SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Side 39

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Side 39
13. nóvember 2011 39 „Hraun ruddist fram á nokkrum stöðum í miklu magni í hlíðum Heklu í gær, en í gærkvöldi höfðu eldar minnkað í suðurhlíðum Heklu þótt hraun rynni stöðugt og gaus þá meira í austurhlíðum og á tindi fjalladrottningarinnar. Rann hraun Skjólkvíamegin og við Litlu-Heklu, en nokkrir gígastjakar voru virkir í suðurhlíðinni sem glóði öll fyrstu nótt eldgossins,“ sagði í áðurnefndri Morgunblaðs- frétt sem skrifuð var að kvöldi mánudags, en þá hafði gosið staðið í rúman sólarhring. Gosið stóð þó í aðeins fáeina daga; var fljótt að fjara út þó kraftur þess í upphafi væri mikill. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur spáði því raunar í fyrstu að gosið stæði í mánuði. Strax við upphaf eldgossins varð gossprungan liðlega 5 km löng, en um kvöldið rifnaði jörðin lengra til suðurs þannig að sprungan varð liðlega 6 km löng. Aldrei áður höfðu sprungur í Heklugosi rifn- að svo langt til suðurs, en áður en rifan til suðurs opnaðist má segja að hún hafi verið nákvæmlega eins og í gosinu 1947. Eldgosið varð til þess að spilla afréttum Landmanna til dæmis í Sölvahrauni norðan Heklu, enda þótt búsifjar yrðu ekki miklar í byggð á Suðurlandi. Hins vegar gætti þeirra í ríkari mæli á Norðurlandi; öskuský frá eld- fjallinu barst norður yfir heiðar og aðeins fáeinar klukkustundir liðu frá upphafi gossins uns aska hafði lagst þar yfir; pylsur á útigrilli á Akureyri urðu krímugar og óhirt hey á túnum varð eins og sótugt. „Hekla er ungt eldfjall, nærri 1500 metra hátt og í laginu eins og bátur á hvolfi,“ segir Ari Trausti Guðmundsson í bókinni Eldgos 1913 - 2004. „Eftir löng goshlé verða iðulega mjög öflug gjóskugos í Heklu. Þau valda tjóni og gosefnamagnið er þvílíkt að ljós askan og vikurinn dreifast yfir tugþúsundir ferkílómetra lands.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Pylsur á úti- grilli á Akur- eyri urðu krímugar og óhirt hey á túnum varð eins og sótugt Ari Trausti Guðmundsson númer eitt, bandarísku The Office og American Gangster. Hann hefur líka leikið í myndinni Obsessed á móti Beyoncé Knowles, en myndin fór beint á toppinn þegar hún var frum- sýnd vestra fyrir tveimur árum. Hann lék í stórmyndinni Thor á þessu ári og í annarri á næsta ári, Prometheus í leikstjórn Rid- leys Scott. Elba svo sannarlega hæfileikaríkur en hann er líka plötu- snúður og kemur fram undir nafninu DJ Big Driis og hefur líka sent frá sér tvær stuttskífur með eigin tónlist. Tekur hann við hlutverki James Bond? Nafn hans hefur verið nefnt í tengslum við hinn fræga njósnara James Bond en hann hefur verið nefndur sem eftirmaður Dani- els Craig. Mörgum þótti nóg um að Bond yrði ljóshærður þegar Craig tók við en ef Elba tæki við myndi Bond skipta um kyn- þátt. Elba er spenntur fyrir hlutverkinu en myndi ekki vilja vera þekktur einvörðungu sem „hinn svarti Bond“. „Held ég að þetta eigi eftir að gerast? Nei, en ég hef það sem þarf. Ég get hlaupið um, daðrað við dömur og drukkið. Auk þess er ég enskur,“ sagði hann í viðtali við breska blaðið Guardian árið 2009. Hann er ennþá spenntur fyrir hugmyndinni tveimur árum síðar þó hann hafi efasemdir. „Þetta er gamall orðrómur,“ sagði Elba við CNN í mán- uðinum. „Ég myndi gera þetta en ég vildi ekki bara vera kall- aður fyrsti svarti James Bond. Skilurðu hvað ég á við? Sean Connery var ekki bara skoski James Bond eða Daniel Craig blá- eygði Bond.“ Ljóst er að hann myndi valda hlutverkinu enda vanur því að leika harða nagla en þetta eru ótímabærar hugleiðingar. Luther er mjög einbeittur í starfi sínu og er það bæði blessun og bölvun fyrir þá sem standa næst honum. Þau hljóta að hafa rétt fyrir sér. Þau nema og starfa viðPrinceton-háskóla! Hversu oft hefur orðum fræða-manna verið tekið sem heilögum sannleika vegna þesshvar þeir starfa, jafnvel þótt það sem þeir hafa að segja sé algjör vitleysa? Það gerist nefnilega að fræðamenn flaggi gild- um sínum í stað vísindalegra gagna og vinni skaða með því að halda því fram að þeir hafi einhvers konar sérþekkingu vegna þess hvar þeir kenna – ekki vegna þess hvað þeir kenna eða hvert fræðasvið þeirra er. Í