SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Síða 47
27. nóvember 2011 47
Á árum áður voru mörg bóka-uppboð haldin á hverju ári þarsem mikill fjöldi manna komsaman og bauð í dýrgripina. Á
þeim tíma var á annan tug fornbókabúða í
Reykjavík. En svo breyttust tímarnir og
þangað til fyrir skömmu var fornbókabúð
Bókin, sem er í eigu Ara Gísla Bragasonar,
sonar Braga Kristjónssonar, sú eina sem var
í Reykjavík. En Bókin fagnaði 50 ára afmæli
á síðasta ári en hefur verið í eigu Ara Gísla
frá árinu 1996. Ara Gísla hefur lengi langað
til að endurvekja þessi bókauppboð og lét
verða af því í ár.
Af þessu tilefni talaði blaðamaður Morg-
unblaðsins við Sverri Kristinsson, fast-
eignasala og þekktan bókasafnara, til að
fræðast um hvernig þessi gömlu bóka-
uppboð fóru fram. Sverrir segist hafa sótt
bókauppboðin allt frá árinu 1965. „Þá voru
bókauppboðin haldin í Þjóðleikhúskjall-
aranum,“ segir Sverrir. „Yfirleitt voru öll
sæti setin og menn stóðu jafnvel. Sigurður
Benediktsson stýrði þessu en hann var mjög
virðulegur maður og ákveðinn uppboðs-
haldari, röggsamur og menn þurftu að hafa
hraðan á þegar þeir buðu í verkin. Sigurður
kom oft með hnittnar athugasemdir. Menn
höfðu misjafnar áherslur, sumir lögðu
einkum áherslu á söfnun bóka um sagn-
fræði, jarðfræði, lögfræði, en aðrir á kvæða-
bækur eða gamalt prent frá Hólum og Skál-
holti svo dæmi séu nefnd. Sumir söfnuðu
öllu, en þeir eru kallaðir alætur meðal
bókasafnara. Þarna voru þekktir safnarar
eins og Þorsteinn Jósepsson, Páll Jónsson,
Friðjón Skarphéðinsson, Torfi Hjartarson,
bræðurnir Jón og Vilhjálmur Ingvarssynir,
Jón Steffensen og Sigurður Nordal svo ein-
hverjir séu nefndir. Úti á landi voru líka
áhugasamir bókasafnarar. Uppboð Sigurðar
voru ómissandi hluti af menningarlífinu á
þessum tíma. Ég minnist þessara uppboða
með ánægju. Fágætar og merkar uppboðs-
bækur eru auðvitað hluti bestu einka-
bókasafnanna og sum einkabókasöfnin
verða svo stundum uppistaðan í opinberum
söfnum og söfnum menningarstofnana. Í
því sambandi mætti nefna safn Þorsteins M.
Jónssonar sem er uppistaðan í safni stofn-
unar Árna Magnússonar á Íslandi.
Það voru margir sem höfðu áhuga á söfn-
un bóka. Á uppboðunum voru yfirleitt ein-
tök í góðu ástandi. Menn kepptu oft um
gripina og buðu hver í kapp við annan. Það
var oft fjörugt á þessum uppboðum og það
er sjónarsviptir að hafa ekki þessi uppboð í
dag. Hluti af uppboðunum er að menn hitt-
ist, skoði bækur og ræði saman. Síðar hélt
Knútur Bruun tæpa tvo tugi bókauppboða,
en þeir Guðmundur Axelsson og Böðvar
Kvaran stóðu að þessum uppboðum með
Knúti, sem var góður uppboðshaldari. Á
þessum uppboðum voru m.a. boðnar upp
fágætar bækur úr tveimur merkum bóka-
söfnum. Þá má nefna Klausturhóla sem hélt
hátt í 200 uppboð. Guðmundur Axelsson
stóð fyrst að þesum uppboðum en síðar
dóttir hans Guðrún, sem er sennilega fyrsta
konan sem fær leyfi fyrir uppboði af þesu
tagi. Síðar hafa farið fram allnokkur upp-
boð sem ýmsir hafa staðið að en þau hafa
verið mjög slitrótt,“ segir hann.
