Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 11
Konfektgerð Alls bjó hópurinn til yfir 1000 mola.
að selja myndir á vægu verði til for-
eldranna. Myndir af molunum verða
svo líka í bæklingum sem fylgja
munu konfektinu. „Við erum alltaf
með fjáröflun fyrir tíunda bekk til að
eiga upp í útskriftarferð og það var
skemmtilegt að gera eitthvað saman
til fjáröflunar,“ segir Katrín Hall-
dórsdóttir, umsjónarkennari 10.
bekkjar. Alls eru 37 nemendur í 10.
bekk Álftanesskóla og bjó hópurinn
til yfir 1.000 mola af 12 tegundum en
útfærslurnar voru alls 15. Fór kon-
fektgerðin fram í vottuðu eldhúsi.
Pakkað í fallegar öskjur
Katrín segir krakkana hafa lært
réttu handtökin og þau hafi þurft að
púla nokkuð enda tók konfektgerðin
nærri fjóra tíma. Eftir að konfektið
var tilbúið var því svo pakkað í
fallegar öskjur, en í þeim er
einn moli af hverri
tegund.
„Ég vona að
þetta hvetji krakk-
ana til að halda áfram
að búa til konfekt
heima hjá sér
fyrir jólin.
Mér fannst
gaman hve
margir foreldrar
komu með. Fólk var
mjög ánægt og við
erum strax farin að fá
þakkarbréf frá foreldrum. Það var
líka gaman að hrista foreldrana
saman því þeir hittast svo sjaldan,“
segir Katrín.
Frumleg nöfn
Friðrik segir hópinn hafa staðið
sig vel við konfektgerðina en gerðir
voru steyptir molar, með fyllingum,
bakaðir molar og molar með marsi-
pani. Hann segir í léttum dúr að
hann hafi rekið krakkana áfram
með harðri hendi og hafi enginn
komist upp með að standa úti í
horni. Þau hjónin hafa nokkra
reynslu af að vinna með börnum og
unglingum. Arnrún er leikskóla-
kennari en auk þess héldu þau hjón-
in um nokkurt skeið námskeið fyrir
norðan sem kallaðist Matur úr hér-
aði. Þar var nemendum kennt ým-
islegt er tengist matargerð, borðsið-
um og fleiru.
Konfektið verður selt í dag á
Jólamarkaði á Garðatorgi og munu
nemendur standa vaktina til skiptis
frá klukkan 16-19.
Hópurinn nefndi molana
skemmtilegum nöfnum en þeirra á
meðal má nefna Kókoshnetubrjótinn
sem er appelsínutruffla með kókos-
mjöli, Harða pakkann sem er núggat
í dökku súkkulaði, Geimgengil sem
er karamellubotn með núggati og
marsipani og Fyrsta stefnumót sem
er döðlumarsipan í dökku súkkulaði.
Vandvirkni Þessi ungi maður bar sig fagmannlega að.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011
Komin er út handbókin Ungt fólk og kynlíf
sem er nýtt kynfræðsluefni fyrir fram-
haldsskóla. Handbókin er einkum ætluð
kennurum og skólahjúkrunarfræðingum í
framhaldsskólum sem veita kynfræðslu á
fyrstu stigum framhaldsskólans. Bókin
samanstendur af tíu köflum sem hafa það
sameiginlegt að fjalla um kynheilbrigði á
einn eða annan hátt. Megináherslan er á
samskipti og ábyrgt kynlíf en einnig að-
steðjandi ógnanir.
Höfundar eru þær Sóley S. Bender,
hjúkrunarfræðingur PhD, Guðbjörg Edda
Hermannsdóttir, félagsráðgjafi MA, og Sol-
veig Jóhannsdóttir ljósmóðir. Efnið er gefið
út á vegum Fræðslusamtaka um kynlíf og
barneignir (FKB) og hefur verið styrkt af
þeim samtökum, menntamálaráðuneytinu
og Forvarnasjóði Lýðheilsustöðvar.
Ungt fólk og kynlíf
Ábyrgð Smokkurinn er besta
vörnin gegn kynsjúkdómum.
Nýtt kynfræðsluefni
Appelsínutrufflur með
heslihnetuflögum
½ dl rjómi
4 msk. síróp
200 g appelsínusúkkulaði
(saxað)
Síríus 100 g suðusúkkulaði
(saxað) Konsum 70%,
rifinn börkur af einni appelsínu
ca. 100 g heslihnetuflögur
Aðferð Sírópið og rjóminn hitað
að suðu, tekið af hita og súkku-
laðinu er blandað saman við og
hrært stöðugt í þar til allt súkku-
laðið er bráðið, appelsínubörk-
urinn rifinn út í, hellt í
skál og kælt. Kúlur
myndaðar með par-
ísarjárni og velt upp úr
heslihnetuflögunum.
