sem á
stutta sælustund með huggu-
legum sveitastrák í grasi gróinni
sveit, sofnar svo og vaknar ein í
heyinu þar sem pilturinn er
horfinn en hefur hugsanlega
skilið eftir lítið líf innra með
henni. Stúlkunnar bíður þá sú
skömm að ala lausaleikskróga í
heiminn. Það er langur vegur frá
þessum hugsanlega uppruna
orðsins að því hvernig við notum
orðið í dag. Sem atvinnu-
grasekkja tel ég mig vera sér-
fræðing í inntaki hugtaksins. Hér
á Íslandi erum við ansi margar
sem kveðjum okkar heittelskaða
með kossi þegar hann fer til
vinnu í marga daga eða vikur í
senn og tökum við börnum og
búi á meðan. Ég ætla meira að
segja að þetta sjómannskonu-
heilkenni sé stór þáttur í sjálfs-
mynd íslenskra kvenna; partur
af þeirri trú okkar að við séum
sterkar og sjálfstæðar valkyrjur.
Sjálfri finnst mér nauðsynlegt að
geta tekist jöfnum höndum á við
hversdagsleikann ein og með
betri helmingnum. Það er þó
ekki tekið út með sældinni að
stýra heimilinu af sömu festu og
karlinn í brúnni í gegnum öldu-
dali fjörugs heimilislífs. Eitt af
því sem aldrei bregst á mínu
heimili er hið svokallaða „lögmál
10. dagsins“ en það gengur út á
að þegar ég hef glímt við þrjá
sérlega lífsglaða, háværa og
uppátækjasama syni mína í tíu
daga fer geðheilsan að gefa sig.
Þennan tíunda dag þarf ég að
minna mig á að taugaáfallið sé
ekki tímabært því enn séu þrjár
vikur í að pabbi þeirra komi aftur
heim. Það merkilega við þetta
lögmál er nefnilega að það á sinn
stað og stund en líður svo hjá.
Vissulega hefur margt breyst á
gervihnattaöld og öll samskipti
eru liðlegri nú en áður, þegar
formæðurnar horfðu á eftir
mönnum sínum út á úfið hafið.
Facebook, gmail og skype gera
það að verkum að við tölum
saman nær daglega og getum
jafnvel horft stíft á tölvuskjáinn
og ímyndað okkur að við horfum
grasi gróinni sveitinni. Þótt ég hafi
stundum staðið mig að því að
kvíða heimkomu hans þar sem ég
verð ekki einráð á heimilinu er
tíminn saman, tími samvinnu og
samninga, góður tími.
Grasekkjublús
Hvaðan kemur eiginlega orðið „grasekkja“?
Morgunblaðið/Ernir
Móður-
hlutverkið
Agnes Ósk
Sigmundardóttir
Elísabet Englandsdrottning er
sjaldan illa upplögð, blessunin,
enda þótt hún sé orðin hálf-
níræð. Það lá svona líka ljóm-
andi vel á henni þegar hún stakk
við stafni í strandbænum Mar-
gate í Kent á föstudaginn en sá
ágæti bær ratar ekki oft í heims-
fréttirnar.
Veröldin
Reuters
Drottningin
í Margate