Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011 Sudoku Frumstig 9 2 4 7 4 3 7 5 1 6 7 3 1 9 5 7 3 9 5 5 4 6 6 2 7 3 5 8 1 6 1 6 5 3 8 7 2 8 1 5 4 5 4 7 8 4 7 3 1 2 7 9 6 1 2 3 5 9 3 1 3 6 4 7 2 9 6 8 5 7 1 4 9 1 4 2 3 6 7 5 8 5 3 7 8 4 1 2 6 9 8 2 6 7 5 9 4 3 1 7 4 9 5 2 3 1 8 6 2 8 5 1 6 4 3 9 7 3 6 1 9 7 8 5 4 2 4 5 8 6 1 2 9 7 3 6 7 2 3 9 5 8 1 4 1 9 3 4 8 7 6 2 5 1 5 7 3 8 9 2 4 6 6 9 4 1 2 7 3 5 8 2 3 8 6 4 5 1 9 7 9 1 6 7 3 2 5 8 4 5 4 2 9 6 8 7 1 3 7 8 3 4 5 1 6 2 9 4 2 1 8 7 6 9 3 5 3 7 5 2 9 4 8 6 1 8 6 9 5 1 3 4 7 2 5 3 4 9 7 8 6 1 2 1 6 8 2 3 5 7 4 9 9 7 2 1 4 6 8 5 3 7 5 3 4 9 2 1 6 8 6 4 9 8 1 3 2 7 5 8 2 1 6 5 7 9 3 4 3 1 7 5 2 9 4 8 6 2 8 5 7 6 4 3 9 1 4 9 6 3 8 1 5 2 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 2. desember, 336. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.) Ekki verður annað sagt en ráða-menn þjóðarinnar vinni í því að vekja athygli á sér og sínum og byggi þannig upp traust og trú al- mennings á þeim sem fara með stjórnina um þessar mundir. x x x Sumir ráðherrar og þeir semganga með ráðherrann í mag- anum segja sjálfsagt að skipta um ráðherra. Þannig telur utanrík- isráðherra, í samtali við rík- isútvarpið í fyrradag, „það bara sjálfsagt að menn sem hafa verið lengi í pólitík séu bara hvíldir á bekknum“ og á þá væntanlega við þá alþingismenn og ráðherra sem hafa verið einna lengst á þingi, forsætis- ráðherra og fjármálaráðherra. Skyldu stýrendur þjóðarskútunnar taka utanríkisráðherrann á orðinu og pakka saman á aðventunni? x x x Ráðherrastólar heilla en Víkverjisér að einstakir þingmenn horfa ekki bara á ráðherrastóla. Þannig upplýsti Álfheiður Ingadótt- ir, þingmaður VG, alþjóð í Morg- unblaðinu sl. miðvikudag um að hún ætlaði ekki að þiggja heimboð for- seta Íslands í gær, 1. desember. Áð- ur hafði hún sagt að hún vildi skipta um forseta og er því væntanlega að undirbúa framboð eins og leikarinn í bandarísku englaborginni. Enginn ofmetnaður þar í gangi. x x x Borgarstjóri lætur fara vel um sigí innivinnunni, djöflast í leik- skólakennurum og trjám með meiru, meðal annars trúfélögum, en finnst ekki nóg að gert og vill fá að gefa saman hjón eins og sýslumenn enda sé í því fólgið frábært tækifæri fyrir höfuðborgina. Telur sennilega að ferðamannastraumurinn til borg- arinnar aukist til muna. Það væri eftir öllu að hann fengi umbeðið leyfi en hvað svo sem gerist í því efni von- ar Víkverji ferðalanga vegna að hann biðji ekki næst um að fá að fljúga farþegaflugvél eða sigla far- þegaskipi, þó að hann hafi gefið til kynna að hann vildi gjarnan stýra þjóðarskútunni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 myndarleg, 8 kasti, 9 tólf, 10 reykja, 11 ani, 13 gabba, 15 skammt, 18 huguðu, 21 umstang, 22 slegið, 23 æviskeiðið, 24 gjafar. Lóðrétt | 2 játa, 3 kað- all, 4 kæpan, 5 styrkir, 6 bílífi, 7 spil, 12 gagn, 14 leðja, 15 úði, 16 mergð, 17 skánin, 18 viðbjóði, 19 sterk, 20 elska. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fylki, 4 bylur, 7 náman, 8 orgel, 9 alt, 11 römm, 13 fata, 14 æðinu, 15 flár, 17 mjór, 20 fis, 22 reiki, 23 umrót, 24 túnið, 25 deiga. Lóðrétt: 1 funar, 2 lómum, 3 iðna, 4 brot, 5 lygna, 6 rulla, 10 leifi, 12 mær, 13 fum, 15 fornt, 16 ásinn, 18 járni, 19 rotna, 20 firð, 21 sund. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Leyndur kostur. Norður ♠ÁK2 ♥106 ♦87642 ♣942 Vestur Austur ♠83 ♠G10964 ♥ÁG4 ♥9873 ♦DG1095 ♦– ♣G76 ♣D1053 Suður ♠D75 ♥KD52 ♦ÁK3 ♣ÁK8 Suður spilar 3G. Sumir spilarar fylgja blindum úr hlaði eins og vel þjálfaðir sölumenn – með nákvæmri lýsingu á helstu kost- um og möguleikum. „Hérna hefurðu tvo örugga slagi, makker minn,“ sagði norður og fletti upp ás og kóng í spaða. „Og svo á ég fimmlit í tígli, sem þú getur áreiðanlega gert þér mat út …“ „Takk, takk,“ sagði suður kurt- eislega og drap útspil vesturs – ♦D – með ás heima. Austur henti spaða í slaginn, svo strax var ljóst að tígullinn myndi seint gefa mikið af sér. Hjartað yrði þá að skila tveimur slögum og suður var með tæknina á hreinu: spil- aði litlu að tíunni. Sú íferð tryggir tvo slagi ef vestur á gosann, auk þess sem ráða má við ♥ÁG(x) í austur. „Þú nefndir ekki hjartatíuna, makk- er,“ sagði suður á eftir. 2. desember 1929 Minnsti loftþrýstingur hér á landi, 920 millibör (hektópas- köl), mældist á Stórhöfða í Vestmannaeyjum þegar óveð- ur gekk yfir landið. Alþýðu- blaðið sagði að „afspyrnu- austanrok“ hefði verið í Eyjum. 2. desember 1932 Kristján Sveinsson augnlæknir opnaði lækningastofu sína í Skólabrú 1 og starfrækti hana í áratugi við miklar vinsældir. Hann var gerður að heiðurs- borgara Reykjavíkur árið 1975. 2. desember 1941 Togarinn Sviði frá Hafnarfirði fórst út af Snæfellsnesi með 25 manna áhöfn. Hann var á heim- leið af Vestfjarðamiðum með fullfermi. Fjórtán konur urðu ekkjur og 46 börn föðurlaus. 2. desember 1950 Öldin okkar kom út hjá Iðunni. Hún flutti „minnisverð tíðindi 1901-1930“ og var „samin eins og dagblað,“ eins og sagði í auglýsingu. Ritstjóri var Gils Guðmundsson. Þessi bóka- flokkur varð mjög vinsæll. 2. desember 2000 Björk Guðmundsdóttir hlaut evrópsku kvikmyndaverðlaun- in í París sem besta leikkonan fyrir leik sinn í myndinni Dan- cer in the Dark. Áhorfendur völdu hana einnig sem bestu leikkonuna í atkvæðagreiðslu á netinu og Ingvar E. Sigurðsson sem besta leikarann í Englum alheimsins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Dagurinn byrjar væntanlega á morgunkaffi fyrir vinnufélagana í tilefni dagsins og síðan tekur við hefðbundin dagskrá,“ segir Nökkvi Elíasson ljós- myndari, sem starfar á markaðsdeild Stöðvar 2, en hann fagnar 45 ára afmæli í dag, líkt og vinnu- félagi hans, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarps- maður. Að vinnudegi loknum liggur leið Nökkva í kvöldmat til móður sinnar, Ásthildar Sigurð- ardóttur, en fjölskyldan kemur alltaf saman á þessum degi sem einnig var afmælisdagur föður Nökkva, Elíasar B. Halldórssonar listmálara, sem hefði orðið 81 árs í dag, en hann lést í maí árið 2007. Þangað koma líka dóttir Nökkva og annar af tveimur bræðrum, Gyrðir Elíasson rithöfundur ásamt sinni fjölskyldu. Elsti bróðirinn, Sigurlaugur, er búsettur nyrðra og á ekki heimangengt. Um helgina stendur til að fara í sumarbústað og slaka á en Nökkvi hefur haft í nógu að snúast vegna ljósmyndabókar sem kom út fyrir þessi jól, Hús eru aldrei ein. Þar getur að líta myndir hans af eyðibýl- um víða um land, með kvæðum Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Nökkvi segist vera mjög sáttur við þær viðtökur sem bókin hefur fengið og dómar verið mjög jákvæðir. bjb@mbl.is Nökkvi Elíasson ljósmyndari 45 ára Dagur í minningu föður Nýirborgarar Reykjavík Rúnar Helgi Snædal fæddist 12. júlí kl. 7.54. Hann vó 3.665 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Helena Björk Rúnarsdóttir og Jón Garðar Jónsson. Flóðogfjara 2. