SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 45
13. nóvember 2011 45
H
vað gerir ófermdur
unglingur sem neyðist
til að hefja skólagöngu
á nýjum stað með
fullkomlega flekkað orðspor? Því
fáum við að kynnast í fyrstu
skáldsögu Arndísar Þórarins-
dóttur, Játningar mjólkurfernu-
skálds.
Arndís skrifar skemmtilegan
og lipran texta sem rennur vel.
Það er margt í hugarheimi ung-
lingsins sem hljómar kunnuglega
og er grátbroslegt, endalaus bar-
átta unglingsins við að passa inn
á réttum stöðum, þekkja rétta
fólkið og vera einfaldlega metinn
að verðleikum er eitthvað sem
flestir ættu að geta samsamað sig
við. Þarna koma svo að sjálf-
sögðu við sögu vinsælasta stelp-
an í skólanum, sæti strákurinn
og utangarðskrakkarnir sem
leggja sig fram um að passa ekki í
hið fastmótaða form unglingsins.
Sagan er líka áhrifarík og held-
ur manni vel við efnið. Hvernig
ætli standi á því að hin sakleysis-
lega Halla hafi ratað í slíkar
ógöngur? Þá er gaman og áhuga-
vert að lesa um framgöngu Höllu
í skólanum nýja, um samskipti
hennar við samnemendur og
fyrrverandi bestu vinkonuna
sem og að lesa um vangaveltur
hennar um réttlætið og ranglætið
í heiminum og merkingu ferm-
ingarinnar fyrir hvern og einn.
Löstur bókarinnar er kannski
helst ótrúverðug frásögn af
framgangi kennaranna í hinum
nýja skóla. Það er gömul saga og
ný að nemendum í gagnfræða-
skóla þykja sumir kennarar sínir
kannski ekki skemmtilegasta fólk
í öllum heiminum en ég leyfi mér
að efast um að kennurum sem í
dag haga sér líkt og Björgvin
stærðfræðikennari og Gunnhildur
sögukennari sé sætt í starfi.
En bókin er sem fyrr segir
skemmtileg lesning fyrir alla
unglinga og ætti að vera hvetj-
andi fyrir hvern og einn að berj-
ast fyrir því að fá að vera hann
sjálfur, sem og að sýna öðru fólki
umburðarlyndi þó það sé ekki
eins og maður sjálfur.
Fermingarstúlka
með flekkað orðspor
Arndís Þórarinsdóttir skrifar skemmtilegan og lipran texta.
Morgunblaðið/Ómar
Bækur
Játningar mjólkurfernu-
skálds bbbmn
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur.
Mál og menning gefur út. 240 bls.
Birta Björnsdóttir
Það skal fullyrt að fal-legasta bókin á mark-aði þetta árið sé Ís-lenskir fuglar eftir
hinn sanna snilling Benedikt
Gröndal.
Fuglar eru merkileg fyrirbæri
en þótt ég hafi eins og allir unun
af fuglum himinsins hef ég aldr-
ei fundið hjá mér þörf fyrir að
eiga myndir af þeim í bók. Eða
svo hélt ég, þar til ég sá bók
Gröndals. Þá varð mér ljóst að
þessa bók yrði ég að eignast.
Þetta var svo sterk tilfinning að
ég trúði því að ég yrði fremur
vansæl ef ég eignaðist hana ekki.
Þessi bók er einfaldlega lista-
verk. Maður flettir henni í lotn-
ingu og fagnar því að eiga slíka
dásemd í bókaskápnum. Útlit,
hönnun, texti, myndir Grön-
dals, allt verður þetta að ger-
semum í einni bók. Svo má dást
lengi og mikið að hinni fallegu
rithönd Gröndals.
Það er gott til þess að vita að
bókaforlög sýni metnað í útgáfu
eins og Crymogea gerir nú.
Við sem erum sérstakir aðdá-
endur Dægradvalar og annarra
verka Gröndals fögnum því að
sjá þessa nýju hlið á skáldinu
okkar. Gröndal var ákaflega sér-
stakur maður, frábær stílisti
sem hefur haft mikil áhrif og
vakið aðdáun, og beittur húm-
oristi sem nöldraði iðulega afar
skemmtilega og gat verið einkar
meinhæðinn og grimmur í garð
manna. Eiginlega sárvorkennir
maður þeim sem urðu fyrir
barðinu á honum. Það er list að
kunna að stinga svo undan
svíði.
Og svo kemur hann okkur á
óvart árið 2011 með einstaklega
fallegum og listfengum teikn-
ingum og skrifum um fugla.
Benedikt Gröndal er enn að
auðga líf okkar og blandar sér í
jólabókaflóðið með sérlega eft-
irminnilegum hætti. Veri hann
hjartanlega velkominn!
Lista-
verk
Gröndals
’
Þessi bók er
einfaldlega
listaverk. Mað-
ur flettir henni í lotn-
ingu og fagnar því að
eiga slíka dásemd í
bókaskápnum. Útlit,
hönnun, texti, mynd-
ir Gröndals, allt
verður þetta að ger-
semi í einni bók.
Orðanna
hljóðan
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Verið
velkomin
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
ÞÁ OG NÚ
22.9.-31.12. 2011
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14
í fylgd Jóns Proppé listheimspekings.
SAFNBÚÐ
Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara.
SÚPUBARINN, 2. hæð
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýn-
ingin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Holdtekja
– The Carnal Imperative
Guðný Kristmanns
22.október - 4. desember
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Fjölbreyttar sýningar:
Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu
Skipulag og óreiða. Teikningar Ólafar Oddgeirsdóttur
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Guðvelkomnir góðir vinir! Útskorin íslensk horn
Þetta er allt sama tóbakið! - Útskornir kistlar
Hádegiserindi þriðjudaginn 15. nóvember kl. 12:05:
Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu
Inga Lára Baldvinsdóttir fjallar um ljósmyndun Hjálmars
Glæsileg safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
29. október–30. desember 2011
Samræmi
Hildur Bjarnadóttir og Guðjón Ketilsson
Hamskipti
Hildur Yeoman og Saga Sigurðardóttir
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
12. nóv. til 11. des. 2011
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
„Móðan gráa
-Myndir af Jökulsá á Fjöllum“
Opnun laugardaginn 12. nóv.
kl. 15.00
Opið 13-17, nema mánudaga.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Aðgangur ókeypis.
LISTASAFN ASÍ
HLUTIRNIR OKKAR
(9.6.2011 – 4.3.2012)
Síðasta sýningarhelgi
PIA HOLM:
Textílhönnun fyrir MARIMEKKO
(7.10. – 13.11.2011)
HVÍT JÓL
(28.10.2011 – 15.1.2012)
Ókeypis aðgangur á miðvikudögum
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ALMYNSTUR
Arnar Herbertsson
JBK Ransu
Davíð Örn Halldórsson
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. Kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði