SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 30
30 27. nóvember 2011
Þ
að gerðist ýmislegt fleira á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
en formannskjör, þótt það hafi
vakið mesta athygli fjölmiðla.
Sennilega verða kosningar um forystu
flokksins regla en ekki undantekning á
næstu árum. Slík kosning hefur farið
fram á þremur síðustu landsfundum og
út af fyrir sig í takt við tíðarandann, sem
krefst virkara lýðræðis. Veikleikinn í
framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til
formanns var að hún skapaði sér ekki
málefnalega sérstöðu. Það er erfitt að
halda uppi kosningabaráttu án þess.
Í ályktunum landsfundarins er ýmis-
legt athyglisvert. Þannig ítrekar lands-
fundurinn þá fyrri afstöðu Sjálfstæð-
isflokksins, að greiða beri gjald fyrir
afnotarétt af auðlindum. Þessi ítrekun er
fagnaðarefni. Hins vegar mættu þing-
menn og aðrir talsmenn flokksins halda
þessari skoðun meira fram en þeir hafa
gert. Það er spurning hvort þeir eru eitt-
hvað feimnir við að flokkur þeirra hafi
þessa yfirlýstu stefnu? Þeir þurfa ekki að
vera feimnir við það. Þvert á móti mun
það efla fylgi flokksins meðal almennra
kjósenda ef þessari mikilvægu stefnu-
mörkun er komið rækilega til skila.
Í ályktun landsfundarins er hvatt til
þess að höfuðstóll verðtryggðra og geng-
istryggðra húsnæðislána verði færður
niður. Þetta hljóta að teljast meiri háttar
tíðindi. Hingað til hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn farið sér hægt í að mæla fyrir rót-
tækum aðgerðum til lausnar á skulda-
vanda heimilanna. Hér er gengið mjög
langt og má gera ráð fyrir að þetta verði
eitt af höfuðatriðum í stefnuskrá Sjálf-
stæðisflokksins í næstu þingkosningum.
Í ályktunum landsfundar er tekið af
skarið um aðskilnað viðskiptabanka-
starfsemi og fjárfestingarbankastarfsemi.
Þessu ber að fagna. Þetta er grundvall-
aratriði í endurskipulagningu íslenzka
bankakerfisins eftir hrun, sem í raun og
veru hefur ekki hafizt enn, þótt ýmsir
þættir í slíkri endurskipulagningu hafi
verið til meðferðar. Hins vegar má velta
fyrir sér, hvort sú niðurstaða landsfundar
að hvetja til sölu á hlut ríkisins í bönkum
sem fyrst sé tímabær. Þarf ekki að fram-
kvæma allsherjar uppskurð á bankakerf-
inu áður en til þess kemur? Bankakerfið
er alltof stórt og þar með of dýrt. Þarf
ekki að takast á við þann vanda áður en
til nýrrar einkavæðingar kemur? Og
hvernig á að vinda ofan af vanhugsaðri
sölu tveggja banka af þremur til erlendra
vogunarsjóða?
Mikilvægasta samþykkt landsfund-
arins er þó sú sem lýtur að aðildar-
umsókninni að Evrópusambandinu. Þar
náðist samstaða um að gera skuli hlé á
viðræðum og þær ekki teknar upp aftur
fyrr en að undangenginni þjóðar-
atkvæðagreiðslu þar um. Einn helzti for-
ystumaður aðildarsinna innan Sjálfstæð-
isflokksins, Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra,
lýsti yfir stuðningi við þessa afstöðu, þótt
hún segðist gera það með semingi. En
gerði það þó. Þetta þýðir að sjálfstæðis-
menn eru sammála um aðferðina, þótt
þeir séu ekki sammála um hið endanlega
markmið.
Hvernig fylgir þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins þessari ályktun landsfundar
eftir?
