SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Blaðsíða 10
10 27. nóvember 2011
Skar og skarkali | 16
Þorgrímur Kári Snævarr
Margir helstu knattspyrnu-manna heims eiga auðlegðsína Jean-Marc Bosman aðþakka. Fyrir rúmum tutt-
ugu árum hóf Bosman málaferli, sem sex
árum síðar lyktaði með því að fyr-
irkomulag á kaupum og sölu og liða-
skiptum leikmanna í Evrópu fór á annan
endann. Án Bosmans er ekki víst að
Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefði get-
að gengið í raðir Real Madrid og þénað 38
milljónir dollara (4,4 milljarða króna) frá
maí 2010 til maí 2011.
Bosman var leikmaður Royal FC Liege í
Belgíu og hafði hug á að skipta yfir til USL
Dunkuerqe í annarri deild franska fót-
boltans. Liege neitaði að sleppa honum
þrátt fyrir að samningur hans væri runn-
inn út og Bosman ákvað að fara í hart.
Málið var fyrst tekið fyrir í undirrétti í
Lüttich í ágúst 1990 og var ekki til lykta
leitt fyrr en í desember 1995 þegar Evr-
ópudómstóllinn í Lúxemborg dæmdi
Bosman í vil.
„Ekkert félag vildi líta við mér“
Dómurinn varð í fyrsta lagi til þess að
knattspyrnufélög í Evrópu gátu ekki
krafist greiðslu fyrir leikmenn þegar
samningar þeirra voru útrunnir. Í öðru
lagi voru reglur um að aðeins mætti stilla
upp takmörkuðum fjölda af útlendingum
í liði afnumdar. Með þessum dómi fengu
leikmenn á evrópska efnahagssvæðinu
frelsi til að finna sjálfir vinnuveitanda.
Úrskurðurinn hafði samstundis gríð-
arleg áhrif og færði leikmönnum vald,
sem þeir höfðu ekki haft áður. Leik-
mannamarkaðurinn opnaðist upp á gátt,
launin hækkuðu upp úr öllu valdi vegna
þess frelsis, sem leikmenn fengu þegar
samningar þeirra runnu út, og þeirrar
sterku samningsstöðu, sem þeir fengu
við það að félögin gætu misst þá án end-
urgjalds.
Bosman hefði sennileg aldrei orðið
frægur knattspyrnumaður, en málaferlin
komu honum á spjöld knattspyrnusög-
unnar. Flestir sem á annað borð þekkja til
knattspyrnu vita hvað átt er við þegar
talað er um Bosman-dóminn. Þegar
lokadómurinn féll var Bosman atvinnu-
laus og bjó í bílskúrnum hjá foreldrum
sínum. Hann átti von á að komast aftur í
atvinnumennsku, en annað kom á dag-
inn. „Ekkert félag vildi líta við mér,“
sagði Bosman í samtali við þýska vikurit-
ið Der Spiegel. „Ég var álitinn af-
brotamaður, sá sem hafði eyðilagt fót-
boltann.“
Bosman er nú 47 ára. Hann lifir á bót-
um og fær 752 evrur (rúmlega 120 þúsund
krónur) á mánuði. „Allir græða á mér, á
minni baráttu,“ segir hann. „Það er eins
og ég hafi látið einhvern hafa lottótöl-
urnar, en ekki fengið neinn hluta af
vinningnum.“
Engan gluggaþvott, takk!
Bosman fékk á sínum tíma 400 þúsund
evrur (64 milljónir króna) í skaðabætur
frá belgíska knattspyrnusambandinu.
Fifpro, alþjóðleg samtök atvinnuknatt-
spyrnumanna, veitti honum 300 þúsund
evra styrk og frönsk sjónvarpsstöð borg-
aði honum 200 þúsund evrur fyrir heim-
ildarmynd.
Nokkrir atvinnumenn styrktu Bosm-
an, þar á meðal Hollendingurinn Mark
van Bommel, og leikmenn hollenska
landsliðsins létu peningana, sem þeir
fengu fyrir leik við Belgíu, renna til hans.
Sennilega fékk Bosman eina milljón evra
(160 milljónir króna) samanlagt, en pen-
ingarnir eru horfnir. Lögmennirnir kost-
uðu sitt. Hann keypti tvö hús og dýra
glæsivagna. Allt er horfið nema íbúðin,
sem hann býr í og er í bænum Villers
l’Eveque, skammt frá Liege. Hann á kær-
ustu, sem er líka á bótum, og þau búa
ekki saman vegna þess að þá myndu bæt-
urnar skerðast.
Aðgerðaleysið lagðist á sálina á honum.
Tvö hjónabönd runnu út í sandinn, hann
glímdi við þunglyndi og fór að drekka í
óhófi. Nú hefur hann verið þurr síðan
2007.
Bosman bauðst að þjálfa yngri flokka
hjá Standard Liege, en hafnaði því. Hann
hafnaði líka boði um að gerast glugga-
þvottamaður fyrir nokkrum vikum.
Á sínum tíma buðu Uefa, samtök fé-
lagsliða í Evrópu, honum í gegnum milli-
göngumenn rúma milljón evra fyrir að
hætta málarekstrinum.
Honum verður stundum hugsað til
þessa boðs. „Ég er ekki ríkur,“ sagði
hann við Der Spiegel. „En ég er ríkur í
hjarta.“
kbl@mbl.is
Hvað varð um …
Jean-Marc Bosman í treyju Þýskalands í „stjörnuleik“ 2008 og á fleygiferð á yngri árum.
Jean-Marc
Bosman?
Bongarts/Getty Images