Einnig er hægt að
sprauta kreminu úr
sprautupoka í
fyllta mola en þá
má það ekki vera
fullkælt.
KONFEKTUPPSKRIFT
Ljósmynd/Ragnheidur Arngrimsdóttir
Áþriðjudagskvöldi fyrirskömmu hitti ég góðvinimína, þau Ásdísi Eiri Sím-onardóttur, sérfræðing í
mannauðsstjórnun, og Jón Eðvald
Vignisson, frumkvöðul og tæknistjóra
(lengri mun atlaga mín að name-
droppi aldarinnar ekki verða að sinni),
yfir bjórkollu á knæpu við Laugaveg.
Við það tækifæri varð úr að blaða-
maður og sérfræðingur tókust í hend-
ur upp á að feta í fótspor frum-
kvöðulsins með því að endurtaka
leikinn á komandi föstudagskvöldi að
viðbættum dansi. Við sérfræðing-
urinn sammæltumst nefnilega um það
að ólíkt frumkvöðlinum værum við
ekki nógu duglegar lengur að gera
það sem á götumáli gæti kallast að
dansa af sér rassgatið og það þrátt
fyrir að eiga að heita tiltölulega ung-
ar, lausar og liðugar konur búsettar í
miðri þeirri borg sem alræmd er fyrir
skemmtanalíf sitt. Þótti þetta því af-
bragðsgóð hugmynd, allt þar til föstu-
dagskvöldið bar að garði.
Eftir strembna vinnuviku
fannst mér öllum mínum
þörfum um ánægjulegt
kvöld fullnægt þar sem
ég lá uppi í sófa og horfði
á Útsvarið með osta-
poppsmylsnu á bringunni.
Ég áræddi að senda fyrstu
skilaboðin og gefa til
kynna, mjög undir
rós þó, að dansinn
væri kannski ekki
beinlínis dunandi
í blóðinu að svo
komnu máli.
Hófust þá
nokkuð löng
sms-samskipti sem einkenndust af því
að hvorug vildi vera fyrri til að játa á
sig miðaldra hegðun. Á endanum náð-
ist þó með miklum létti þögult sam-
komulag beggja um að sófarónni
skyldi ekki raskað þetta kvöldið og
jafnframt að þessi uppgjöf ungæðisins
fyrir þreytunni færi ekki lengra.
Enda skal viðurkennast að það er
ekki mjög töff. Síðar hefur undirrit-
aðri verið tjáð að það sé ekki heldur
töff að sitja heima með sínum ekta-
manni og skora hvort á annað í landa-
fræðileiki yfir rauðvínssötri.
Frá þessu segi ég nú vegna þess að
eftir að hafa skorað þessi tvö hall-
ærisstig í röð sé ég mig knúna
til að reyna að endurheimta
kúlið og láta þreytuna ekki
hafa yfirhöndina þetta föstu-
dagskvöldið, en tel í ljósi
reynslunnar að ég þurfi að
festa það á prent til að standa
við stóru orðin.
Ef ég svara ekki
símanum yfir Út-
svarinu í kvöld er
það vonandi vegna
þess að ég er að
dansa.
»Mér fannst öllum mín-um þörfum um
ánægjulegt kvöld fullnægt
þar sem ég lá uppi í sófa og
horfði á Útsvarið með osta-
poppsmylsnu á bringunni.
Heimur Unu
Una Sighvatsdóttir
Undirbúningur Ýmis hráefni þarf í konfektgerðina.
NÝLEGIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
VW Tiguan Sport &
style. Árgerð 2008, bensín,
sjálfsk. Ekinn 40.000 km
Ásett verð:
4.590.000,-
Audi Q7 4.2 S-line
Árgerð 2007, bensín,
sjálfsk. Ekinn 63.000 km
Ásett verð:
7.850.000,-
Land Cruiser GX
Árgerð 2008, dísel,
sjálfsk. Ekinn 82.000 km
Ásett verð:
6.550.000,-
MM Pajero 3,2 Instyle
Árgerð 2008, dísel,
sjálfsk. Ekinn 75.500 km
Ásett verð:
6.560.000,-
Suzuki Vitara Lux
Árgerð 2010, bensín,
sjálfsk. Ekinn 43.000 km
Ásett verð:
3.800.000,-