Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 34
Opið hús Sigurdís Harpa við vinnustofuna í Skipholti.
Myndlistarkonan Sigurdís Harpa Arnarsdóttir er með
opna vinnustofu í Skipholti 9 og verður fram að jólum.
Í vinnustofunni eru til sölu málverk unnin með olíu og
blandaðri tækni, en undanfarin ár hefur Sigurdís mál-
að með olíu á striga, bækur meðal annars, ásamt því
að mála með blandaðri tækni, vatnslitum, bleki, olíu-
litum og pastel. Viðfangsefni Sigurdísar eru mannslík-
aminn og náttúran.
Sigurdís fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp.
Hún stundaði nám við Myndlistarskóla Akureyrar,
lauk prófi þaðan 1994 og hefur starfað sem myndlist-
armaður frá þeim tíma og einnig kennt myndlist við
grunn- og framhaldsskóla.
Vinnustofan er opin frá kl. 13 til kl. 16 virka daga
fram að jólum.
Opin vinnustofa
Sigurdísar
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Maður finnst látinn. Hannhefur verið myrtur meðhrottalegum hætti.Þannig hefst Myrk-
nætti eftir Ragnar Jónasson. Glæpa-
saga, segir á grípandi, blóðrauðri
bókarkápu, sem minnir á auglýs-
ingaspjöld fyrir gamlar glæpamynd-
ir af rökkurskólanum.
Myrknætti er ágætlega unnin bók.
Höfundur er alvís og á greiða leið inn
í kollinn á öllum sínum sögu-
persónum. Frásögnin er ítrekað
brotin upp og lesandinn sér atburða-
rásina úr mörgum áttum. Engin
sögupersóna er svo léttvæg að ekki
þurfi að skyggnast undir yfirborðið
hjá henni og undantekningarlaust
finnast vandamál af einhverjum
toga, hvort sem það er einelti úr for-
tíðinni, framhjáhald eða óuppgerð
sambandsslit. Ragnar hefur greini-
lega gaman af að skyggnast inn í sál-
arlíf persóna sinna og leyfa lesand-
anum að sjá togstreituna á milli
þeirra og hvað knýr þær áfram í
samskiptum sínum, sýna fram á að
þegar öllu er á botninn hvolft stjórn-
ast maðurinn af sjálfselsku og hé-
góma.
Allir hugsa um sig, nema ég, sagði
einhver og bætti við: Ég hugsa um
mig. Þetta gæti verið undirtitill bók-
arinnar.
Sú aðferð Ragnars að stökkva á
milli persóna og afhjúpa leyndarmál
þeirra gefur bókinni ákveðna
spennu. Lesandinn leitar að vísbend-
ingum. Stundum er hann dreginn inn
í blindgötu, en stundum koma fram
nýtilegar upplýsingar.
Morðið kemur inn á borð hjá Ara
Þór Arasyni, landsbyggðarlöggu í
reiðileysi, sem hefur flosnað upp úr
háskólanámi. Ari var einnig persóna
í glæpasögunni Snjóblindu, sem
Ragnar sendi frá sér fyrir ári. Öllu
atkvæðameiri er þó fréttakonan Ís-
rún, sem grípur til sinna ráða til að
geta verið fyrst með fréttirnar.
Ragnar setur slíkt púður í að kynna
hana til sögunnar að ætla má að hún
muni eiga framhaldslíf í bókum hans
síðar meir. Framan af virtist hegðun
Ísrúnar ótrúverðug og vinnubrögð
hennar ósannfærandi. Hún er látin
nálgast viðmælendur sína án þess að
segja á sér deili og beita óhefð-
bundnum brögðum, sem ekki tíðkast
í íslenskri blaðamennsku, til að ná í
upplýsingar. Það er ekki fyrr en
langt er komið bókar að kemur í ljós
hegðun hennar á sér sínar skýringar.
Ragnar Jónasson sýnir í þessari
bók að hann er efnilegur höfundur.
Hann byggir söguna upp af vand-
virkni og býr til ágæta fléttu. Honum
liggur hins vegar fullmikið á að ljúka
bókinni og setja endapunktinn. Fyrir
vikið vanrækir hann suma þá þræði
sögunnar, sem hann áður hafði lagt á
sig að búa til. Þegar á allt er litið er
Myrknætti þó prýðileg afþreying.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glæpasaga Ragnar Jónasson býr til haganlega fléttu í Myrknætti.
Af myrkum hvötum sjálfselsku
Myrknætti
bbbnn
Eftir Ragnar Jónasson.
Veröld. 290 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Í kvöld halda fjórir kórar góð-
gerðartónleika í Hallgrímskirkju
undir yfirskriftinni Gleði- og frið-
arjól. Auk kóranna koma fram fé-
lagar úr Kammerkór Reykjavíkur
og rappararnir Ástþór Óðinn og
Ká Eff Bé, en Ká Eff Bé, sá síð-
arnefndi, er í hipphoppsveitinni
Stjörnuryki.
Heiðursgestur tónleikanna
verður tónlistarmaðurinn og laga-
smiðurinn góðkunni Magnús Ei-
ríksson. Allur ágóði af tónleik-
unum mun renna til
Fjölskylduhjálpar Íslands sem og
Rauða krossins.
Elín Halldórsdóttir skipuleggur
tónleikana, en hún hefur stofnað
og stýrt kórum heima og erlendis.
