SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Blaðsíða 6
6 27. nóvember 2011
Blaðamenn geta gert mistök eins
og annað fólk. Um það verður
ekki deilt. Það sem farið hefur
upp til hópa í taugarnar á vitnum,
sem komið hafa við sögu Leve-
son-rannsóknarinnar, er tregða
bresku blaðanna til að leiðrétta
mistök sín og biðjast afsökunar.
Geri þau það séu það oftar en
ekki litlar klausur á lítt áberandi
stöðum.
Leikarinn Hugh Grant kvartaði
til að mynda undan þessu en Daily
Mirror birti fyrir hálfum öðrum ára-
tug ranga frétt þess efnis að hann
hefði leitað sér læknis. Afsök-
unarbeiðnin var „vandlega falin“
inni í blaðinu.
Þá lentu foreldrar sextán ára
stúlku sem var myrt í stappi við
dagblaðið Glasgow Herald og
tímaritið Marie Claire, sem bæði
birtu ónákvæmar fréttir af voða-
verkinu. Illa gekk að fá rangherm-
ið leiðrétt.
Dæmin sanna að rangar fréttir,
leiðréttar eður ei, geta auðveld-
lega breiðst út um heiminn eins
og vírus, líkt og J.K. Rowling
benti á í vikunni.
Hvernig ætlar Leveson lávarður,
sem fer fyrir rannsókninni í Bret-
landi, að bregðast við því?
Þykja treg að leiðrétta og biðjast afsökunar
Myndavélar hvíla á Hugh Grant er hann kemur af fundi Leveson lávarðar.
Reuters
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni aðvera frægur, eins og skýrt hefur komiðfram í vitnaleiðslum í Leveson-rannsókninni, sem fram fer í Bretlandi
þessa dagana. Þar hefur hver nafnkunna persónan
af annarri komið fram og sagt farir sínar allt annað
en sléttar þegar kemur að samskiptum við götu-
blöð landsins. Ætli orðið „umsátur“ nái ekki best
utan um lýsingarnar. Til rannsóknarinnar var
stofnað í framhaldi af News of the World-
símahlerunarhneykslinu.
Vitnisburður tveggja kvenna vakti gríðarlega
athygli síðastliðinn fimmtudag, leikkonunnar Si-
ennu Miller og J.K. Rowling, höfundar bókanna
um Harry Potter.
Meðal þess sem Rowling gagnrýndi dagblöð fyr-
ir var að birta ljósmyndir af börnum sínum, þar á
meðal mynd af dóttur hennar á sundbol; fyrir að
gefa upp heimilisfang hennar og fyrir að smeygja
bréfi stíluðu á Rowling ofan í skólatösku fimm ára
gamallar dóttur hennar. Þá sauð á Rowling.
„Tvö tímabil voru sérstaklega slæm, eftir að ég
átti börnin mín. Þá leið mér raunverulega eins og
ég væri í herkví. Í heila viku var vonlaust að fara út
fyrir hússins dyr án þess að vera ljósmyndaður,“
sagði Rowling við vitnaleiðslurnar.
Hún sagði sum blöð hafa virt beiðni sína um
næði en önnur hafi hreinlega litið á þá beiðni sem
áskorun. Í eitt skipti grennslaðist Rowling fyrir
um það hvers vegna ljósmyndarar frá skosku
götublaði væru fyrir utan hús sitt og fékk þau svör
„að það væri rólegur dagur á blaðinu“. „Þannig að
ég og fjölskylda mín vorum undir eftirliti þessum
mönnum til dægrastyttingar.“
Ef marka má Rowling beita bresk blöð ýmsum
aðferðum til að ná ljósmyndum. Þannig bauðst
The Sun til þess að skila stolnu handriti að óútgef-
inni fimmtu bókinni um Harry Potter árið 2003
gegn því að fá að taka myndir af höfundinum.
Elt af fimmtán mönnum daglega
Sienna Miller upplýsti að hún hefði dagsdaglega
verið elt af um það bil fimmtán mönnum fyrst eft-
ir að hún sló í gegn, 21 árs gömul. „Það var dálítið
ógnvekjandi fyrir konu að vera elt af fimmtán
mönnum daginn út og inn. Að vísu voru þeir allir
með myndavélar, þess vegna var þetta löglegt. En
prófið samt að taka myndavélarnar burt, hvernig
liti þetta þá út?“
Þá sagði hún „papparassa“ bæði hafa spýtt á sig
og svívirt með orðum. „Mér leið eins og ég væri
föst í einhverjum tölvuleik.“
Leikkonan setti út á Daily Mirror fyrir að birta
mynd af sér liggjandi á gólfinu í góðgerðar-
samkvæmi og halda því fram að hún hefði verið
drukkin. „Sannleikurinn er sá að ég var að leika
mér við ungan dreng, sem þóttist skjóta mig. Þess
vegna lagðist ég í gólfið,“ sagði Miller en blaðið
klippti drenginn út af myndinni. Miller höfðaði
mál á hendur Daily Mirror og fór með sigur af
hólmi. „Þeir birtu agnarsmáa afsökunarbeiðni –
en á þeim tímapunkti var skaðinn skeður.“
Miller og Rowling voru sammála um að Kvört-
unarnefnd fjölmiðla, sem dagblöðin settu sjálf á
laggirnar, þjónaði ekki sínum tilgangi.
Miller var í hópi frægs fólks sem News of the
World sáluga beitti símahlerunum og vann skaða-
bótamál fyrr á þessu ári. Það breytir ekki því að
hún rambaði um tíma á barmi ofsóknaræðis, enda
birtist margt sem hún sagði fólki í trúnaði á
prenti. Hafði hún meðal annars margoft sakað vini
og vandamenn um að leka upplýsingum í blöðin.
Hvað annað átti hún að halda?
Í herkví götublaða
Rowling og Miller bera æsi-
fréttablöðum ekki vel söguna
Sienna Miller segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við götublöðin.
Reuters
J.K. Rowling gefur skýrslu við vitnaleiðslurnar.
Reuters
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Frásagnir vitna í Leveson-
rannsókninni hafa margar
hverjar verið býsna skraut-
legar, eins og þegar Sheryl
Gascoigne (fyrrverandi eig-
inkona knattspyrnukappans
Pauls Gascoignes) lýsti því að
hún hefði þurft að skríða á
gólfinu á nýju heimili sínu til
að forðast ljósmyndara, þar
sem engin voru gluggatjöldin.
Skreið um
á gólfinu
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
OSTABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum
í síma 562 2772 og á ostabudin.is
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00