Morgunblaðið - 23.12.2011, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Í kjölfar efnahagshrunsins hefur
mikið verið fjallað um þann fjölda
fólks sem hefur þurft að sækja sér
mataraðstoð til hjálparsamtaka. Þar
hefur sá háttur verið hafður á að fólk
fær afhenta poka með mat og hefur
jafnvel þurft að standa í röð utan-
dyra eftir því að fá matinn.
Í vor gerði Hjálparstarf kirkjunn-
ar tilraun með að láta barnafjöl-
skyldur fá svonefnd inneignarkort í
stað matarpoka. Stóð tilraunin í sjö
mánuði og í kjölfarið var ákveðið að
skipta alfarið yfir í inneignarkortin í
byrjun nóvember.
Í meistararitgerð Katrínar Guð-
nýjar Alfreðsdóttur í félagsráðgjöf,
„Úr biðröð í búð: Breyttar áherslur í
matargjöfum hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar“, sem byggist á viðtölum
við 14 einstaklinga sem fengu slík
kort í ár, kemur meðal annars fram
að þeim fannst þeim líða betur með
sjálfa sig, vera sjálfstæðari og að-
stoðin væri mannlegri en þegar hún
var veitt í pokum. Bar viðmælend-
unum saman um að það væri niður-
lægjandi að þurfa að sækja matarað-
stoð og þurfa að standa í biðröðum
eftir matnum.
Maturinn nýtist ekki allur
Enginn viðmælandi í rannsókn
Katrínar hafði tekjur af launaðri
vinnu og allir nema einn höfðu tekjur
sínar af opinberum bótum. Leituðu
þau til Hjálparstarfs kirkjunnar þar
sem bæturnar duguðu ekki til að
borga alla reikninga og kaupa mat.
Fyrir utan smánina að þurfa að
bíða í röð eftir mat koma ýmsir aðrir
ókostir við hinar hefðbundnu matar-
gjafir í pokum fram í máli þessara
skjólstæðinga Hjálparstarfsins.
Sumum fannst það erfitt að láta
aðra velja fyrir sig mat og hann nýtt-
ist þeim jafnvel ekki allur af þeim
sökum. Bar fólkið því við að börn
þeirra vildu matinn ekki, einhver í
fjölskyldunni hefði ofnæmi fyrir hon-
um eða að það kynni hreinlega ekki
að matreiða hann. Því endaði hluti
matarins stundum í ruslinu eða þá að
hann var gefinn fólki í svipaðri neyð.
Þá reyndist mörgum erfitt að bera
pokana frá Hjálparstarfi kirkjunnar
og komast með þá heim til sín enda
eiga margir þeirra sem þurfa að leita
á náðir hjálparstofnana ekki bíl.
Kortið bætir þjónustuna
Helsti kosturinn við inneignar-
kortin að mati viðmælendanna er að
þau losa fólk undan þeirri niðurlæg-
ingu að sækja sér matarpoka í hjálp-
arstofnun. Þá nefna þeir að með
kortunum geti þeir skipulagt inn-
kaup sín betur og farið út í búð þegar
þeim hentaði og þörf væri á.
Afstaða fólksins til þess að þurfa
að koma með gögn um tekjur sínar
og gjöld til að sýna fram á þörf sína
fyrir aðstoð var jákvæð. Almenna
viðkvæðið var að það væri skiljanleg
ráðstöfun og að það sjálft hefði ekk-
ert að fela. Það væri jafnvel gott að
geta réttlætt að það þyrfti í raun og
veru á aðstoðinni að halda.
„Þetta er valdefling að fólk fari
sjálf út í búð og verði þátttakendur í
eigin lífi í staðinn fyrir að aðrir velji í
pokann fyrir það. Það veitir því
sjálfstraust og eflir að hafa eitthvað
um það að segja hvað það gerir,“
segir Katrín.
Með inneignarkortunum hafi fólk-
ið val um hvað það kaupi og hvað það
geri við peninginn. Það geti keypt
mat og fatnað en ekki áfengi.
„Aðalatriðið er að það sé borin
virðing fyrir þessu fólki. Þetta eru
þung og erfið spor og það býr við
mjög fjölþættan vanda,“ segir hún.
Kortin draga úr niðurlægingunni
Skjólstæðingar Hjálparstarfs kirkjunnar eru ánægðir með að fá inneignarkort í stað matarpoka
Rannsókn nema í félagsráðgjöf sýnir að þau gera fólk sjálfstæðara og láta því líða betur með sjálft sig
Morgunblaðið/Ernir
Matarúthlutun Biðraðir eins og þessi eftir matarpokum eru niðurlægjandi segja viðmælendur í rannsókn Katrínar.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
All our product are brand new
1. Complete accessories (Well packed and sealed in original Company box)
2. Unlocked / sim free.
3. Brand new (original manufacturer) box – no copies
4. All phones have english language as default
5. All material (software, manual) – car chargers – home chargers – usb
Data cables -holsters/belt clips – wireless headsets(bluetooth)
– leather and non-leather carrying cases - batteries.
