Morgunblaðið - 23.12.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Jarðbönn, líkt og verið hafa á höfuðborgarsvæð-
inu undanfarnar vikur, koma ákaflega illa við
gæsirnar sem halda til í borgarlandinu enda eru
þær grasbítar að eðlisfari.
Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands, segir að um 500-1.000
gæsir hafi vetursetu á höfuðborgarsvæðinu,
flestar við Reykjavíkurtjörn. Undanfarna vetur
hafi þær yfirleitt átt auðvelt með að ná sér í æti á
grasflötum sem nú hafa verið undir snjó óvenju-
lengi. Í svona tíð séu þær algjörlega háðar mat-
argjöfum. Almenningur gefur gæsunum brauð
við Tjörnina, a.m.k. um helgar, en undanfarið
hafa gæsir leitað sér ætis í miðborginni, m.a. á
Austurvelli og í Austurstræti. „Það er til marks
um að þær séu banhungraðar,“ segir Ólafur.
Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavík-
ur, segir að borgin gefi gæsum í Vatnsmýri á
virkum dögum, oftast afgangsbrauð frá bak-
aríum. Matargjafirnar hafi hafist fljótlega eftir
að snjó festi í borginni. runarp@mbl.is
Jarðbönn gera borgargæsir banhungraðar
Morgunblaðið/Ómar
Gæsirnar í miðbænum vita líklega ekki af matargjöfunum í Vatnsmýrinni
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Í gærmorgun sást á yfirlitskorti
Vegagerðarinnar að á nánast öllum
hringveginum var hálka eða flug-
hálka. Aðeins lítill bútur í grennd við
suðvesturhorn landsins var þar und-
anskilinn. Vegagerðin hvetur fólk til
að aka með gát og ef það er á leið
landshluta á milli að fara frekar í dag
en á morgun, aðfangadag.
Fari varlega í hálkunni
Björn Ólafsson, forstöðumaður
hjá Vegagerðinni, segir það koma
reglulega upp að hálka sé á nánast
öllum hringveginum. Það sé vonlaust
að ætla sér að hálkuverja allt vega-
kerfið enda sé það víðfeðmt. „Þetta
er ekkert stórvægilegt, ef menn
keyra bara varlega,“ segir hann.
Ekki aka þó allir varlega og í um-
ferðargreinum Vegagerðarinnar má
m.a. sjá að í gær var nokkrum bílum
ekið á yfir 120 km hraða eftir Öxna-
dalsheiði en hún var merkt sem hál á
korti Vegagerðarinnar.
Hætta fyrr að moka
Vegagerðin setti í gær tilkynningu
á vef sinn þar sem vakin var athygli á
að veðurspá fyrir aðfangadag er
slæm en mun betri fyrir daginn í
dag, Þorláksmessu. Miðað við veð-
urspá og þá staðreynd að þjónustu
Vegagerðarinnar úti á landi lýkur
með fyrra fallinu á aðfangadag, sé
mun álitlegra, fyrir þá sem hafa tök á
því að ferðast í dag. Í dag sé full
þjónusta á vegum og mun álitlegra
veður.
Ferðist í dag, ekki á morgun
Vegagerðin vekur athygli á að vetrarþjónustu lýkur upp úr hádegi á aðfangadag
Hálka eða flughálka á nánast öllum hringveginum Samt ekið á yfir 120 km/klst
Kjararáð hefur úrskurðað að draga til baka launalækk-
anir þeirra sem heyra undir kjararáð. Má þar nefna þing-
menn og ráðherra. Laun þeirra lækkuðu hinn 1. janúar
2009 um 5-15%. Samkvæmt úrskurði Kjararáðs á þriðju-
dag er sú launalækkun nú dregin til baka.
Kjararáð tók þá ákvörðun hinn 27. desember 2008 að
laun alþingismanna skyldu lækka um 7,5% og laun ráð-
herra um 14-15% frá 1. janúar 2009. Hinn 23. febrúar
2009 tók kjararáð ákvörðun um að laun embættismanna,
annarra en dómara og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Ís-
lands, skyldu lækka um 5-15% og tók sú ákvörðun gildi 1.
mars 2009. Þá ákvað ráðið hinn 10. mars 2009 sambæri-
lega lækkun launa dómara frá 15. mars 2009. Ákvörðun
um lækkun launa skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands
var tekin 17. júlí 2009 og tók hún gildi 1. ágúst sama ár.
