Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 16
Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, nán- ar tiltekið í undirkaflanum Lánafyrirgreiðslur til starfs- manna Glitnis, að í ársskýrslu Glitnis árið 2007 sé ekki getið um þær skuldbindingar sem félagið tókst á hendur með ráðningarsamningi við Lárus Welding, alls 550 milljónir króna á þávirði eða tæplega 781 milljón króna á núvirði. „Einungis [sé] getið þeirrar 300 milljóna króna eingreiðslu sem Lárus fékk við undirritun ráðn- ingarsamningsins“, alls 426 milljóna á núvirði. Forstjóratíð Lárusar var ekki löng. Rannsóknarnefnd Alþingis dregur síðasta árið í rekstri stóru bankanna þriggja fyrir fall þeirra örlagahaustið 2008 saman svo: „Þegar leið á veturinn 2007/2008 voru bankarnir orðnir mjög háðir eigin hlutabréfaverði og stærstu skuldurum sínum. Í stað þess að halda í allt laust fé sem til var lögðu bankarnir talsverða fjármuni í að lána fyrir eigin hlutabréfum og styðja við helstu eigendur sína. Sérstaklega lánaði Kaup- þing háar fjárhæðir til kaupa á eigin hlutabréfum. Í stað þess að leita í var lögðu bankarnir allt undir.“ Ráðning kostaði hátt í 800 millj. að núvirði Lárus Welding BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar Lárus Welding varð forstjóri Glitnis vorið 2007 fór af stað atburða- rás þar sem nýir eigendur áttu eftir að beina fjármunum bankans til tengdra aðila. Fram að hruni bank- ans haustið 2008 áttu þessi tengsl eft- ir að koma fram í mörgum fjármála- gerningum sem vafasamt er að hafi þjónað hagsmunum hluthafa og ís- lensks almennings, í ljósi mikilvægis bankans fyrir þjóðina. Á þennan veg má draga saman í fáum orðum niðurstöðu rannsóknar- nefndar Alþingis á áhrifum kross- eignatengsla á rekstur Glitnis. Þessi tengsl eru baksvið þeirra at- riða sem sérstakur saksóknari hefur gefið út að sé tilefni þess að þrír lykil- menn í bankanum hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald. Er fjallað um þá hægra megin á síðunni. Tapið var hluti af „langhlaupi“ Fyrst ber að nefna viðskipti Glitnis með hlutabréf sem bankinn gaf út sjálfur. Jóhannes Baldursson, fv. yfirmaður markaðssviðs hjá Glitni, lýsti afstöðu bankans til þessara við- skipta við skýrslutöku vegna gerðar rannsóknarskýrslunnar. Komst hann þá svo að orði: „Þegar rætt var um það tap sem hlaust af viðskiptum deildar eigin viðskipta Glitnis … með hlutabréf í Glitni að bankastarfsemi sú sem Glitnir stundaði væri „lang- hlaup“.“ Með því hefði Jóhannes átt við að hann „hefði verið tilbúinn til að taka á sig tap í niðursveiflu í viðskipt- um með eigin hlutabréf og þá á sama hátt gróða í uppsveiflu“. Taldi rannsóknarnefndin „yfir- gnæfandi líkur“ á að viðskipti bank- anna með eigin hlutabréf … hefðu farið fram í þeim tilgangi að „gefa misvísandi upplýsingar um eftir- spurn eftir hlutabréfunum og hafa þannig áhrif á verð þeirra“. Sérstök kjör fyrir vildarvini „Í mörgum tilvikum veittu bank- arnir völdum viðskiptavinum lán á hagstæðum kjörum og jafnvel án trygginga til þess að liðka fyrir slík- um sölum,“ segir í skýrslunni og er m.a. rakið að FL Group hafi verið í hópi útvalinna viðskiptavina. „Rannsóknarnefndin telur … að Baugur, FL Group og Fons hafi fengið óeðlilega greiðan aðgang að lánsfé hjá Glitni banka hf. að því er virðist í krafti eignarhalds síns.“ Þá ber að nefna sölutryggingu Glitnis á 15 milljarða verðbréfa- útboði FL Group haustið 2007 sem Sjóður 9, sjóður í eigu Glitnis, hafði milligöngu um, en við hana eru gerð- ar ýmsar athugasemdir í skýrslunni. Bankinn tók áhættuna Meðal atriða sem talin eru „sér- staklega athyglisverð“ eru að hvikað hafi verið frá almennri fjárfestingar- stefnu Sjóðs 9 að fjárfesta einkum í skammtímabréfum, keypt hafi verið öll útgáfan og þar með verulega dregið úr líkum á að raunhæft mark- aðsverð myndaðist með bréfin um leið og áhætta seljenda á eftirmark- aði jókst. Er í framhaldinu rifjað upp að þeg- ar skuldabréfin í FL Group voru gef- in út átti Glitnir banki 6,52% hlut í FL/Stoðum og FL/Stoðir áttu 30,23% hlut í Glitni banka. Baugsveldið kemur oft við sögu í rannsóknarskýrslunni og er dæmi tekið af því hvernig „sjóðir innan Glitnis sjóða