Morgunblaðið - 23.12.2011, Síða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
16 ára úr hópnum. Þeir fá nú gefins
sex vikna dansnám á næstu önn og
verða í þjálfun tvisvar til fjórum
sinnum í viku. Þá verður gert
myndband til að kynna danshópinn
og dansararnir munu einnig taka
þátt í sýningum. „Það er vissulega
dálítið erfitt að velja úr svona
stórum hópi en við sáum fljótt
hverjar báru af. Þær hafa allar ein-
hvern grunn í dansi en hafa nú
tækifæri til að læra street-dans frá
grunni,“ segir Brynja.
Ólíkir dansstílar
Þrjár ólíkir stílar street-dans
eru kenndir hjá Brynju, hipp-hopp,
dancehall og wacking. Hipp-hopp
og dancehall hefur Brynja kennt
frá árinu 2004 en í hipp-hopp læra
nemendur sporin sem hafa mótað
og þróað hipp-hopp stílinn frá ní-
unda áratugnum til dagsins í dag. Í
tímunum er dansað við lögin sem
sporin eru gerð við og einnig kennd
grunnatriði í Waving og Popping.
Dancehall-stíllinn byrjaði að
mótast á níunda áratugnum þegar
reggítónlist varð að meiri partí-
tónlist, m.a. vegna áhrifa hipp-
hopps frá Bandaríkjunum. Dance-
hall dregur nafn sitt af danshúsum
þar sem fólk hittist til að skemmta
sér og dansa saman. Söngkonurnar
Beyoncé og Rihanna hafa t.d. notað
dancehall-stílinn mikið og þaðan
kemur mikið af flottu mjaðmahreyf-
ingunum sem sjá má hjá þeim stöll-
um. Waacking hefur Brynja kennt
frá árinu 2009 en sá stíll á uppruna
sinn í gay-klúbbum vesturstrandar
Bandaríkjanna á áttunda áratugn-
um. Stíllinn varð til undir áhrifum
diskótónlistar en í honum er mikið
um dýnamískar handahreyfingar.
Ný námskeið hefjast hjá Brynju í
janúar.
Fylgst með Brynja valdi úr hópnum
ásamt öðrum danskennurum.
www.brynjapeturs.is
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Munið að slökkva
á kertunum
Skoðið ávallt leiðbeiningar
um rétta og örugga notkun
er fylgja kertum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Súkkulaðisæt tíska hljómar nú alls
ekkert illa. Nema kannski þegar
súkkulaðikórónan tekur að leka of-
an í augun á manni. Ágætt fyrir
munninn en frekar óhentugt fyrir
heildarútlitið. Þessi súkku-
laðiskrýddu listaverk, kannski
frekar en fatnað, gat að líta í
Shanghæ á dögunum. Tískusýn-
ingin var á vegum World Chocolate
Wonderland sem var opnað í síð-
ustu viku. Þar er meðal annars að
sjá kínverska leirherinn og kín-
verskan dreka gerða úr súkkulaði.
Sannkallað súkkulaðihimnaríki fyr-
ir súkkulaðiunnendur á öllum aldri.
Tíska
Reuters
Ljúffengt Það er þægilegt
að geta fengið sér mola af
kraganum eða kjólnum.
Súkku-
laðisætar á
pöllunum
Súkkulaðikóróna Frekar frumlegt.
Þá er aðeins einn dagur í að-
fangadag jóla og spennan magnast.
Víða um heim er haldið í ákveðnar
hefðir tengdar þessum degi. Sumar
haldast innan fjölskyldna og aðrar
eru landshefðir. Hér má sjá myndir
frá Santa Llucia-jólamarkaðnum í
miðborg Barcelona á Spáni.
Börnin hópast hér að sölubás þar
sem seldar eru leirfígúrur af ýms-
um þekktum persónum.
Hefðin segir að Katalóníubúar
feli heima fyrir svokallaða „cag-
aner“ eða eftirlíkingar af fjárhúsinu
í Nasaret. Vinum er síðan boðið í
heimsókn til að leita að fígúrunum
yfir hátíðarnar, en þær eru tákn
frjósemi og velgengni á komandi
ári.
Hafa börnin vafalaust haft ólíkar
skoðanir á því hvaða fígúru þau
vildu helst kaupa þessi jólin enda
var úr mörgum spennandi að velja.
Jólahefðir
Reuters
Fígúrur Þessi börn voru ólm að skoða í sölubásnum í Barcelona.
Fígúrur í felum
Darth Vader Fígúrurnar eru af ýms-
um toga eins og hér sést.