Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011 FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Vistheimilanefnd telur sig ekki hafa forsendur til þess að draga þá al- mennu ályktun að börn og ungmenni hafi verið beitt ofbeldi eða sætt illri meðferð á Upptökuheimili ríkisins 1945-1971, á Unglingaheimili ríkis- ins 1971-1994 eða á meðferðarheim- ilinu í Smáratúni og á Torfastöðum 1979-1994. Nefndin hefur skilað frá sér þriðju og jafnframt síðustu áfangaskýrslu um starfsemi vist- og meðferðarheimila og hefur formlega lokið störfum, a.m.k. að sinni. Nefndin kynnti niðurstöður sínar á blaðamannafundi í Þjóðmenning- arhúsi í gær en þar kom m.a. fram að sömu annmarkar hefðu verið á þess- um stofnunum og þeim sem nefndin hefði áður kannað hvað varðaði málsmeðferð og faglega ákvarðana- töku barnaverndaryfirvalda. Henni hefði verið afar ábótavant stærstan hluta þess tímabils sem nefndin hefði haft til skoðunar, ákvarðanir um vistun illa undirbúnar og ekki teknar af þeim sem lög gerðu ráð fyrir. Kemur m.a. fram í skýrslunni að ákvarðanir um vistun barna, sem grunuð voru um lögbrot eða áttu við hegðunarerfiðleika að stríða, á Upp- tökuheimili ríkisins hafi að mestu verið teknar af lögreglu. Þá hafi lög- regla einnig haft afskipti af því hvernig vistun var háttað, t.d. þeirri tilhögun að vistmenn væru læstir inni í herbergjum á efri hæð heim- ilisins í Elliðahvammi á árunum 1945-1964. Gerir nefndin sérstaka athugasemd við að lögregla hafi ákvarðað um vistun barna yngri en 15 ára, sem hafi verið ósakhæf. Í skýrslunni gerir nefndin einnig athugasemdir við að börn hafi verið vistuð í einangrunarherbergi á Ung- lingaheimili ríkisins á Kópavogs- braut 9 vegna agavandamála en slík ráðstöfun falli undir illa meðferð. Þá telur nefndin það hvorki teljast eðli- legt né réttmætt úrræði að fjötra vistmenn með límbandi eins og gert var í einhverjum tilvikum á móttöku- deildinni í Efstasundi 86 en hún var starfrækt á árunum 1988-1994. Engu má spara til Aðeins 73 einstaklingar af um 3.000 sem vistaðir voru á heimilun- um á þessum árum óskuðu eftir við- tali við nefndina en í starfi sínu frá 2007-2011 hefur nefndin tekið alls 400 viðtöl og telja skýrslur hennar 1.500 blaðsíður. Verkefni hennar var fjórþætt: að kanna hvernig tildrög- um vistunar barna hefði verið hátt- að, að staðreyna hvort börn hefðu sætt illri meðferð eða ofbeldi, að kanna hvernig opinberu eftirliti hefði verið háttað, bæði utanaðkom- andi og innra eftirliti, og að gera til- lögur til stjórnvalda um frekari við- brögð en þegar hefði verið gripið til. Á blaðamannafundi nefndarinnar í gær sagði Róbert Spanó, formaður nefndarinnar, að mikilvægan lær- dóm mætti draga af skýrslum nefnd- arinnar um eftirlit með barnavernd- arstörfum og vistunarúrræðum. Það væri afar mikilvægt og þar mætti ekkert spara til. Nauðsynlegt væri að skapa börnum sem vistuð væru á opinberum heimilum og stofnunum góðan aðbúnað og aðstæður en þar hefði víða reynst pottur brotinn. „Fátt er jafn afdrifaríkt fyrir barn og að vera tekið frá foreldrum sínum og fjölskyldu og vistað fjarri heimili sínu með ákvörðun opinberra aðila,“ segir í samantekt í skýrslunni. Einn- ig: „Skýrslur vistheimilanefndar færa heim sanninn um það að ekki hafi tekist nógu vel til í þeim efnum hér á árum áður.“ Brýnt sé að lær- dómur sé dreginn af mistökum for- tíðarinar, m.a. til að þróa betri lausn- ir og tryggja gæðaeftirlit. Lærdómur af mistökum fortíðar  Vistheimilanefnd skilar þriðju og síðustu áfangaskýrslu  Gera athugsemdir við einangrunarher- bergi og fjötra á Upptökuheimili ríkisins og Unglingaheimili ríkisins  Virkt eftirlit nauðsynlegt Morgunblaðið/Golli Eftirlit Vistheimilanefnd hefur lokið störfum en hún fjallaði um starfsemi níu vist- og meðferðarheimila. Vistheimilanefnd var skipuð ár- ið 2007 til þess að fjalla um vistheimilið Breiðavík en 2008 var mælt fyrir um framhald á störfum hennar og ákvað hún í kjölfarið að kanna starfsemi átta annarra stofnana. Alls hafa 43 einstaklingar greint nefndinni frá illri með- ferð eða ofbeldi sem þeir urðu fyrir á heimilum og stofnunum öðrum en þeim sem nefndin hefur kannað, en flest tilfellin varða dvöl á sveitaheimilum. Mælist nefndin til þess að leit- ast verði við að halda starfi hennar áfram á einhverjum grundvelli. Hefur hún lagt fram tillögur að þremur leiðum hvað þetta varðar. Fyrsta leiðin er að nefndin haldi áfram störfum, önnur leið að nefndin verði lögð niður en sýslumanni