Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 18
Munið að
slökkva á
kertunum
Gætið að því að skraut
s.s. borðar eða
greinar séu aldrei of
nærri kertaloganum og
að skrautið sé staðsett
neðan við kerti þannig
að kertaloginn nái ekki
til þess jafnvel þegar
kertið hefur brunnið
til hálfs
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Vladímír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, þarf nú annaðhvort að
koma á umbótum
eða sýna klærnar
og herða tök sín á
landinu, að sögn
nokkurra stjórn-
málaskýrenda í
Moskvu.
Spekingarn-
ir segja að Pútín
standi nú á kross-
götum eftir að
flokkur hans,
Sameinað Rússland, tapaði miklu
fylgi í þingkosningum um helgina.
Þúsundir manna hafa mótmælt
kosningasvikum í Moskvu og um 800
mótmælendur hafa verið handteknir
síðustu daga. Þetta eru mestu götu-
mótmæli stjórnarandstæðinga í
Rússlandi frá fyrstu árunum eftir
hrun Sovétríkjanna.
Pútín hefur ekkert sagt um
mótmælin en talsmaður hans hefur
ýjað að því að forsætisráðherrann og
flokkur hans þurfi að huga að breyt-
ingum.
Stjórnmálaskýrendur í Moskvu
segjast þó hafa litla trú á því að Pút-
ín gerist allt í einu umbótasinni eftir
að hafa sýnt einræðistilburði á ellefu
ára valdatíma sínum. „Hann hefur
ekki í hyggju að koma á umbótum.
Valdatíma hans lýkur ef hann heim-
ilar stjórnarandstöðu,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Liliu Shevtsova,
stjórnmálaskýranda við Carn-
egie-miðstöðina í Moskvu. Hún telur
það óhjákvæmilegt að upp úr sjóði í
Rússlandi. „Spurningin er aðeins
hvenær það gerist?“
Hagfræðingar spá því að Pútín
notfæri sér miklar útflutningstekjur
Rússlands vegna hás olíuverðs og
auki ríkisútgjöldin á næstu árum til
að bæta lífskjörin og auka vinsældir
sínar að nýju.
Þarf að koma á um-
bótum eða herða tökin
Vladímír Pútín stendur á krossgötum eftir mikið fylgistap
Sameinaðs Rússlands og fjöldamótmæli á götum Moskvu
Kosið verði aftur
» Míkhaíl Gorbatsjov, síð-
asti forseti Sovétríkjanna,
hvatti til þess í gær að þing-
kosningarnar yrðu endur-
teknar vegna kosningasvika.
„Opinberu kjörtölurnar endur-
spegla ekki vilja þjóðarinnar,“
sagði Gorbatsjov.
» Rússneska ríkissjónvarpið
hefur ekki sagt frá fjöldamót-
mælunum í Moskvu.
Vladímír Pútín
Um 40% allra krabbameinstilfella,
sem greind eru í Bretlandi, eða um
134.000 tilfelli á ári, stafa af lífs-
stílsþáttum sem hægt er að forðast,
svo sem reykingum, áfengis-
drykkju og slæmu mataræði.
Þetta er niðurstaða nýrrar rann-
sóknar sem birt er í tímaritinu Brit-
ish Journal of Cancer. Þar segir að
helsti krabbameinsvaldurinn sé
tóbak, í 23% tilfellum karla og
15,6% tilfellum kvenna. Í öðru sæti
hjá karlmönnum sé of lítil neysla á
ferskum ávöxtum og grænmeti en
hjá konum er það offita.
„Margir halda að það sé undir ör-
lögunum komið, það fari eftir gen-
unum eða sé tilviljunum háð hvort
þeir fái krabbamein. Þegar við
skoðum niðurstöður rannsóknar-
innar er ljóst að 40% allra krabba-
meina má rekja til þátta sem við
höfum í valdi okkar að breyta,“ hef-
ur fréttavefur breska ríkis-
útvarpsins eftir Max Parkin, aðal-
höfundi skýrslu um rannsóknina.
Parkin segir að fyrir karlmenn
sé besta ráðið að hætta að reykja,
borða meira af ávöxtum og græn-
meti og draga úr áfengisdrykkju.
Konur ættu að hætta að reykja og
gæta þess að verða ekki of þungar.
Parkin segir að hann hafi ekki
búist við því að neysla ávaxta og
grænmetis gæti haft svo mikla þýð-
ingu fyrir karlmenn til að vernda
þá gegn krabbameini. Þá segist
hann ekki hafa búist við því að of-
fita væri stærri áhættuþáttur en
áfengi meðal kvenna.
Alls valda fjórtán lífsstíls- og um-
hverfisþættir um það bil 134.000
krabbameinstilfellum ár hvert í
Bretlandi. Rúman þriðjung, eða
34%, má rekja til reykinga, matar-
æðis, áfengisneyslu og offitu.
Um 40% krabbameins-
tilfella stafa af lífsstíl
Reykingar, offita
og slæmt mataræði
helstu áhættuþættir
Reuters
Val Tóbak er helsti krabbameins-
valdurinn sem hægt er að forðast.
Maltverjinn Charles Sammut setur englastyttur á stóra
jólaskreytingu í Ferreria-höll í Valletta, höfuðborg
Möltu. Skreytingin er um fimm metra breið og sýnir
fæðingu Krists í fjárhúsinu í Betlehem, með fjölmörg-
um styttum, m.a. af Jesúbarninu, Maríu mey, Jósef og
englum. Sumar stytturnar eru frá átjándu öld. Skreyt-
ingin er sett upp fyrir jólin ár hvert í Ferreria-höll þar
sem menntamálaráðuneyti Möltu er með aðsetur.
Reuters
Lokahönd lögð á jólaskreytinguna