Eftir stendur svo hin stóra pólitíska
mynd fram að næstu þingkosningum,
sem óhjákvæmilega hlýtur að verða Sjálf-
stæðisflokknum umhugsunarefni. Hún er
svona:
Það eru meiri líkur en minni á því að
þessi ríkisstjórn sitji út kjörtímabilið og
yrði þá fyrsta vinstristjórnin í sögu lýð-
veldisins sem nær því marki. Það er
nokkuð ljóst að stjórnarflokkarnir missa
meirihluta sinn í næstu kosningum. En
þýðir það að Sjálfstæðisflokkurinn taki á
ný við stjórnartaumunum eða setjist á ný
í ríkisstjórn? Það er ekki endilega víst.
Það er mikil gerjun í pólitíkinni hér
eins og annars staðar. Það eru alls konar
ný sjónarmið uppi og fólk, sem áður
leiddi hjá sér þátttöku í pólitík, tekur nú
virkan þátt í margvíslegu stjórnmála-
starfi, hvort sem um er að ræða tjaldbúa á
Austurvelli eða aðra.
Þessi gerjun mun nánast óhjákvæmi-
lega leiða til nýrra framboða fyrir næstu
kosningar og þau framboð eru líkleg til
að sækjast eftir fylgi kjósenda á miðjunni
eða til vinstri. Þetta getur þýtt að Sjálf-
stæðisflokkurinn fái ekki til sín
óánægjufylgi úr þessum áttum eins og
hann hefur gjarnan fengið eftir tímabil
vinstristjórna. Ný framboð munu að öll-
um líkindum draga þau atkvæði til sín,
hvort sem um er að ræða framboð á veg-
um Lilju Mósesdóttur, Guðmundar
Steingrímssonar eða Bezta flokksins.
Þau framboð eða eitthvert þeirra gætu
náð lykilaðstöðu á þingi. Með hverjum
mundu þau vinna í ríkisstjórn? Hinum
föllnu vinstriflokkum eða Sjálfstæð-
isflokki eða Framsóknarflokki? Það eru
a.m.k. jafn miklar líkur á því að slík
framboð mundu kjósa að endurreisa hina
föllnu vinstristjórn eins og að ganga til
samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og
flestir mundu telja líkurnar á endurnýj-
aðri vinstristjórn með aðild þeirra meiri.
Með öðrum orðum: vinstrimenn bregðist
við fyrirsjáanlegu fylgistapi hinna hefð-
bundnu flokka sinna með nýjum fram-
boðum og haldi sínu fólki við efnið með
þeim hætti.
Í þessu er fólgin raunveruleg hætta fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn að lenda utan rík-
isstjórnar annað kjörtímabilið í röð.
Hvernig ætlar forystusveit Sjálfstæðis-
flokksins að bregðast við þessari augljósu
hættu? Af fréttum sem komið hafa um
landsfundinn að dæma er ekki að sjá að
þessi stóra mynd hafi verið rædd á fund-
inum. En hana þarf að ræða á vettvangi
Sjálfstæðisflokksins.
Á landsfundinum voru tekin fyrstu
skref til þess að sækja stuðning til nýrra
kjósendahópa. En það voru aðeins fyrstu
skref. Þeim þarf að fylgja fast eftir.
Hættan sem Sjálfstæðisflokkur stendur frammi fyrir
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Alríkislögreglumönnunum Thomas McDade ogWilliam Ryan brá í brún þegar þeir mættu bílá förnum vegi í bænum Barrington, utan viðChicago, á þessum degi árið 1934. Undir stýri
var enginn annar en bankaræninginn og morðinginn
Baby Face Nelson, efsti maður á lista yfir eftirlýsta
glæpamenn í Bandaríkjunum á þessum tíma. Með hon-
um í bílnum voru eiginkona hans, Helen Gillis, og sam-
verkamaðurinn John Paul Chase. Lögreglumennirnir
snarsneru við en þeim til mikillar undrunar gerði Nelson
það líka. Hann hataði lögregluna eins og pestina og hik-
aði ekki við að skjóta laganna verði á færi. Raunar hefur
enginn einstaklingur, hvorki fyrr né síðar, myrt fleiri
alríkislögreglumenn við störf en Baby Face Nelson.
Þekkjandi bíræfni Nelsons sneru McDade og Ryan við
aftur og óku eins og bíllinn dró með morðingjann á hæl-
unum. Kúlunum rigndi yfir þá. Reyndu þeir eftir föng-
um að svara í sömu mynt. Hæfðu meðal annars vatns-
kassann á bíl Nelsons sem dróst fyrir vikið aftur úr.