hafi átt viðskipti sín á milli með óskráð og illseljanleg verð- bréf“, þar með talið með „Baugsbréf“ við lok desembermánaðar 2007. Svokallað „veikt eigið fé“ kemur einnig við sögu en það er skilgreint svo í skýrslunni að það samanstandi „af lánum veittum með veðum í eigin bréfum og framvirkum samningum í eigin bréfum“. „Hlutfallið óx veru- lega vorið 2008 þegar meðal annars Rákungur fékk lán til kaupa á hluta- bréfum í bankanum sem og félög í eigu lykilstjórnenda Glitnis … Um mitt ár 2008 nam veikt eigið fé rúm- lega 20% af eiginfjárgrunni Glitnis banka,“ segir í skýrslunni. Tengslin urðu Glitni að falli  Áhættusækni stjórnenda Glitnis í þágu eigenda á kostnað hluthafa er baksvið gæsluvarðhalds á hendur þremur lykilmönnum í bankanum  Glitnir keypti m.a. illseljanleg Baugsbréf í árslok 2007 Morgunblaðið/Árni Sæberg Litið um öxl Óveðursský voru farin að myndast yfir höfuðstöðvum Glitnis löngu áður en bankinn féll. Örþrifaráð » Lárus Welding, fv. forstjóri Glitnis, lýsti því við skýrslu- tökur hjá rannsóknarnefndinni að andrúmsloftið til innláns- söfnunar hefði verið orðið „mjög neikvætt“ árið 2008. » Af því tilefni hefði bankinn hleypt af stokkunum innláns- reikningnum Save & Save í Noregi og á Íslandi. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011 Eins og rakið er hér til hliðar lýsti Jóhannes Baldursson, fv. yfirmaður markaðssviðs Glitnis, fjárfestingum í hlutabréfum í Glitni sem langhlaupi, þar sem bankinn skiptist á um að taka á sig tap og hafa hag af viðskiptum. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er rakið hvernig bankinn tók á sig áhættuna þegar viðskipti með bréf til tengdra félaga voru annars vegar. Er þar meðal annars fjallað um lánveitingar Glitnis til Stíms ehf. til kaupa á 4,1% hlut í FL Group og 4,3% hlut í Glitni í nóvember 2007. Við lánveitinguna hafi Glitnir tekið að veði hluta- bréfin í FL Group sem bankinn lánaði fyrir. Öðru máli hafi gegnt með lánið vegna kaupa FL Group á bréfum í bankanum. Þar hafi Glitnir ekki tekið beint veð í sjálfum sér og segja skýrsluhöfundar að Glitnir hefði ekki getað innleyst til sín eða selt þau bréf ef gera þyrfti veðköll. Fór svo að 13. nóvember 2007 keypti Stím ehf. hluti í Glitni fyrir 16,4 milljarða eða fyrir á þriðja tug milljarða króna á núvirði. Hlutur Stíms í FL Group lækkaði niður í 2,8% m.a. vegna hlutafjárútboðs í FL Group í desember 2007. Stofnuð voru fjögur dótturfélög og tóku þau við skuldbindingum Stíms í svokallaðri Stímsfléttu. Tóku ekki veð fyrir lánunum Jóhannes Baldursson Þriðji og síðasti lykilstarfsmaðurinn sem Héraðsdómur samþykkti gæsluvarðhaldskröfu yfir í fyrradag er Ingi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi verðbréfamiðlari hjá Glitni. Líkt og í tilvikum Lárusar og Jóhannesar hefur Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, ekki greint ítarlega frá tilefnum rannsóknarinnar. Hins vegar víkur sérstakur saksóknari að viðskiptum Glitnis með bréf í tengdum félögum. Fjallað er um þau viðskipti í skýrslu rannsóknarnefndarinnar og hvernig stór hluti stærstu skuldara peningamarkaðssjóðsins Sjóðs 9 hafi jafnframt verið „tengdur Glitni banka, móð- urfélagi Glitnis sjóða, gegnum eignatengsl og/eða stór- ar áhættuskuldbindingar“. „Þegar heildarverðbréfaeign Sjóðs 9 í Glitni banka og félögum tengdum honum er skoðuð nánar kemur í ljós að sláandi hátt hlutfall eigna sjóðsins var bundið þessum félögum.“ Segir síðan að í september 2008 hafi sjóðurinn fjárfest í bréfum Baugs, hvers eigendur voru nátengdir Glitni í forstjóratíð Lárusar, „þrátt fyrir að félagið [þ.e. Baugur] hefði skömmu áður ekki getað staðið í skilum með skuldbindingar sínar við sjóðinn“. Fjárfesting sjóðsins hafi aukist úr 11,5 milljörðum króna í 12,5 milljarða króna milli mánaða í ágúst og september vikurnar áður en bankakerfið hrundi. Juku eign í Baugsbréfum rétt fyrir hrun Ingi Rafnar Júlíusson www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík Kynntu þér lán og aðra þjónustu Íbúðalánasjóðs • Lán til íbúðarkaupa • Lán til endurbóta og viðbygginga • Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) • Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.