SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 8
8 13. nóvember 2011
Norræna tískutvíæringnum lýk-ur núna um helgina í Banda-ríkjunum en sýningin hefurstaðið yfir frá 30. september.
Þessi stærsta samsýning norrænna fata-
hönnuða í Bandaríkjunum var haldin í
Norræna sögusafninu í Seattle. Með áhuga-
verðum innsetningum hefur verið varpað
ljósi á margt það fremsta í norrænni fata-
hönnun með áherslu á Ísland, Grænland og
Færeyjar. Aðsókn hefur verið mikil á sýn-
inguna en tæplega sjö þúsund manns hafa
nú heimsótt sýninguna.
Sýningin var haldin undir nafninu Look-
ing Back to Find our Future og var list-
rænn stjórnandi hennar listakonan Hrafn-
hildur Arnardóttir en það er Norræna
húsið í Reykjavík sem stendur að sýning-
unni ásamt safninu.
Norræna sögusafnið (The Nordic Her-
itage Museum) er hið eina í Bandaríkjunum
sem lýsir menningararfleifð Norður-
landanna fimm, Danmerkur, Finnlands,
Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Safnið er því
því kjörinn vettvangur til að sýna norræna
tísku eins og meðfylgjandi myndir bera
með sér en á þeim má sjá dæmi um hönnun
nokkurra þeirra Íslendinga sem tóku þátt.
Guðdómleg græn silkislá frá Kron by KRONKRON.
Spaksmannsspjarir tóku þátt í sýningunni.
Ljósmyndir/Áslaug Íris Friðjónsdóttir
Skór frá Kron by KRONKRON.Fötin eru frá Rain Dear og taska frá Hildi Yeoman.
Mikilfengleg skegghúfa frá Vík Prjónsdóttur
en fötin eru frá Munda.
Steinunn
sameinar
fortíð, nú-
tíð og
framtíð
í þessum
fötum.
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Tískan læt-
ur söguna
lifna við
Stærsta samsýning
norrænna fatahönn-
uða í Bandaríkjunum
Ragna
Fróðadóttir
notast við
íslenska
arfleifð.
Hönnun Steinunnar Sigurðardóttur
lifnar við í sögulegu samhengi.