Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 17
arionbanki.is — 444 7000 Markmiðið er að útboðið geri Högum hf. kleift að uppfylla skilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár og marki þannig grunninn að dreifðu eignarhaldi á Högum, en þá er bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu, og jafn- framt er markmið seljandans að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hefur umsjón með almenna útboðinu. Stærð útboðsins nemur 20% af útgefnum hlutum, eða 243.517.168 hlutum, en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 30% af útgefnum hlutum eða samtals í allt að 365.275.752 hluti. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 11–13,5 krónur á hlut og mun eftir lok áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda í útboðinu,en það mun verða á framangreindu verðbili. Andvirði útboðsins getur þannig numið á bilinu 2,7–4,9 milljörðum króna. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um Haga og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu Haga dagsettri 26. nóvember 2011 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti í lýsingunni. Lýsinguna má nálgast rafrænt á www.hagar.is og www.arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum Haga að Hagasmára 1 í Kópavogi og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. Þeir sem vilja fjárfesta fyrir 100 þúsund krónur til 25 milljónir króna eru beðnir að skila áskrift sinni rafrænt á vef Arion banka,www.arionbanki.is.Til þess notar fjárfestir notandanafn sitt og lykilorð að Netbanka Arion banka, eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á áskriftar- vefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka sinn hjá hvaða íslenska viðskiptabanka sem er. Þeir sem vilja fjárfesta fyrir 25-500 milljónir króna eru beðnir að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf eða hlutabréfa- miðlun fjárfestingabankasviðs Arion banka og skila áskrift sinni á sérstöku formi sem nálgast má hjá þessum sölu- aðilum. Útboðið er til aðila (einstaklinga og lögaðila) með íslenska kennitölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir. Það þýðir m.a. að einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimiluð þátttaka í útboðinu. Úthlutun: Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða annars vegar áskriftir að andvirði 0,5–25 milljónum króna skertar um allt að 50%, en lægstu áskriftir látnar halda sér, og þurfi að koma til frekari niðurskurðar verður hámark netáskrifta lækkað frekar með flötum niðurskurði og hins vegar verða áskriftir yfir 25 milljónum króna skertar samkvæmt einhliða ákvörðun seljanda sem taka mun mið af framangreindum markmiðum útboðsins. Áskriftartímabil stendur frá mánudeginum 5. desember 2011 klukkan 10.00 til fimmtudagsins 8. desember 2011 klukkan 16.00. Eindagi kaupverðs: 14. desember 2011 Stefnt er að því að 15. desember 2011 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti Haga hf. í Kauphöllinni. Almennt hlutafjárútboð Áskriftartímabili lýkur í dag kl. 16.00 Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf., hyggst selja þegar útgefna hluti í Högum hf. með almennu útboði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.