SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Síða 29

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Síða 29
27. nóvember 2011 29 finna neinn stuðning við kynþáttahugmyndir nasista. Sjálfum fannst honum að það ætti að vera hverjum manni augljóst að hann hefði aldrei gengist nasism- anum á hönd, það ætti hver maður að geta séð með því að lesa bækur hans. Meiningin hans er alltaf góð: friður og húmanismi.“ Hvaða afstöðu hafði hann til kommúnisma? „Hann er eini Íslendingurinn sem ég veit til að hafi bæði hitt Hitler og Stalín. Fundinum með Stalín og hrifningu sinni á byltingunni lýsir hann í grein sem aldrei var birt. Þar hélt hann því fram að það væri óhjá- kvæmilegt að bylting yrði á kommúnískum forsendum. Þessi sannfæring hans stóð stutt. Það hefur í mesta lagi verið vika sem hann var sannfærður um sigur sósíal- ismans. Eftir að Gunnar kom heim varð hann harður andstæðingur kommúnismans.“ Sektarkennd Gunnars Það eru tíðindi af einkalífi hans í þinni bók og þar kemur við sögu sonur sem ekki hefur verið vitað af áður. „Gunnar giftist Franziscu árið 1912. Árið 1929 eignast hann son, Grím, með Ruth Lange sem var dóttir þekkts rithöfundar og leikhúsgagnrýnanda, Svens Lange. Til- vera Gríms hefur aldrei verið leyndarmál á Íslandi. En svo virðist sem Gunnar hafi átt annan son utan hjóna- bands. Þegar ég var að vinna að þessari bók rakst ég fyrir algjöra tilviljun á grein í dönsku listatímariti við danska listakonu þar sem hún segir að faðir sinn sé sonur Gunnars og æskuunnustu hans Anne Marie Ped- ersen. Ég vissi að Gunnar hafði verið trúlofaður Anne Marie um tíma og fór að kanna þetta og komst að því að Anne Marie eignaðist soninn Alfred Pedersen í New York árið 1912. Hann hefur þá komið undir um það bil sem Gunnar og Franzisca trúlofuðust. Þessi drengur dvaldist hjá Gunnari og Franziscu um nokkurra mánaða skeið á þriðja áratugnum. Í fjölskyldu Anne Marie er það haft fyrir satt að Alfred hafi verið sonur Gunnars. Það er engin leið til að sanna þetta endanlega nema með DNA-prófi en allt sem ég hef skoðað og rannsakað bendir til að þetta sé raunin. Eitt af því sem allir sem fást við verk Gunnars velta fyrir sér er sektarkenndin sem gegnsýrir allt í verkum hans. Það má örugglega finna ýmsar skýringar á því. Mér finnst ástæða til að spyrja hvort þarna sé enn ein uppspretta þessarar sektarkenndar, sem sagt sú að Gunnar hafi átt son sem hann vissi af en sinnti lítið um. Í mjög mörgum verkum Gunnars er fjallað um sambönd feðra og sona og spurningin um feðrun er mjög áleitin í verkum eins og Borgarættinni og Ströndinni.“ Var hjónaband hans hamingjusamt? „Ég get ekki svarað fyrir annarra manna hjónabönd en framan af virðist hjónabandið mjög hamingjusamt. Ég hafði mikið af einkabréfum, dagbókum og skjölum til að vinna úr en ég hafði ekki bréfin milli Franziscu og Gunnars. Ég hef ekki fundið þau og það kæmi mér ekki á óvart að þau hefðu verið brennd. Höfundur eins og Gunnar vissi fullvel að ævisaga hans yrði skrifuð og örugglega ekki bara einu sinni. Þannig að hann réð því nokkuð hvað varðveittist. Gunnar sagði eitt sinn: Það skynsamlegasta sem ég hef gert á ævinni var að giftast Franziscu. Meðan hann átti í sambandi við Ruth fékk hann bréf frá Ingeborgu Sigurjónsson þar sem hún ýjaði að því að þau Fransisca væru að skilja og þá brást hann mjög reiður við og sagði að þau hefðu aldrei staðið hvort öðru nær.“ Geðklofinn í afstöðu Hvernig kannt þú við manninn Gunnar Gunnarsson? „Ég er ekki viss um að hægt sé að tala um Gunnar sem einn mann. Hann er svo ólíkur eftir tímabilum. Ég segi einhvers staðar í bókinni að það hafi örugglega verið erfitt að vera vinur Gunnars. Ég held reyndar að það eigi við um flesta meiriháttar listamenn, sér- staklega af þeirri kynslóð sem Gunnar og Halldór eru af, að það sé erfitt að eiga náin samskipti við þá. Þeir eru patríarkar og heimilið og öll tilveran snýst um þá og þeir gera skýlausa kröfu um stuðning frá öllum í kringum sig. Ég kann óskaplega vel við hinn unga Gunnar og finnst makalaus sú ótrúlega trú sem hann hafði á sjálf- um sér. Við vitum að Gunnari tókst það sem hann ætl- aði sér og hann sigraði. En árið 1911 gekk hann hungr- aður um götur Kaupmannahafnar og lifði á því að selja ljóð og smásögur í dagblöð, var hættur að skrifa heim til sín og búinn að slíta tengslin við fjölskylduna. Ef maður horfir á þetta frá sjónarhóli fjölskyldunnar þá leit þetta út eins og feigðarflan. Á mörgum tímabilum finnst mér Gunnar aðdáunar- verður og ég held að mér hefði líkað vel við hann ef ég hefði kynnst honum. En svo gerir hann hluti sem manni þykja illskiljanlegir, bæði í einkalífi og opinberu lífi. Þegar maður sér hvernig hann bregst á fjórða ára- tugnum við uppgangi nasismans og horfir framhjá hlutum sem gerðust í Þýskalandi langar mann til að taka í hann og hrista hann. Svo er hann stundum óbil- gjarn, en það á svosem við um marga. En ég kann alla- vega miklu oftar vel við Gunnar heldur en hitt. Einn af yfirlesurum mínum sagði að ég væri geðklof- inn í afstöðu minni til Gunnars. Ég ákvað að taka því ekki sem aðfinnslu heldur sem ágætri lýsingu á því sem ég vildi gera í þessari bók. Ég vildi tala við Gunnar og alla þá sem hafa talað og skrifað um hann. Af því leiðir að ég þarf ekki alltaf að taka svari Gunnars og ég þarf heldur ekki að reyna að afhjúpa hann.“ Morgunblaðið/Sigurgeir S.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.