SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Qupperneq 20
20 13. nóvember 2011
Tíska
Svarthvítt frá
sjötta áratuginum
Eitt af síðustu verkum Amy Winehouse var að hanna
fatalínu í samvinnu við tískumerkið Fred Perry. Línan
er nú komin í sölu í góðri sátt við fjölskyldu söngkon-
unnar hæfileikaríku.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Tískumerkið FredPerry hefur ákveðiðeftir mikla um-hugsun og með
blessun fjölskyldu Amy Wine-
house að setja á markað fata-
línuna sem söngkonan hannaði
fyrir haustið og næstkomandi
sumar fyrir fyrirtækið.
„Þegar Fred Perry kom til okkar og
spurði hvað við vildum gera við nýju
línuna fannst okkur eðlilegt að halda
áfram. Amy hafði mjög gaman að
vinnu við fatalínuna og hefði viljað
að fötin færu í sölu. Ágóðinn af söl-
unni fer beint í Stofnun Amy Wine-
house, sem við erum að setja á
laggirnar sem mun hjálpa börnum
og ungu fólki í hennar nafni,“
sagði Mitch Winehouse, faðir
söngkonunnar, sem féll frá í síð-
asta mánuði.
„Amy var ástríðufull gagnvart
verkefninu og uppfull af áhuga og
stíll hennar er greinilegur í
hverri flík,“ sagði Fred Perry í
yfirlýsingu en fyrirtækið
ætlar einnig að styrkja nýju
stofnunina sérstaklega.
Línan, sem samanstendur af
27 flíkum, er öll í svörtu og
hvítu. „Ég klæði mig eins og gam-
all, svartur gyðingur, “ sagði hún á
síðasta ári að því er kemur fram í
grein The Guardian. „Ég klæði mig
bara eins og það sé ennþá sjötti
áratugurinn,“ sagði söngkonan,
sem hafði mjög sérstakan og per-
sónulegan stíl.
Fötin eru þröng, með áherslu á
mittið, þau eru klassísk og
klæðileg án þess að vera leið-
inleg.
Línuna má skoða og versla á
www.fredperry.com/women/
amy-winehouse.
’
Amy var ástríðu-
full gagnvart verk-
efninu og uppfull af
áhuga og stíll hennar er
greinilegur í hverri flík.