SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Blaðsíða 8
8 27. nóvember 2011
Á opinberri Facebook-síðu Jacks
Reacher virðist hver einasta um-
ræða fara að snúast um hversu
svekktir aðdáendurnir eru að Tom
Cruise eigi að leika kappann. Hér
eru nokkur dæmi:
„Einmitt, það eiga allir eftir að
skella uppúr. Ég held því miður að
þetta verði endalok Reacher. Ég
get ekki lesið fleiri bækur án þess
að sjá fyrir mér þennan litla
mann!!!“
„Tom Cruise sem Reacher, eins
mikill töffari og 170 sentimetra
Vísindakirkjumaður getur verið.“
„Ég elska Jack Reacher en
ætla ekki að borga krónu fyrir að
sjá Litla-Tom í hlutverki eftirlæt-
issögupersónu minnar.“
„Mig langar mjög að sjá Reach-
er á hvíta tjaldinu en held ég ætli
að sniðganga myndina. Ég er al-
veg sátt við að það þurfi að breyta
bók þegar hún verður að kvik-
mynd en að endurskapa að-
alsöguhetjuna algjörlega upp á
nýtt?? Er einhver illa haldinn
sjálfsblekkingu??“
Aðdáendurnir
eru æfir
Óvinsæll Tom Cruise.
Reuters
Bækur breska rithöfundarins Lee Childum ofurtöffarann Jack Reacher hafaslegið í gegn um allan heim. Það þarf þvíekki að koma á óvart að í bígerð sé kvik-
mynd um kappann, þennan fyrrum herlögreglu-
mann, sem ferðast um án farangurs og endalegs
áfangastaðar. Hann er einungis með réttlætið að
vopni, auk risastórra krumlanna enda óvenjustór
og mikill maður. Hann lendir í ótrúlegustu æv-
intýrum í krummaskuðum víðs vegar um Banda-
ríkin og vílar ekki fyrir sér að snúa mann og annan
úr hálslið ef svo ber undir.
Hvorki fráskilinn né drykkfelldur
Reacher er öðruvísi krimmahetja, hann er ekki
fullur sjálfsefa, hann er ekki fráskilinn, á enga
fjölskyldu til að vanrækja og á ekki við drykkju-
vandamál að stríða nema kaffi sé talið með. Þegar
það á að koma svona sterkum og vinsælum kar-
akter á hvíta tjaldið er ekki nema von að einhverjir
aðdáendur verði svekktir. Ljóshærður James Bond
er eitt en pínulítill Jack Reacher er allt annað en
Tom Cruise hefur verið valinn í hlutverkið.
Tökur á myndinni One Shot, sem byggð er á
bókunum, eru nú þegar hafnar í Pittsburgh. Tjáði
Cruise sig um hlutverkið í nýlegu forsíðuviðtali
kvikmyndatímaritsins Empire, sem er reyndar
aðallega tekið vegna frumsýningar nýjustu Mis-
sion Impossible-myndarinnar.
Tom Cruise er meðvitaður um að valið á sér í
hlutverk Jack Reacher hefur verið umdeilt. „Ég
skil að málið sé viðkvæmt,“ sagði Cruise og upp-
lýsti að Child hefði komið að fylgjast með upp-
lestri á handritinu. „Þetta er bókin hans Lee og
karakterinn hans Lee. Ég gerði þetta af því að
hann gaf mér blessun sína. Annars hefði ég ekki
tekið hlutverkið að mér.“
Hæðin aðeins einn þáttur persónunnar
Hann var spurður um hæðarmuninn á sér og
Reacher. „Lee sagði mér að hæðin væri aðeins einn
þáttur persónunnar og það gaf mér tækifæri til að
leika hann,“ sagði Cruise en aðdáendunum finnst
þá greinilega stærðin vera stærri hluti persónu
hans en höfundinum sjálfum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hlutverkaval
Cruise er umdeilt. Margir aðdáendur vampírubóka
Ann Rice voru ósáttir við hann í hlutverki vamp-
írunnar Lestats í Interview with the Vampire og
um stund var höfundurinn líka ósáttur.
Blaðamaður Empire skrifar þó að enginn ætti að
efast um skuldbindingu Cruise við hlutverkið.
„Reacher er svo frábær karakter. Hann er ekki
með farsíma, hann er ekki með tölvupóst. Hann er
út úr kortinu. Hann borgar fyrir hluti í reiðufé,“
segir Cruise og útskýrir að Reacher geri það sem
alla dreymi um stundum. „Á þennan hátt er hann
einhvers konar Dirty Harry, James Bond, Josey
Wales.“
Nýbúið er að tilkynna að næsta bók um Jack
Reacher eigi eftir að bera nafnið A Wanted Man og
komi út í september á næsta ári. Hún verður
sautjánda bókin í þessum vinsæla bókaflokki.
Spennumyndin One Shot verður hinsvegar ekki
frumsýnd fyrr en árið 2013. Vonandi á Cruise eftir
að koma öllum á óvart.
Lee Child vann við sjónvarp í Bretlandi, var sagt upp, flutti til Bandaríkj-
anna með fjölskylduna og fór að skrifa bækurnar um Reacher.
Konungur
töffaranna
Getur Tom Cruise leikið hinn
ofursvala Jack Reacher?
Vikuspegill
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Tom Cruise leikur spennumyndahetju í Mission Imp-
ossible en Reacher-aðdáendur láta ekki sannfærast.
Reuters
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
sími 561 0055 • www.ormstunga.is
ANDARSLÁTTUR
eftir Hertu Müller
Íslensk þýðing: Bjarni Jónsson
„Verk hennar sækir kraft sinn í óttann
og er á sama tíma sveipað fegurð,
mikill happafengur fyrir lesandann.“
– Frankfurter Allgemeine Sonntagszeitung
„… máttugt skáldverk en ekki fyrir þá
sem sækjast eftir tilfinningaklámi.“
– PBB, Fréttatímanum
„Eftir að hafa lesið bók hennar sem
nefnist Andarsláttur á íslensku hef
ég sannfærst um að hún er eitt af
stórskáldum samtímans.“
– Egill Helgason, Eyjunni
HERTA MÜLLER
FÉKK BÓKMENNTA-
VERÐLAUN NÓBELS
ÁRIÐ 2009
Nýjasta metsölubókin í bókaflokkn-
um heitir The Affair og kom út í
haust. Árni Matthíasson skrifaði svo
í bókadómi í Sunnudagsmogganum:
„Það verður ekki af Jack Reacher
tekið, hann er konungur töffaranna,
fljótastur, sterkastur og myndarleg-
astur sem hann hefur og sannað í
hverri bókinni af annarri.“
Fljótastur og
sterkastur