SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Qupperneq 40
40 27. nóvember 2011
Lífsstíll
Fyrr í vikunni var lagður hjá mérþessi fíni poki með eðal, íslenskukonfekti. „Ég er bara jólasveinn-inn, þetta er ekki frá mér,“ sagði
sendillinn laumulega. Ofan í pokanum var
tepakki og gúmmulaðis gott súkkulaði
svo það er augljóst að leynivinur minn
þekkir til mín. Eða hefur aflað sér upplýs-
inga sem er enn skemmtilegra.
Leynivinaleikurinn í vinnunni byrjaði
því vel hjá mér og fór svo batnandi. Næsta
dag fékk ég svo syndsamlega góðar
súkkulaðitrufflur að ég kiknaði í hnján-
um. Loks alveg frábæran jólakassa fullan
af skemmtilegu jóladóti. Hér hafa síðustu
daga læðst um jólasveinar á göngnunum
með pakka í hendi. Sumir nýta tækifærið
á meðan leynivinurinn bregður sér í kaffi
og skutla gjöfinni á borðið. Eða ráða til sín
sendil sem er nauðsynlegt ef leynivin-
urinn er nágranni manns.
Leynivinaleikurinn er alltaf jafn
skemmtilegur og skapar góða stemn-
ingu fyrir árlegt jólahlaðborð. Sam-
starfsfólkið spjallar um hvað það
fékk í hádegismatnum og minnir
helst á spennt, lítil börn sem spjalla
um hvað þau fengu í skóinn. Þess
vegna er þetta líka kannski svona spenn-
andi. Að fá gjöf frá leynivini er nefnilega
dálítið í anda þess að fá í skóinn. Nema
reyndar að leynivininum er alveg
sama þó þó farir seint að sofa eða
gleymir að tannbursta þig. Nokkuð sem
valdið gæti jólasveininum talsverðum
vonbrigðum.
Svona leikur minnir okkur líka á að
ekki þarf svo mikið til að gleðja aðra. Enda
er ekki ætlast til þess að fólk eyði svim-
andi fjárhæðum. Frekar að gjafirnar séu
litlar og sætar. Jafnvel persónulegar og
vandlega úthugsaðar.
Jólasveinar sjást víða á aðventunni og jólunum og lauma gjarnan einhverju skemmtilegu til barna og fullorðinna.
Morgunblaðið/Eggert’
Samstarfsfólkið
spjallar um hvað það
fékk í hádegismatnum
og minnir helst á spennt,
lítil börn sem spjalla um
hvað þau fengu í skóinn
Laumulegir jólavinir
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Það var jafn spennandi
að fá í skóinn í gamla
daga og að fá gjöf á
borðið sitt frá leyni-
vini. Oft þarf ekki að
gera mikið til þess að
gleðja aðra.
Súkkulaði er gott og hnetusmjör er gott svo að sam-
an getur þetta varla klikkað. Hér kemur uppskrift að
ljúffengum smákökum úr hvoru tveggja af vefsíð-
unni.recipies.com.
½ bolli smjör, mýkt
½ bolli hnetusmjör
1 bolli púðursykur
½ bolli sykur
2 egg
2 msk. síróp
2 msk. vatn
2 tsk. vanilluessens
2½ bolli hveiti
1 tsk. natrón
½ tsk. salt
2 bollar súkkulaði
Aðferð
Blandið saman smjörinu, hnetusmjörinu og
sykrinum þar til blandan er orðin mjúk. Blandið
síðan saman í annarri skál eggjunum, sýrópinu, van-
illunni og vatninu. Sameinið loks blöndurnar og hrær-
ið saman. Síðan er bara að setja deigið á plötu og
nota um eina tsk. í hverja köku. Baka skal kökurnar
við 190° hita í um 12-14 mínútur eða þar til þær hafa
fengið á sig fallega gullbrúnan lit.
Hnetusmjörs- og súkkulaðismákökur
Þá er komið að því að finna sér
eitthvað fínt til að vera í á jól-
unum og/eða á jólahlaðborð-
inu.
Leikkonan Rachelle Le-
fevre var alveg með
þetta á hreinu í New
York á dögunum.
Þar mætti hún á
tískusýningu
Victoria’s
Secret í þess-
um líka fína
kjól sem er allt í
senn sparilegur,
þægilegur og dálítið sexí.
Kjólar með þessu sniði eru
þægilegir hvað það varðar að
þeir eru víðir yfir magann.
Enda verður nú að vera pláss
fyrir allar kræsingarnar. Lát-
lausan kjól sem þennan má
líka poppa upp með sokka-
buxum í fallegum lit. Rauð-
ar sokkabuxur eru t.d.
jólalegar. Svo getur verið
ágætt að fá sér ermar eða
sjal yfir axlirnar í vetr-
arkuldanum.
Nú er um að gera að kíkja í búð-
irnar, skoða vel og vandlega og
finna það sem hentar manni best.
Þægilegur og
smart jólakjóll