McDade og Ryan komust undan.
Tveir aðrir lögreglumenn, Herman Hollis og Samuel P.
Cowley, skárust nú í leikinn. Þeir óku Nelson hratt uppi
og þvinguðu hann til að beygja inn í almenningsgarð í
Barrington, þar sem bíllinn nam staðar. Stukku báðar
sveitir út og leituðu skjóls bak við bílana, kúlum rigndi.
Um þrjátíu vegfarendur horfðu skelfingu lostnir á.
Hollis og Cowley hæfðu Nelson ítrekað en alltaf hélt
glæponinn áfram að skjóta, linnti raunar ekki látum fyrr
en báðir lögreglumennirnir lágu í valnum. Stóð hann um
stund yfir þeim helsárum áður en hann ók á brott ásamt
föruneyti sínu sem var ólaskað. Raunar gat Nelson ekki
ekið sjálfur vegna skotsára, Chase gerði það – lög-
reglumennirnir höfðu hæft Nelson sautján sinnum, sjö
sinnum í búkinn og tíu sinnum í fæturna.
Líkið fannst í skurði
Chase og Gillis komu Nelson í öruggt skjól í húsi í bæn-
um Wilmette. Það var skammgóður vermir, hann lést
síðar sama daga af sárum sínum, 25 ára að aldri. Eftir
nafnlausa ábendingu fannst lík hans í skurði í Skokie,
vandlega vafið inn í teppi. Ekkjan gaf síðar þá skýringu
að honum hefði alltaf verið meinilla við kulda.
Hollis var lýstur látinn skömmu eftir komuna á spítala
en Cowley tórði aðeins lengur. Náði meðal annars að
gefa skýrslu og undirgangast aðgerð. Allt kom fyrir ekki,
banasár hans var á kviðnum, líkt og hjá Nelson.
Sumir litu svo á að Baby Face Nelson hefði komið fram
hefndum fyrir annan alræmdan glæpamann, Pretty Boy
Floyd, en hermt var að kúla frá Hollis hefði bundið enda
á líf hans í öðrum skotbardaga, mánuði fyrr.
Lýst var eftir Helen Gillis og hermt að J. Edgar Hoo-
ver, yfirmaður alríkislögreglunnar, hafi viljað ná henni
hvað sem það kostaði – lifandi eða látinni. Hún fór
huldu höfði í Chicago en náðist og var dæmd í eins árs
fangelsi fyrir að hafa skotið skjólshúsi yfir eftirlýstan
bónda sinn. John Paul Chase náðist einnig og var sendur
í hið illræmda fangelsi Alcatraz.
Baby Face Nelson hét réttu nafni Lester Joseph Gillis
en viðurnefnið fékk hann vegna smæðar sinnar og
barnslegrar ásýndar. Nelson var ódæll í æsku og komst
fyrst í kast við lögin aðeins 12 ára fyrir að skjóta annað
barn í kjálkann í gáleysi. Faðir Nelsons svipti sig lífi þeg-
ar drengurinn var 16 ára og leiðin lá hratt niður á við.
Ungur fór Nelson að ræna banka, meðal annars í félagi
við hinn alræmda John Dillinger. Enda þótt Nelson hefði
blóð mun fleiri lögreglumanna og óbreyttra borgara á
höndum sér en Dillinger var hann lengi í skugga félaga
síns sem sumir sáu sem einskonar Hróa hött samtímans.
Nelson naut á hinn bóginn aldrei lýðhylli og var líklega
fáum harmdauði, öðrum en konu sinni og fjögurra ára
gömlum syni, sem iðulega þvældust með honum.
orri@mbl.is
Baby Face
Nelson
felldur
Hinn alræmdi Baby Face Nelson féll í valinn aðeins 25 ára.
’… lögreglumennirnir höfðuhæft Nelson sautján sinnum,sjö sinnum í búkinn og tíu sinnum í fæturna.
Mickey Rooney sem Baby Face Nelson í mynd frá 1957.
Á þessum degi
27. nóvember 1934