Uppboð nútímans
Þegar spjallað er við Ara Gísla Bragason
segir hann gömlu uppboðin hafa verið fyrir
sína tíð. „En ég og pabbi vorum síðast með
hefðbundið bókauppboð fyrir tíu eða tólf
árum. Þá héldum við það í Kornhlöðunni í
Bankastrætinu.
Þá voru boðin upp ljóð, leikrit og hefð-
bundnar bækur, gamlar útgáfur af Íslend-
ingasögunum, gamla prentið frá Leir-
árgörðum og Hóla- og Skálholtsprentið.
Við erum einmitt með eina á þessu upp-
boði sem var prentuð í Skálholti 1688. Bók-
in er bundin inn af Unni Stefánsdóttur en
hún var með bókbandsstofu í Grjótaþorp-
inu. Hún er þjóðsagnapersóna á meðal
bókbindara.
En við erum með uppboðið nútímavætt
og erum með þetta á netinu núna. Þetta er
gert í samstarfi við Jóhann Ágúst Hansen
sem er með vefinn uppbod.is. Hann rekur
Gallerí Fold. Þetta er fjórða og veglegasta
netuppboðið í ár og er svona lokauppboðið
á árinu.
Það komu strax þónokkuð af tilboðum á
fyrstu vikunum. Ég varð svolítið undrandi
þegar ég sá það en við erum líka með gott
úrval af bókum. Það eru listabækur þarna
og sjaldgæfar bækur um Birgi Andrésson.
Til dæmis, Grænt, Green, íslenskir græn-
ir litir eftir hann Birgi. Svo er líka þarna
bókin Nálægð eftir hann, sem hann gaf út í
500 eintökum. Við erum líka með
skemmtilegar og sérkennilegar bækur
einsog Verkleg sjóvinna, sem er handbók
sjómanna og útvegsmanna, það er svolítið
skemmtilegt verk.
Svo erum við með fágætt sérprent eftir
Halldór Laxness, sem heitir Þórður gamli
halti og birtist í Rétti 1935.
Við erum með eina eða tvær fyrstu út-
gáfur eftir Dag Sigurðarson, meðal annars
fyrsta bókin hans, Hlutabréf í sólarlaginu.
Svo er þarna ein frumútgáfa eftir Stein
Steinarr, Spor í sandi sem kom út 1940.
Flestöll verk Þorvaldar Thoroddsen eru á
uppboðinu og fyrsta útgáfu Njálu, frá árinu
1772, prentuð í Kaupmannahöfn, er boðin
upp en verðmat á henni er 98.000 krónur
og það er komið boð í hana upp á 40.000
krónur. Það verður svo hinn kaldi mark-
aður sem ákveður verðið. Uppboðinu lýkur
3. desember, þá er farið í gegnum það hver
á hæsta boðið og bækurnar sendar til
hans,“ segir Ari Gísli.
Bækur frá
16. og 17. öld
boðnar upp
Ari Gísli Bragason stendur fyrir uppboði á
gömlum bókum og leynast ýmsir dýrgripir
inn á milli. Blaðamaður Morgunblaðsins
átti stutt spjall við hann.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Ari Gísli Bragason stendur fyrir uppboðinu en hann er eigandi fornbókabúðarinnar Bókin
sem fagnaði 50 ára afmæli sínu á síðasta ári en hefur verið í eigu Ara Gísla frá 1996.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fágætt eintak af skáldverki eftir Ernest Hemingway er á uppboðinu. Íslendingabók í þekktu bókbandi.
Titilblað Íslendingabókar frá 17.öld.
Jóhannes Kjarval og Sigurður Benediktsson eru saman á þessari mynd. En Sigurður er lík-
legast frægasti stjórnandi uppboða í sögu þeirra hér á Íslandi.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon