Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Búist er við því að kjörstjórn í Egyptalandi kynni í dag niðurstöðu fyrstu umferðar þingkosninganna á mánudag og þriðjudag en talið er að flokkar íslamista hafi fengið mikið fylgi, jafnvel um 40%, að sögn BBC. Kosið var í um 30% kjördæma í þess- ari umferð, síðasta umferðin er ekki fyrr en í janúar. Öflugustu samtök íslamista, Bræðralag múslíma, hafa þegar lýst yfir sigri án þess að gefa upp tölur en flokkur á vegum þeirra nefndist Frelsis- og réttlætisflokkurinn, FJP. Samtökunum var bannað að bjóða fram í tíð Hosnis Mubaraks forseta sem nú er í fangelsi. Öðrum og mun róttlækari íslam- istaflokki, salafistaflokknum al-Nur, var einnig spáð miklu fylgi og þótti ljóst að íslamistaflokkar fengju sam- an meirihluta þingsætanna. Kosningarnar munu hafa farið þokkalega fram en til átaka kom þó á Tahrir-torgi í Kaíró á þriðjudag þeg- ar bráðabirgðastjórn hershöfðingja var mótmælt. Þrátt fyrir mikla óánægju margra lýðræðissinna með kosningareglur var kjörsókn mikil, um 70%, í þeim níu héruðum þar sem kosið var. Þess ber samt að geta að borga þurfti sekt, 500 egypsk pund eða nær 10 þúsund krónur, fyrir að mæta ekki á kjörstað. Íslamistar með mikið fylgi í fyrstu umferð  Kjörsókn í Egyptalandi talin hafa verið um 70% Flókið kerfi » Kosningakerfið er afar flók- ið. Markmiðið gæti verið að reyna þannig að tryggja sósíal- istaflokki Mubaraks stuðning. » Tveimur þriðju þingsætanna 498 er úthlutað til flokkslista, hinum til einstaklinga. Filippseyingurinn Noli LLavan reisir eins konar jólatré úr keðjusögum við aðalgötuna í borginni Puerto Princesa á Palawan-eyju, vestan við höf- uðborgina Manila, í gær. Sagirnar voru notaðar við ólöglegt skógarhögg áður en lögreglan lagði hald á þær. Stjórnvöld á Palawan standa nú fyrir herferð gegn ólöglegu skógarhöggi og námugreftri sem ógna lífríkinu á eyjunni en þar er eitt af síðustu regnskógasvæðum Filippseyja. Mótmæli gegn ólöglegu skógarhöggi á Filippseyjum Reuters Jólatré úr keðjusögum Kristján Jónsson kjon@mbl.is „Bandaríkin eru reiðubúin að feta braut umbótanna með ykkur ef þið haldið áfram í rétta átt,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir fund með Thein Sein, forseta Búrma, í gær. Enn væri mikið verk óunnið en ef fram- hald yrði á umbótum sem núverandi ríkisstjórn hefur staðið fyrir kæmi til greina að skiptast á ný á sendi- herrum. Bandarískur utanríkisráðherra hefur ekki heimsótt landið síðan 1955. Clinton sagði að ráðamenn í Búrma hefðu heitið sér því að rjúfa „ólögmæt tengsl“ við Norður-Kóreu sem talið er að hafi selt einræð- isstjórninni vopn. Síðustu áratugina hafa Bandaríkin beitt Búrma við- skiptabanni vegna mannréttinda- brota herforingjaklíkunnar. Ráðamenn Búrma vilja rjúfa einangrun sína og Bandaríkjamenn vilja nota tækifærið til að draga úr tengslum Búrma við Kína sem hefur síðustu árin átt mikil viðskipti við landið. Vilja Kínverjar m.a. koma sér upp aðstöðu til að nýta hafnir á langri strandlengjunni, einnig vill Kína kaupa olíu og gas sem finnst á hafsbotni við Búrma. Viðskiptabann vestrænna ríkja hefur útilokað þau frá slíkum viðskiptum. Flutti Suu Kyi kveðju Obama Clinton hitti í gær leiðtoga stjórnarandstæðinga, friðarverð- launahafann Aung San Suu Kyi, og snæddu þær saman miðdegisverð áður en formlegur fundur þeirra hófst. Færði Clinton henni bréf frá Barack Obama Bandaríkjaforseta. „Við stöndum með þér núna og mun- um alltaf gera það,“ sagði í bréfinu og sagðist Obama lengi hafa dáðst að hugrekkinu sem Suu Kyi hefði sýnt í baráttunni fyrir lýðræði og mannréttindum. Flokkur Suu Kyi, Þjóðarbandalagið um lýðræði, NLD, hefur skráð sig til þátttöku í næstu kosningum og er búist við að hún verði meðal frambjóðenda. Boðar aukna þíðu í sam- skiptum við Búrma Söguleg heimsókn Clinton markar þáttaskil í samskipt- um ríkjanna Reuters Umskipti Clinton heilsar þingmönn- um í nýjum höfuðstað, Nay Pyi Taw. Tilslökun og lýðræði » Herforingjastjórnin hefur oft gerst sek um gróf mann- réttindabrot og hún hunsaði úrslit í þingkosningum fyrir rúmum tveim áratugum. Flokk- ur Suu Kyi hlaut þá yfirgnæf- andi meirihluta. » Á síðustu árum og miss- erum hefur hins vegar orðið stefnubreyting. » Suu Kyi og um 200 póli- tískum föngum hefur verið sleppt úr haldi. Boðað hefur verið til frjálsra þingkosninga og ritskoðun verið að mestu afnumin. Kínverjar og Indverjar taka að jafnaði nýtt kolaorkuver í notkun í hverri viku en þótt þau mengi mikið draga þau einnig úr hlýnun jarðar, að sögn Helge Drange, prófess- ors við háskólann í Bergen. Ástæðan er áhrifin sem agnir úr kolareyknum hafa á loftið, þær endurvarpa sólar- geislum. „Þegar allt er gert upp er alls ekki víst að jarðgas úr norska landgrunninu, án nokkurra agna, sé mikið betra en kol þótt koldíoxíðmagnið í gasinu sé minna,“ segir Drange. Rannsóknarmódel hans er eitt af alls 30 sem not- uð eru við gerð næstu skýrslu loftslagsnefndar Samein- uðu þjóðanna er kemur út 2013-2014. kjon@mbl.is Kolaorkuver Asíurisa menga en kæla líka andrúmsloftið Útlægir Íranar efndu í gær til mótmælastöðu við að- alstöðvar valdamestu stofnunar Evrópusambandsins, ráðherraráðsins í Brussel. ESB var hvatt til að for- dæma stjórnvöld í Írak sem hyggjast fyrir árslok reka úr landi um 3.400 Írana sem hafa árum saman hafst við í flóttamannabúðunum Ashraf. Fólkið segir að sín bíði dauðadómur í Íran fyrir landráð verði það sent þangað. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa krafist þess að fá að ræða við fólkið til að kanna hverjir hafi rétt á land- vist en ráðamenn í Bagdad hafna því. Útlægir Íranar verði ekki sendir til heimalandsins frá Írak Reuters Segja flóttamenn verða tekna af lífi SÖGUR LIFNA VIÐ Sigurður dýralæknir holabok.is/holar@holabok.is Hér er meðal annars sagt frá mönnum og málleysingjum, skrýtnum og skemmtilegum karakterum, kyndugum körlum og kerlingum, bændum og búaliði, prestum og kvenleysingjum og kvennamönnum. Einnig af reimleik- um á Rauðalæk, ófúnu líki í kirkju- garðinum á Keldum, íhaldskoppin- um og úthrópuðum rottuskítssala. Útgáfuhátíð vegna bókarinnar verður í Eymundsson á Skólavörðustíg í dag kl. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.