SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 40

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 40
40 13. nóvember 2011 Lífsstíll Kyrrðin talar Verk japanska rithöfundarins Matsuo Basho (1644-1694) eru kjörin lesning í afslöppunarferð. Hann skrifaði mikið um mikilvægi þess að draga sig í hlé frá skark- ala heimsins og að einbeita sér að núverandi tíma og rúmi. Hann taldi mannlega bresti koma í veg fyrir slíka slökun, því líf flestra væri litað af fortíðinni og fólk væri gjarnt á að lifa fyrir drauma um framtíðina – og ekki hefur það breyst mikið í gegnum tíðina. Önnur bók er kjörin í þessum til- gangi en hún er eftir Eckhart Tolle og heitir Kyrrðin talar. 1001 leið til að slaka á, Sus- annah Marriott, Salka. Hlý höfuðföt Það er eins gott að láta sér ekki verða kalt á höfðinu nú þegar fer að kólna í veðri. Franski fatahönn- uðurinn Philippe Guilet er greinilega með þetta á hreinu eins og sjá mátti á tískusýningu með því nýjasta úr smiðju hans nýverið. Mér finnst alltaf jafn skemmtilegt að velta fyrirmér spéhræðslu og baðmenningu annaraþjóða. Nú síðast um helgina fór ég í dálítinnbíltúr á Laugarvatn og baðaði mig þar með systur minni. Nei, ekki í baði, heldur þar til gerðum heit- um pottum og gufubaði. Í klefanum með okkur voru nokkrar breskar konur. Það mátti sannarlega dást að færni þeirra við að smokra sér í sundfötin undir handklæðinu. Þetta hlýtur að krefjast nokkurs jafnvægis og er örugglega ekki list sem lærist á einum degi. Einhvern veginn tókst þeim á þennan hátt að koma sér ýmist í sundbol og bikiní. Síðar um kvöldið ræddi ég þetta í góðum hópi á bar. Þá minntist ein á austurríska vinkonu sína sem hafði nærri klætt sig í sundfötin inni í skáp. Þvoðu þér fyrir hina áður en þú ferð ofan í en fyrir þig eftir að þú kemur upp úr. Ég held að við Íslendingar ættum að gera eitthvað úr markaðssetningu þessa ágæta orða- tiltækis. Það virkar ekki neitt að hafa spjald frá 1980 á veggnum sem bendir á öll viðkvæmustu svæði líkamans með rauðu. Líkt og þau væru geislavirk eða eitthvað álíka. Frekar held ég að við ættum að reyna að innleiða íslenskan hugsunarhátt í sundmenningu erlendra þjóða sem hingað koma í heimsókn. Margir erlendir gestir elska að fara hér í sund. Hvers vegna ekki að benda þeim góðfúslega á að baða sig almennilega með hnyttnum ábendingum prent- uðum á handklæði eða boli? Ég held að þetta sé ekki sú al- versta hugmynd sem ég hef fengið. Þvoið geislavirku svæðin Það er náttúrulega algjör lúxus að geta farið í sturtu í íslenskri náttúru. Áður en farið er í sund ber að þvo sér hátt og lágt. Þessa baðmenn- ingu mætti gjarnan innleiða hjá fleiri þjóðum. Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Kistan Jú, nóvember er rétt nýhafinn en samt er ég byrjuð að huga að jólagjöfunum. Jafnvel búin að kaupa eina eða tvær en get ekki skrifað meira um það þar sem þeir sem eiga að fá pakkana munu lesa þetta. Mér finnst annars vegar miklu betra að vera með fyrra fallinu. Það þýðir að maður hefur meiri tíma til að gera eitthvað skemmtilegt í desember. Í öðru lagi er einstaklega hentugt að dreifa kostnaðinum dálítið og vera ekki með visakortið al- gjörlega rjúkandi í jólamánuðinum. Svo er líka bara gam- an að tína smám saman hitt og þetta í fallega gjöf, eða það finnst mér í það minnsta. Gjafastúfur á kreik Það þótti mikil synd og ókostur hér í denn að vera latur. Enda var alltaf nóg að gera bæði innan húss og utan í sveitum landsins. Ég held að leti sé að nokkru leyti áunnin. Í haust hef ég unnið í því að vera meira löt. Það hefur gengið mjög vel og orðið til þess að að ég hef litlu komið í verk heima fyrir. En það kemur. Nú finnst mér bara notalegt að geta ver- ið alveg róleg yfir því að liggja í leti. Mér fannst það nefnilega dálítið erf- itt einu sinni en þetta er allt að koma hjá mér. Svo er sá árstími að nálg- ast þar sem kemur yfir fólk eins konar hýðistilfinning. Þá er best bara að hafa það notalegt heima í sófa, láta þreytuna líða úr sér og leyfa let- inni að flæða yfir í staðinn. Það getur tekið sinn tíma að koma sér í góða letiæfingu en þegar þolið er komið finnur maður hvað maður hvílist vel í letinni. Þó að maður rífi sig auðvitað upp inni á milli og geri „eitthvað af viti“. Ég hugsa að ég velji fyrri kostinn þessa helgina og æfi mig eins mikið í leti og ég get. Enda nenni ég varla að gera neitt annað … Æfingabúðir í leti Helgarkaffið þarf ekki að vera svo ýkja flókið í undibúningi. Vöfflur eru fullkomnar með góðum kaffi- eða tebolla. Það er líka hentugt að geta gert vöfflur og haft svo bara opið hús. Fengið til sín ætt- ingja og vini sem eru á flandri um borg og bí. Þeyttur rjómi og rab- arbarasulta er klassík. Svo er líka ekki slæmt að smyrja vel af Nu- tella á vöffluna og sneiða niður banana, jafnvel smárjóma líka. Vöfflukaffi FJÖR OG MANNDÓMUR eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku holabok.is/holar@holabok.is Meðal efnis: Hrakningar í háfjallaskörðum - sem ekki enduðu allir vel og hlutskipti kvenna, þ. á m. konu sem ekki mátti sín mikils, en lifði langa ævi og dó á tíræðisaldri - án þess að hafa í eitt einasta skipti leitað til læknis, utan augnlæknis einu sinni. Þann æviþátt hefðu allir gott af að lesa.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.