falið að taka við ábendingum og frásögnum um illa meðferð og ofbeldi á stofn- unum og heimilum fyrir börn en þriðja leiðin að nefndin verði lögð niður en verkefni hennar færð undir það fyrirkomulag eftirlits með vistunarúrræðum á sviði barnaverndar sem nú er mælt fyrir um í barnavernd- arlögum. Framtíðar- skipan mála VISTHEIMILANEFND Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ríkissjóður hefur greitt út 520 millj- ónir króna í sanngirnisbætur af 920 milljónum sem hann hefur skuld- bundið sig til að greiða til um 300 einstaklinga. Lægstu bætur sem greiddar hafa verið voru um 400 þús- und og hæstu sex milljónir. Um bæturnar geta þeir sótt sem dvöldu á ákveðnum vistheimilum sem börn og máttu sæta illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvölinni stóð. Um er að ræða níu heimili sem öll hafa lotið rannsókn vistheimila- nefndar. Þau eru: Breiðavík, Heyrn- leysingjaskólinn, Kumbaravogur, Bjarg, Reykjahlíð, Silungapollur, Jaðar og Unglingaheimili ríkisins og Upptökuheimili ríkisins. Á þessum heimilum dvöldu nærri 4.000 ein- staklingar í heildina samkvæmt upp- lýsingum frá Sýslumanninum á Siglufirði sem sér um innköllun á bótakröfum og útsendingu sátta- boða. Lokið hefur verið við að kalla eftir bótakröfum vegna fimm fyrstu heimilana í upptalningunni og send hafa verið út sáttaboð. 325 umsóknir hafa borist frá vistmönnum á þess- um heimilum, flestar koma frá Heyrnleysingjaskólanum eða 131, og frá Breiðavík komu 123. Send hafa verið út 295 sáttaboð en 34 mál eru enn óafgreidd eða hefur verið hafn- að. Eina ástæða höfnunar hingað til er sú að viðkomandi einstaklingur hafi ekki dvalið á viðkomandi heimili eða verið þar á öðrum tíma en rann- sókn nær yfir. Bætur að tveimur milljónum eru greiddar út strax en hærri bætur dreifast yfir lengra tímabil. Há- marksbætur eru sex milljónir og þær dreifast á þrjár greiðslur á 36 mánaða tímabili. Að sögn Halldórs Þormars Hall- dórssonar hjá embætti sýslumanns á Siglufirði eru umsóknir frá stærstu heimilinum eftir að koma inn á borð til þeirra. Það eru Silungarpollur, þar sem 951 dvöldu, og Upptöku- og unglingaheimili ríkisins, þar sem dvöldu um 3200 manns á löngu tíma- bili. Verkefnið er meira en hálfnað Guðrún Ögmundsdóttir er tengi- liður vistheimila og til hennar snúa sér allir þeir sem telja sig eiga rétt á bótum. Ár er síðan verkefnið hófst og á að vera lokið að ári liðnu með öllum frágangi. Guðrún segir það mikið meira en hálfnað núna. „Nú er útgreiðsla hjá þeim sem voru á Reykjahlíð og ég er að taka viðtöl við þá sem dvöldu á Silungapolli en þeir hafa umsóknarfrest til 22. janúar. Að því loknu tekur við Jaðar og með vorinu byrjum við að kalla inn Upp- tökuheimili ríkisins og Unglinga- heimili ríkisins,“ segir Guðrún og bætir við að hjá henni sé nóg að gera. Milljarður skuldbund- inn í sanngirnisbætur Fimm vistheimili sem hafa verið afgreidd Heyrnleysingja- skólinn Breiðavík Kumbaravogur Bjarg Reykjahlíð 140 120 100 80 60 40 20 0 Umsóknir (alls 325) Sáttaboð (alls 295) 131 116 123 120 21 18 13 12 37 29  Flestar umsókn- ir vegna Heyrn- leysingjaskólans og Breiðavíkur Vistheimilabætur » Bæturnar eru greiddar út á grundvelli laga um sanngirn- isbætur nr. 47/2010. » Um að ræða níu heimili sem hafa öll lotið rannsókn vist- heimilanefndar 2007-2011. » 325 umsóknir hafa borist frá vistmönnum fimm heim- ilanna og 295 sáttaboð gerð. Víglundur Þór Víglundsson, for- maður Samtaka vistheimilabarna, segir flesta bóta- þega hafa verið sátta við sitt og greiðslur gengið að megninu til vel fyrir sig. „Hjá okkur hefur aðal- málið verið að reyna að fá þessar bætur greiddar út á styttri tíma en 36 mánuðum. Það hafa nokkrir látist sem hafa ver- ið að bíða eftir bótunum, orðnir aldr- aðir einstaklingar. Því höfum við að- eins verið að ýta á að fá greiðslum hraðað og það liggur erindi varðandi það frá okkur hjá innanríkisráðu- neytinu,“ segir Víglundur. Þeir sem eru ósáttir við hlut sinn geta farið fyrir úrskurðarnefnd og fengið greidda tíu tíma hjá lögfræðingi til þess að sækja rétt sinn. Sjö umsókn- ir hafa farið til nefndarinnar. Sam- tök vistheimilabarna telja nú um 130 félagsmenn. Reyna að fá greiðslum hraðað  Flestir bótaþegar sáttir við sitt Víglundur Þór Víglundsson OSTABÚÐIN SKÓLAVÖRÐUSTÍG Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00 Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00 Gjafavörur Ostabúðarinnar f yr ir sælkerann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.