nýlegri grein í New York Times vöruðu Robert George og Melissa Moschella foreldra ranglega við því að nemendur í kyn- fræðslu væru hvattir til þess að hunsa allt sem þeir hefðu lært af foreldrum sínum um kynlíf. Þau héldu því einnig fram að börnin væru „kynlífs- vædd“ í gildislausu um- hverfi, þar sem kenn- ararnir þvinguðu upp á þau eigin hugmyndafræði varðandi kynlíf. Þau líktu kynfræðslu samkvæmt námskrá við það að neyða múslima til að senda börn- in sín í kaþólska messu. Venjulegum lesanda mun skiljanlega þykja þetta skelfilegt. Jafnvel þeir sem vilja og styðja kynfræðslu í skólum fyrir börnin sín, og þeir eru í meirihluta, munu setja spurningarmerki við slíkar kennsluaðferðir, sér- staklega þegar þær hafa verið gagnrýndar af fræða- mönnum við Berg- fléttudeildarháskólana. (The Ivy League) Þar sem höfundar greinarinnar tengjast Prince- ton eru meiri líkur á því að foreldrar trúi fyrrnefndum öf- ugsnúnu upplýsingum en að þeir dragi sannleiksgildi þeirra í efa, hvað þá hvort höfundarnir séu í raun og veru hæfir til þess að tjá sig um viðfangsefnið. Fáir foreldrar munu setja spurningarmerki við það að George, stjórnmálafræðiprófessor, og Moschella, doktorsnemi í stjórn- málafræði, hafa hvorugt bakgrunn í kynfræði. Margir munu ýta þeirri staðreynd til hliðar að George er þvert á móti stofnandi American Principles Project, hægri sinnaðra og íhaldssamra samtaka, sem berjast á móti til dæmis hjónaböndum samkyn- hneigðra. Margir munu ekki velta því fyrir sér hvers vegna greinarhöfundarnir vísa ekki í nein gögn, engar rannsóknir, til þess að sanna staðhæfingar sínar. Princeton-tengingin trompar allt. Eins og allir þeir sem kenna kynfræðslu geta borið vitni um þá miðar kennslan meðal annars að því að vinna með viðhorf fjöl- skyldna til kynlífs, gildi þeirra og trúarskoðanir, og hvernig þau spila inn í ábyrgðarfulla ákvarðanatöku. Í kennslunni er leitast við að styðja hugmyndafræði foreldranna varðandi kynlíf, á sama tíma og ungmennin fá þær upplýsingar sem þau þurfa til að viðhalda kynheilbrigði sínu. Sannanir þess efnis má meðal ann- ars finna með því að skoða námskrána. Ágæti hennar er síðan hægt að fá staðfest með því að fara í gegnum hinar mörgu rann- sóknarniðurstöður sem sýna fram á hversu gagnleg kynfræðsla er. Þrátt fyrir það tekur fólk mark á grein George og Moschella vegna þess að þegar þau skrifa undir hana tengja þau sig við Princeton-háskóla. Þar sem slík tenging vegur jafnt þungt og hún gerir er eðlilegt að fólk spyrji sig að því hvort fræðamönnum ætti yfirleitt að leyfast að minnast á slíkar tengingar þegar þeir birta greinar sem byggjast á persónulegu gildismati. Þegar skólinn skiptir meira máli en það sem sagt er ’ Þau héldu því einnig fram að börnin væru „kynlífsvædd“ í gild- islausu umhverfi, þar sem kennararnir þvinguðu upp á þau eigin hugmyndafræði varðandi kynlíf. Kynfræð- ingurinn Dr. Yvonne Kristín Fulbright Princeton: Heilagur sannleikur? Læknir í Kaliforníu, Gregg Homer, hefur kynnt nýja aðferð sem hann segir breyta brúnum augum í blá án þess að hafa áhrif á sjón sjúklingsins. Homer hefur eytt síðustu tíu árum í að þróa aðferð- ina. Hann notar laser til að eyða brúna litarefninu úr augasteinunum og þá kem- ur blái liturinn í ljós. Aðgerðin tekur að- eins 20 sekúndur og kostar tæpar 600.000 krónur. Homer, sem er með stofu í Laguna Beach, segir að augun verði dekkri fyrst eftir meðferðina en eftir tvær til fjórar vikur verði augasteininn búinn að breyta algjörlega um lit. Brúnt verður blátt Brún augu geta nú orðið blá. Starfsmaður í kjötbúð í þýska bænum Braunschweig rétti viðskiptavini einum poka með meira en 2000 evrum (317.000 kr.) í stað áleggsins. Konan sem er 79 ára borgaði tæpar 800 krón- ur fyrir poka með áleggi og steik. Hún var því mjög hissa þegar hún kom heim og leit ofan í pokann og sá peningana. Hún hringdi beint í slátrarann en versl- unin var lokuð svo hún hafði þess í stað samband við lögreglu sem skilaði fénu. Peningarnir voru sala dagsins og hefðu átt að fara í bankann. Skilvísa konan fékk 16.000 krónur í peningum frá slátraranum auk körfu með pylsum. Evrur í stað áleggs Konan fékk ansi mikið fyrir sinn snúð.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.