Apple iPad:
Apple iPad Wi-Fi + 3G 64GB Tablet 450 Euros 350 POUND
Apple iPad Wi-Fi + 3G 32GB Tablet 400 Euros 320 POUND
Apple iPad Wi-Fi + 3G 16GB Tablet 350 Euros 270 POUND
Apple iPad Wi-Fi 64GB Tablet 300 Euros 230 POUND
Apple iPad Wi-Fi 32GB Tablet 250 Euros 180 POUND
Apple iPad Wi-Fi 16GB Tablet 200 Euros 150 POUND
Apple iPhone:
Apple iPhone 4S 64GB 700Euros 650 POUND
Apple iPhone 4S 32GB 600 Euros 520 POUND
Apple iPhone 4S 16GB 500 Euros 470 POUND
Apple iPhone 4G 32GB 450 Euros 350 POUND
Apple iPhone 4G 16GB 400 Euros 320 POUND
Apple iPhone 3GS 32GB 350 Euros 270 POUND
Apple iPhone 3GS 16GB 300 Euros 230 POUND
Apple iPhone 3G 16GB 250 Euros 180 POUND
Apple iPhone 3G 8GB 200 Euros 150 POUND
Nokia:
Nokia N8 450Euros 350 POUND
Nokia 5235 Comes With Music 400 Euros 320 POUND
Nokia 5330 Mobile TV Edition 350 Euros 270 POUND
Nokia 6788 200 Euros 150 POUND
Nokia N97 mini 250 Euros 180 POUND
HTC:
HTC Desire HD 450 Euros 350 POUND
HTC Evo 4G 400 Euros 320 POUND
HTC **** Nexus One 250 Euros 180 POUND
BlackBerry Phone:
Blackberry Torch Slider 9800 450 Euros 350 POUND
BlackBerry Bold 9700 400 Euros 320 POUND
BlackBerry Storm2 9520 350 Euros 270 POUND
Samsung:
Samsung Wave Pro 400 Euros 320 POUND
Samsung Galaxy i9000 350 Euros 270 POUND
Sony Ericsson:
Sony Ericsson XPERIA Pureness 400 Euros 320 POUND
APPLE IPODS:
Apple IPod 32GB Newest! 350 Euros 270 POUND
Apple iPod 30GB (Video) New! 250 Euros 180 POUND
XBOX GAMES:
Xbox 360 Platinum Bundle Console 250 Euros POUND
APPLE LAPTOPS:
Apple Macbook Air 800 Euros 670 POUND
Apple MacBook (MA700LL/A) Mac Notebook
700 Euros 570 POUND
WARRANTY
We give 1 year warranty for every product sold out to our costumers
FOR ENQUIRIES AND DETAILS CONTACT OUR EMAIL: mobileexchangeltd@hotmail.com
Immediate Purchase
EMAIL: mobileexchangeltd@hotmail.com
Yahoo Messenger Chat: moseschurch21
Skype: mobilephoneltd1
Immediate Purchase
Brand New Apple iPad Wi-Fi + 3G 64GB Tablet 450 Euros 350 POUND
Apple iPhone 4S GB 500 Euros 470 POUND
Buy 5 Get 1 MOBILE PHONE LIMITED.
We have in stock, the availability of the New /Latest phones ranging from? Specifically, we can
supply Mobile phones (GSM and CDMA), Video Games, Apple Ipods, Iphone, HTC, Laptops /
Notebook Digital, musical instrument, Cameras and Plasma Tvs.
Moreover, we also offer all kinds of international brand OEM/ODM service.
’
Það er mjög gott að fá kortin, ég á
svo bágt með að standa í röð, mér
finnst það svo niðurlægjandi og erfitt
líkamlega og að halda á öllum pokunum
heim. Það er svo niðurlægjandi að
standa og bíða eftir mat ásamt öðrum í
sömu sporum. Það er svo niðurlægj-
andi, eins og ég sé að sníkja.
Elísabet, öryrki og einstæð móðir
’
Maður upplifir ofboðslega skrýtna
tilfinningu, það er eitthvað svo nið-
urlægjandi. Það er nógu erfitt að koma
og fá aðstoðina en að labba út með
matarpoka sem búið er að skammta
þér í eitthvað ákveðið sem þú hefur
ekkert val með, þá. Þannig að hitt [inn-
eignarkortið] er bara lúxus, það gefur
manni svo smá sjálfstæði sko, maður
upplifir svona smá sjálfstæði þar, sko.
Ásdís, 39 ára öryrki og einstæð móðir.
’
Mér finnst að fá inneignarkortin, þá
ræður maður betur sjálfur hvað fer
ofan í matarpokann, þegar þeir voru
með mat í poka, þá var maður í þeirri
aðstöðu að maður þáði bara.
Helga, 31 árs einstæð móðir og öryrki.
’
Það skiptir miklu máli fyrir mig að
fá að kaupa það sem mig vantar, en
ekki bara tekið það sem mér er rétt, oft
of mikið brauð, ég vil fá smjör og ost.
Ég borða öðruvísi mat en þið Íslend-
ingar og börnin mín eru með ofnæmi.
Jóna, einstæð móðir af erlendum uppruna.
Orðrétt úr rann-
sókn Katrínar