Þannig sættu allir þeir sem undir ákvörðunarvald kjar-
aráðs heyrðu á þessum tíma lækkun launa á grundvelli
laga sem sett voru árið 2008, að frátöldum forseta Ís-
lands. Lækkun launa hvers og eins var miðuð við að hlut-
fallið færi sem næst línu sem markaðist af tveimur punkt-
um, þannig að heildarlaun sem voru 1.125.000 krónur á
mánuði lækkuðu um 15% og heildarlaun sem voru
450.000 krónur á mánuði lækkuðu um 5%.
Lækkun launa kom fyrst og fremst fram í lækkun ein-
ingaverðs og fækkun eininga. Mánaðarlaun lækkuðu því
aðeins að markmiði laganna yrði ekki náð með öðru móti.
Ákvörðunin gildir frá og með 1. október 2011.
Launalækkun afturkölluð
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Kjararáð ákvarðar laun ráðherra og hefur nú
ákveðið að draga til baka lækkun frá 1. janúar 2009.
Laun ráðherra og þing-
manna aftur eins og 2008
Forsætisnefnd
Alþingis hefur
ekki afgreitt
beiðni frá um-
hverfis- og sam-
göngunefnd
þingsins um að
Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands
verði fengin til
þess að vinna
óháða úttekt á
Vaðlaheiðargöngum. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, formaður umhverfis-
og samgöngunefndar Alþingis, stað-
festir þetta í samtali við Morg-
unblaðið.
Ríkisendurskoðun hafði áður ver-
ið beðin að taka að sér verkefnið en
embættið hafnaði því hins vegar í
síðasta mánuði, einkum á þeim for-
sendum að það væri ekki hlutverk
þess að gera það. Því var ákveðið að
óska eftir því að Hagfræðistofnun
tæki verkefnið að sér.
Beðið eftir ráðuneytinu
„Þetta hefur bara verið sett í bið
og málið saltað og verður vænt-
anlega ekki tekið aftur fyrir fyrr en
um miðjan janúar. Ég á ekki von á
að forsætisnefndin komi saman næst
fyrr en þá. Þannig að við erum bara í
biðstöðu og að bíða eftir því að fá
grænt ljós á þessa óháðu úttekt,“
segir Guðfríður.
Hún segist hafa fengið þær skýr-
ingar frá forsætisnefnd að beðið
væri eftir niðurstöðu um málið frá
fjármálaráðuneytinu sem sé furðu-
legt í ljósi þess að það hafi verið Al-
þingi sem sett hafi fyrirvara við það
og viljað fá fram svör við ákveðnum
spurningum. hjorturjg@mbl.is
Málið fast
í forsæt-
isnefnd
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Ekki fengist grænt
ljós á óháða úttekt
Kona var flutt meðvitundarlaus með
sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans
aðfaranótt fimmtudags eftir líkams-
árás. Lögreglu barst tilkynning um
árásina á fjórða tímanum um nóttina
og þegar komið var á vettvang var
konan meðvitundarlaus. Karl og
kona voru í kjölfarið handtekin í
Reykjavík grunuð um árásina, en
svo virðist sem þau hafi brotist inn á
heimili konunnar og gengið í skrokk
á henni. Árásarfólkið hefur áður
komið við sögu lögreglu. Málið er til
rannsóknar. Konan kom til meðvit-
undar á sjúkrahúsi en ekki fengust
nánari upplýsingar um líðan hennar.
Líkamsárás í
Hafnarfirði
Að vetrarlagi, þegar hálka er á veg-
um, eru slökkviliðsbílar Bruna-
varna á Austurlandi hafðir á keðj-
um þegar þeir eru inni í húsi. Ef
svo ólíklega vildi til að hálkulaust
væri þegar útkall bærist er einfalt
mál að kippa keðjunum undan.
„Hálkan hefur ekki mikið að segja
hjá okkur. Við erum búnir að búa
okkur undir hana og erum alveg
klárir,“ segir Baldur Pálsson
slökkviliðsstjóri. Hjá slökkviliðinu
séu hraðskreiðir forgangsbílar
sem búnir séu háþrýstidælum en í
kjölfar þeirra fylgi „þunga-
herdeildin“ sem fari um það bil
jafn hratt, hvort sem hún sé á
keðjum eða ekki.
Standa tilbúnir á keðjum
HÁLKAN Á EKKI AÐ HAMLA BJÖRGUNARSTÖRFUM
Á vetraræfingu á Seyðisfirði.