SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 12

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 12
12 27. nóvember 2011 Fimmtudagur Kári Sturluson Hugur minn er hjá starfsfólki Íslands- banka sem tókst ekki að svíkja stofn- fjárhafa. Föstudagur Gunnar Hersveinn Varð fyrir mjög óvenjulegu viðmóti í umferðinni í morg- un: bílstjóri nam staðar til að hleypa mér, sem gangandi vegfaranda, yfir gang- braut á mótum Vesturgötu og Ægisgötu. Ég varð svo hissa að ég brást við með því að bjóða bílnum að fara fyrst, en bílstjór- inn neitaði staðfastlega og ítrekaði boð sitt, en ég bauð aftur því ég trúði þessu ekki, en bílstjórinn hneigði höfuðið og bauð í þriðja sinn og þá loks þáði ég boðið. Segið svo að mjallhvít jörð hafi ekki áhrif í myrkrinu! Konráð Jónsson HOR IS OVER IF YOU WANT IT. Áfram Ótrivín! Fésbók vikunnar flett Cyanogen er litarlaust eitrað gas, en það er líka viðbót, eða réttara end- urbót, á Android-farsímastýrikerfinu. Málið er nefnilega það að þar sem Android er opið og öllum aðgengilegt, getur líka hver sem er farið að fikta í því, endurbæta og endursmíða eins og honum sýnist. Fljótlega eftir að fyrstu Android- símarnir komu á markað komust menn að því að hægt var að komast á bak við notendaviðmót símans, ná rótaraðgangi, og í framhaldinu tóku ýmsir að breyta og sníða stýrikerfið til eftir sínu höfði. Smám saman náði viðbót eftir notanda sem kallaði sig Cyanogen mestum vinsældum og fyrir stuttu kom út sjöunda útgáfa hennar undir heitinu CyanogenMod 7. Endurbæturnar gefa notendum til að mynda færi á að breyta mjög svip- móti símans, bæta Bluetooth- stuðning, gefa meiri stjórn á síman- um, gera kleift að setja tímastilli á myndavél og svo má lengi telja. Marg- ar viðbótanna eru eiginlega bara fyrir tölvufróða, en ýmislegt auðveldar not- endum líka lífið, svo framarlega sem þeir eru til í smá heilaskurðaðgerð á símanum sínum. Skjárinn er þrusugóður miðað við verð símans, 800 x 400 díla AMOLED, litirnir bjartir og skjárinn mjög næmur fyrir snertingu - svar- ar mjög vel. Vel af sér vikið! Þegar maður kaupir ódýr tæki er ekki hægt að búast við að þau skáki dýrari búnaði eða standi jafnfætis. Það er því ekki rétt að býsn- ast yfir því að myndavélin sé slöpp, en hún er það vissulega, 3,2 milljóna díla með sjálfvirkan fókus og ekkert flass. Í símanum er allt það helsta sem hægt er að búast við og biðja um; HSDPA, GSM 900/ 1800/1900, þráðlaust net, Bluetooth, hraðaskynjari, stafrænn áttaviti, aGPS, FM útvarp – hvað viltu meira? Rafhlaðan er miðlungsgóð, en með því að slökkva á því sem ekki er í daglegri notkun er hægt að treina hana, en eins og með sjallsíma al- mennt þarf að hlaða hana daglega. Örgjörvinn er 600 MHz sem gefur þokka- lega snerpu, en galli hvað innra minni í símanum er lítið, ekki nema 150 MB. 2 MB minn- iskort fylgir með og hægt að setja stærri kort í hann. Það bjargar málum að vissu leyti að í nýrri útgáfu af Android er hægt að setja hugbúnað upp á minniskortinu. Ódýr snjallsími Kínverskir farsímaframleiðendur gera harða hríð að þeim sem fyrir eru á fleti, bandarískum, finnskum, þýskum og kóreskum. Huawei hefur haslað sér völl í Evrópu og nú bætist ZTE við með fínan ódýran snjallsíma - ZTE Blade. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is CyanogenMod 7 Heilaskurðaðgerð á Android-símum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.