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.21 1,3 11.47 3,3 18.07 1,3 10.48 15.47 Ísafjörður 1.19 1,6 7.24 0,8 13.50 1,7 20.21 0,6 11.24 15.21 Siglufjörður 3.54 1,0 9.40 0,5 16.08 1,1 22.24 0,3 11.08 15.03 Djúpivogur 2.15 0,6 8.42 1,7 15.01 0,7 21.03 1,6 10.25 15.09 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Láttu það vera að flýta þér um of því það býður hættunni heim og þú skilar verri vinnu fyrir vikið. Mundu að dramb er falli næst. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú getur ekki afneitað þeirri ábyrgð sem þú hefur tekist á herðar, alveg sama þótt þig dauðlangi til þess. Vertu svo vakandi fyrir nýjum tækifærum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Temdu þér að fara vel með þá hluti sem þú eignast hvort sem þeir eru smáir eða stórir. Ný iðja og nám vekja barnið innra með þér. Þú hefur gaman af áskorunum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Rannsóknir þínar leiða margt ánægjulegt í ljós. Haltu þínu striki og komdu fólki í skilning um að þú ert í þess liði. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Í dag er upplagt að sinna viðgerðum á heimilinu, hvort sem um er að ræða stór verkefni eða smá. Reyndu að bæta sam- bandið við systkini og ættingja. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þetta er ekki rétti dagurinn til að hlaupa eftir skyndihugdettum og þá allra síst í innkaupum. Líf annarra er ekkert betra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér mun veitast auðveldara að stjórna þínum mönnum ef þú kemur fram við þá eins og jafningja. Hertu upp hugann því nú hefur þú allt að vinna og engu að tapa. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru miklar breytingar í vændum hjá þér. Þú mættir taka upp tólið og hringja í vini. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú þarft að velta fyrir þér beiðni gamals vinar um greiða. Þetta er ekki góður dagur til innkaupa. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Einmitt þegar þér finnst þú hafa reynt flest gerist eitthvað ógurlega spenn- andi. Reyndu ekki að stytta þér leið; það hefnir sín alltaf fyrr en síðar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ástvinir kynna hugmyndir fyrir þér sem eru svo langt frá því sem þér hugn- ast að þú átt erfitt með að skella ekki upp úr. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Stundum sjá augu betur en auga. Losaðu þig við allt sem er óþarfi. Enginn er fullkominn og þú ekki heldur, hertu upp hug- ann og haltu áfram. Stjörnuspá 1. c4 c5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. Rc3 Rc6 5. e4 e6 6. Rge2 Rge7 7. a3 b6 8. b4 d6 9. Hb1 Bb7 10. O-O O-O 11. d3 Dd7 12. Db3 Kh8 13. Bb2 Rd4 14. Rxd4 cxd4 15. Re2 e5 16. a4 f5 17. f3 g5 18. Bc1 g4 19. f4 fxe4 20. dxe4 Hac8 21. Bd2 Rg8 22. b5 De6 23. Hbc1 Dg6 24. Dd3 Rf6 25. f5 Dh5 26. Bb4 Hfd8 27. Hc2 Df7 28. Rc1 Bh6 29. Rb3 Be3+ 30. Kh1 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro- gaska Slatina í Slóveníu. Rússneski stórmeistarinn Nikita Vitiugov (2726) hafði svart gegn sænska kollega sínum Hans Tikkanen (2591). 30… Rxe4! 31. Bxe4 Hxc4! 32. Rd2 hvítur hefði orðið mát eftir 32. Hxc4 Dxc4 33. Dxc4 Bxe4+. 32… Hxb4 33. Hfc1 Bxd2 34. Hc7 Bxe4+ 35. Dxe4 Df6 36. Db7 Bxc1 37. Hf7 Dh6 38. De7 Bg5 39. f6 Hb1+ og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.