SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Qupperneq 4

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Qupperneq 4
4 27. nóvember 2011 Árið 1989 neitaði kanadíska rík- issjónvarpið að birta auglýsingu, sem Kalle Lasn hafði gert og beint var að skógarhöggi. Auglýs- ingin var svar við áróðursmynd, sem kanadíski skógarhöggsiðn- aðurinn hafði sýnt í ríkissjónvarp- inu og Lasn þótti verulega misvís- andi. „Þetta var hræðilegt augnablik fyrir mig,“ segir Lasn í samtali við blaðið Independent. „Í fæðing- arlandi mínu, Eistlandi, mátti ekki opna munninn gegn stjórnvöldum. Fimmtíu árum síðar var ég kom- inn í hjarta hins lýðræðislega heims og gat skyndilega ekki tjáð mig út af auglýsingapeningum fyr- irtækis.“ Komst hann þá að þeirri nið- urstöðu að hugmyndir hans væru ekki gjaldgengar í hefðbundnum fjölmiðlum. „Okkur fannst þá að það væri dökk hlið á neysluhyggj- unni og enginn vildi ræða hana,“ sagði hann. Tímaritið Adbusters er hins veg- ar gerólíkt jaðarblöðum í stjórn- málum. Umbrot og útlit er eins og í áferðarfallegustu glansblöðum. Ritskoðun í krafti peninga Forsíða á Adbusters, sem kemur út á tveggja mánaða fresti. Hugmyndin að yfirtökuhreyfing-unni, sem hóf göngu sína á WallStreet og breiddist út um heim-inn, kom úr ólíklegustu átt. Í Kanada kemur út tímaritið Adbusters, sem ætlað er að ýta við viðteknum hugmyndum. Útgefandi tímaritsins er Kalle Lasn, 69 ára gamall maður, sem býr á búgarði skammt frá Vancouver. Í tímaritinu, sem hann stofnaði fyrir 22 árum, er dregin upp mynd af heimi þar sem hrun blasir við í umhverfismálum og and- legt tómarúm ríkir í heiminum. Að sögn Lasns er útbreiðsla tímaritsins 70 þúsund eintök. Það tekur ekki við auglýsingum og styður meðal annars kaupum ekkert dag- inn, sem var í gær laugardag. Lasn fæddist í Eistlandi og fyrstu minn- ingar hans eru úr þýskum flóttamannabúð- um þar sem hann endaði með fjölskyldu sinni á flótta undan rússneska hernum í síðari heimsstyrjöld. Hann er með gráðu í stærðfræði. Hann hóf feril sinn á að búa til tölvustríðsleiki fyrir ástralska herinn. Hann stofnaði markaðsrannsóknafyrirtæki á uppgangstímum í Japan og gekk vel. Hann flutti til Kanada og helgaði sig kvikmynda- gerð og umhverfisvernd. Lasn og hans helsti samstarfsmaður á blaðinu, Micah White, sem er 29 ára gamall og býr í Berkeley í Kaliforníu, fengu hug- myndina að því að leggja undir sig neðri hluta Manhattan þegar þeir voru að skiptast á tölvupóstum. Snemma í júní sendu þeir tölvupóst til áskrifenda Adbusters þar sem sagði: „Bandaríkin þurfa sitt eigið Tharir- torg.“ Daginn eftir skrifaði White til Lasn og sagði að sér þætti hugmyndin spennandi. Þeir vörpuðu hugmyndum að nafni á að- gerðinni á milli sín og niðurstaðan var að kalla hana Yfirtökum Wall Street eða Oc- cupy Wall Street á ensku. White vildi í upphafi að átakið hæfist 4. júlí 2012 svo að nægur tími gæfist til und- irbúnings, en Lasn var á því að hið pólitíska andrúmsloft gæti gerbreyst á þeim tíma. Hann lagði til að látið yrði til skarar skríða seinni hlutann í september og hinn 17., af- mælisdagur móður hans, varð fyrir valinu. Í blaðinu birtist heilsíðuauglýsing: „Yfirtök- um Wall Street, 17. september, komið með tjald.