Á haustdögum stofnaði hún
Barnakór Háteigsskóla, sem fram
kemur á tónleikunum, en einnig
syngja aðrir kórar sem Elín starf-
ar með eða tengist: Kvennatríóið
Femmes Fatales, sem skipað er
Elínu, Steingerði Þorgilsdóttur og
Kristínu Ragnhildi Sigurð-
ardóttur, Vocal Project, sem er
blandaður poppkór úr Kópavogi
sem Matthías V. Baldursson stýr-
ir, kvennakórinn Valkyrjurnar úr
Breiðholti, sem Kristín Ragnhild-
ur Sigurðardóttir stýrir, og fé-
lagar úr Kammerkór Reykjavík-
ur, sem Sigurður Pétur Bragason
óperusöngvari og tónskáld stofn-
aði og stýrir, en á tónleikunum
mun Elín stjórna félögum úr röð-
um Kammerkórsins. Alls eru flytj-
endur um 150 talsins. Kynnir á
tónleikunum verður Guðrún Þórð-
ardóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólatónleikar Frá æfingu í gærkvöldi fyrir góðgerðartónleika fjögurra kóra í Hallgrímskirkju sem haldnir verða í
kvöld undir yfirskriftinni Gleði- og friðarjól. Alls verða flytjendur um 150 talsins.
Gleði- og friðarjólatón-
leikar í Hallgrímskirkju
Vilborg Dagbjartsdóttir erum margt einstök kona.Hún hefur markað djúpspor sem ljóðskáld,
barnakennari, barnabókahöfundur,
femínisti, herstöðvaandstæðingur
og kommúnisti og hvarvetna hefur
sópað að henni. Útgáfa ævisögu
hennar er tímabær og það sem
meira er, hún er frábærlega vel
heppnuð.
Þegar áberandi einstaklingar
eiga í hlut sem eru óhræddir við að
láta að sér kveða hlýtur að vakna
sú spurning hjá samferðamönnum
hvað það sé sem drífi viðkomandi
áfram. Hvaðan kemur þeim eld-
móðurinn sem býr að baki? Í bók
þessari er með skýrum hætti dreg-
in upp svo heildstæð mynd af lífs-
hlaupi Vilborgar að við blasir
hvaðan henni kom krafturinn og
kynngin. Æskuárin á Vestdalseyri
við Seyðisfjörð, í þann mund sem
þorpið er að leggjast í eyði af völd-
um nýrra tíma og hagsmuna ann-
arra, skelfileg blóðtaka í stórum
systkinahóp vegna sjúkdóma og
nöturleg meðhöndlun á Vilborgu
sem veiktist en lifði; brotin skóla-
ganga í byrjun einmitt þess vegna
og misjöfn kjör fólksins í landinu –
allt markar Vilborgu fyrir lífstíð
og gerir í framhaldinu lífshlaup
hennar rökrétta atburðarás bar-
áttukonu sem lifir líðandi stund í
ljósi – og skuggum – liðinna daga.
Vilborg nefnir oftar en einu sinni
að lífi sínu hafi hún lifað í hólfum,
og má það til sanns vegar færa.
Samt hefur henni auðnast að snúa
andstreymi fortíðar upp í meðbyr
og innblástur; bakgrunnurinn út-
skýrir lífshlaupið ákaflega vel og
því kemur bókin ljómandi vel til
skila. Kímni og orðheppni Vilborg-
ar segir þetta best þegar hún út-
skýrir að af því að hún fór sjálf á
mis við kennslu í barnaskóla helg-
aði hún sig barnakennslu langa
starfsævi til að hefna fyrir það!
Öðrum þræði er lífshlaup Vil-
borgar kapítuli í listasögu Íslands
á tuttugustu öld og sá þráður bók-
arinnar er ekki síður vel heppn-
aður. Það er að mörgu leyti ótrú-
legt til þess að hugsa að nokkur
maður skuli hafa getað helgað sig
listum hér á landi á öldinni sem
leið, svo kröpp voru kjör lista-
manna. Tíðarandalýsingar Vilborg-
ar eru magnaðar aflestrar, þegar
óheppilegar skoðanir gátu hæglega
gert með öllu út af við möguleika á
því að koma sér á framfæri.
Starfsumhverfi listamanna um og
upp úr miðri síðustu öld eru gerð
prýðileg skil og sú sagnfræði sem
felst í frásögn Vilborgar gefur
henni enn meira vægi.
Þegar allt kemur til alls er hér í
senn rífandi skemmtilesning, feiki-
vel heppnuð frásögn af við-
burðaríkri ævi. Söguhetjan kemur
lesandnum fyrir sjónir frá fyrstu
tíð sem djúpspök og vís, um leið og
hún er á efri árum ennþá upp-
reisnargjörn og barnslega hrein-
skilin. Ómótstæðileg bók um ein-
stakan persónuleika.
Vilborg Dagbjartsdóttir „Útgáfa ævisögu hennar er tímabær og það sem
meira er, hún er frábærlega vel heppnuð.“
Líf og list
hugsjónakonu
Úr þagnarhyl bbbbm
Ævisaga Vilborgar Dagbjartsdóttur, eft-
ir Þorleif Hauksson. Mál og menning
gefur út. 299 bls.
JÓN AGNAR ÓLASON
BÆKUR