“ Eftir því sem nær dró deginum komu fleiri að skipulaginu. Dagurinn hafði verið tilkynntur á netinu og þátttakendur gerðu sér grein fyrir að lögregla myndi reyna að stöðva aðgerðina. Því var gerð varaáætlun og varð Zucotti-garðurinn skammt frá Wall Street fyrir valinu. Garðurinn er í einka- eigu, en opinber. Það skipti sköpum. Op- inberum görðum í eigu hins opinbera er lokað á nóttunni, en skylt er að hafa opna garða í einkaeigu aðgengilega allan sólar- hringinn. White og Lasn voru þeirrar hyggju að yf- irtökuliðið þyrfti að hafa skýran boðskap líkt og mótmælendur á Tahrir-torgi í Kaíró, sem vildu koma stjórn Egyptalands frá. Þeir gerðu uppkast að yfirlýsingu, en mótmæl- endur í New York höfnuðu henni og sam- þykktu sína eigin. „Við skrifum svo að allt það fólk, sem finnst að viðskiptaöflin hafi gert á hlut þess, viti að við erum banda- menn þess,“ sagði í yfirlýsingunni. „Ekki er hægt að koma á sönnu lýðræði þegar ferlið er ákvarðað af efnahagslegu valdi.“ Þessi orð hafa ef til vill ekki fest í hugum fólks, en kjörorðið „Við erum 99%“ gerði það hins vegar. Þar er vísað til þess að eitt prósent Bandaríkjamanna eigi svo mikið af heildarauði í landinu – 40% að því er hag- fræðingurinn Joseph Stiglitz sagði í grein í tímaritinu Vanity Fair – að þeir ráði því sem þeir vilji ráða. Hreyfingin breiddist út um allan heim. Fólk safnaðist saman við dómkirkju Páls postula í London, fyrir utan þingið í Berlín og á Austurvelli. Yfirtökuhreyfingin vatt upp á sig. Hún beindist gegn peningavaldinu, sem Wall Street er táknrænt fyrir. Mótmælin komust í hámæli fyrir alvöru þegar lögreglan í New York lét til skarar skríða gegn þeim. Nú hef- ur lögreglan rýmt Zucotti-garðinn. Yfirtak- an stóð í 59 daga. Lasn segir að þetta boði ekki endalok hreyfingarinnar, heldur feli þvert á móti í sér tækifæri. „Ég trúi því ekki hvað Bloomberg [borgarstjóri New York] getur verið vitlaus,“ sagði hann í viðtali við blaðið The New Yorker. „Þetta þýðir að leikurinn magnast, nú er meira í húfi. Þetta er einu skrefi nær, þú veist, byltingu.“ Upphaf yfirtöku- aðgerða Hugmynd sem varð að mót- mælabylgju Mótmælandi í Zucotti-garðinum á Manhattan með dollaraseðil límdan fyrir mun sér til marks um mátt peningavaldsins. Reuters Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is „Við vorum innblásnir af at- burðum í Egyptalandi og Túnis,“ segir Kalle Lasn, „af þeirri staðreynd að nokkrir klárir einstaklingar gætu með hjálp Facebook og Twit- ter sent út kall og fengið fjölda fólks til að fara út og veita reiði sinni útrás. Ég hélt alltaf að ég mundi deyja vinstrimaður með brostnar vonir, en nú hef ég fengið uppreisn. Sú hugmynd að við, fólkið, getum farið inn í hið táknræna hjarta alheim- skapítalismans og yfirtekið hann og skipulagt það úr skrifstofu með tíu manns og hallað okkur síðan aftur og fylgst með á meðan allt heila klabbið kveikir í ímynd- unarafli heimsins – það ger- ir mig bjartsýnan um fram- tíðina.“ Innblásturinn Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur sími 561 0055 • www.ormstunga.is FISKURINN Í OKKUR eftir Neil Shubin Íslensk þýðing: Guðmundur Guðmundsson „Framúrskarandi … Ef þú vilt skilja þróunarsögu mannsins og annarra dýra, án þess að lesa nokkuð annað um efnið á þessu ári, skaltu lesa þessa frábæru bók.“ – Alan Cane, Financial Times Hvers vegna lítum við út eins og raun ber vitni? Af hverju fáum við hiksta? „Fiskurinn í okkur er af þeirri tegund bóka sem ég held mest upp á – viturleg, hressileg og hrífandi vísindasaga, ævintýri sem breytir varanlega hugmyndum okkar um hvað það merkir að vera manneskja.“ – Oliver Sacks, Amazon.com Review

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.