Morgunblaðið - 23.12.2011, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 2011
Kvintettinn Brother Grasshefur verið duglegur viðþað á árinu að spila blá-gresistónlist víða um land,
en svo kallast tónlist sem upp runnin
er við rætur Appalachia-fjalla.
Þessi frumraun sveitarinnar er
notaleg plata, að hlusta á hana er eins
og að sitja við varðeld og hlusta á
góða félaga leika sér með þrautreynd
og slípuð þjóðlög eða lög úr smiðju
fremstu lagasmiða. Hængurinn er að
oft er verið að ráðast á garðinn þar
sem hann er hæstur og þannig verður
manni til að mynda hugsað til snilld-
arflutnings Gillian Welch og Daves
Rawlings á Acony Bell þar sem treg-
inn víkur fyrir vorinu og eins Burls
Ives þegar Big Rock Candy Mount-
ain hljómar.
Víst er það erfitt fyrir ungmenni
uppi á Íslandi að setja sig í spor flakk-
ara og syngja um örvæntingu og ör-
birgð og ekki heldur hægt að ætlast
til þess að þau þekki kynlífsþrælkun á
við þá sem sagt er frá í House of Ris-
ing Sun. Málið er bara að sú tónlist
sem Brother Grass glímir við er
sprottin af erfiðleikum og sorg og
gleðin er alltaf lituð trega og löngun.
Betur hefði farið á því að velja lögin
af meiri kostgæfni með tilliti til flytj-
enda. Að því sögðu þá komast þau
alla jafna prýðilega frá flutningnum,
söngraddirnar falla vel og ljúflega
saman og raddirnar eru mátulega
ólíkar til að skapa fjölbreytni í söngn-
um.
Erfiðleikar, sorg og gleði
lituð trega og löngun
Brother Grass – Brother Grass
bbmnn
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Ljósmynd/Nína Salvarar
Brother Grass Hildur Halldórsdóttir, Soffía Björg Óðinsdóttir, Örn Eldjárn
Kristjánsson, Ösp Eldjárn Kristjánsdóttir og Sandra Dögg Þorsteinsdóttir.
Hljómsveitin Sigur Rós sendi frá sér
fréttatilkynningu í gær þar sem hún
gerir upp árið. Það hefur verið
býsna annasamt og í haust kom INNI
út, tónleikamynd og -plata. Á vef
sveitarinnar má nú nálgast mynd-
bandsinnslag þar sem leikstjóri
myndarinnar Vincent Morriset, ræð-
ir um vinnu sína við myndina.
Sem nokkurs konar jóla- eða árs-
uppgjörsgjöf hangir lagið „Lúppu-
lagið“ nú inni á heimasíðu sveitar-
innar sem gjaldfrjálst niðurhal.
Lagið hljómar í enda áðurnefndrar
myndar.
Þá er tilkynnt samkeppni sem
tengist ljósnæma pappírnum eða
ljósmyndapappírnum sem fylgdi sér-
stakri viðhafnarútgáfu af INNI. Þeir
sem búa yfir slíku geta skapað lista-
verk úr pappírnum og sent það svo í
samkeppni sem lýkur 31. janúar
næstkomandi. Sigurverkið verður
notað sem hluti af listrænni hönnun
fyrir Sigur Rós á næsta ári og fær
sigurvegarinn auk þess 100.000
krónur í verðlaun.
Þess má geta að Sigur Rós gefur
út nýja plötu, jafnvel plötur á næsta
ári, og freistandi að álykta að þetta
ljósnæma listaverk muni tengjast
þeim á einhvern hátt.
Jónsi, forsöngvari sveitarinnar, er
þá sömuleiðis að ljúka farsælu ári en
hann átti tónlistina við nýjustu mynd
Cameron Crowe, We bought a Zoo,
en plata með henni kom út fyrir
stuttu.
Innlifun Jónsi, Jón Þór Birgisson, á sviði með Sigur Rós. Úr INNI myndinni.
Viðburðaríkt ár
hjá Sigur Rós
Kimi Records hefur átt giska far-
sælt ár eins og Sigur Rós hér að ofan
og fjöldi gæðaplatna hefur komið út
undir merkjum þessarar öflugu
óháðu útgáfu í ár. Kimi heldur nú úti
smávegis jólamarkaði í kjallara
Kjörgarðs (við verslun Kormáks og
Skjaldar) ásamt Útúrdúr, Ókei bók-
um, Framleiðslufélaginu Lo FI og
Kjartansson sem og alls kyns lista-
mönnum og snillingum eins og fram
kemur í tilkynningu. Ýmsar uppá-
komur verða á boðstólum og lista- og
innanbúðarmenn verða á staðnum.
Kimamaður Baldvin Esra er aðal-
maðurinn í óháða útgáfufélaginu
Kimi Records.
Kimadíll í
Kjörgarði
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HÖRKU
SPENNUMYND
ÍSLENSKT
TAL
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
GIRLWITHTHEDRAGONTATTOO Sýnd kl. 6:45 - 10
MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 2 - 4 - 6
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN 3D Sýnd kl. 2 - 4
BLITZ Sýnd kl. 10:30
RUM DIARY Sýnd kl. 8
ARTÚRBJARGARJÓLUNUM 3D Sýnd kl. 2 - 4
TOM CRUISE, SIMON PEGG,
PAULA PATTON OG JEREMY RENNER
Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
ÍSLENSKT
TAL
ÍSLENSKT
TAL
88/100
-CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL
HHH
HHH
AK. DV
- MAGNÚS MICHELSEN,
BÍÓFILMAN.IS
HHHH
- RAGNAR JÓNASSON,
KVIKMYNDIR.COM
HHHH
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Gleðileg jól
LITLU JÓLIN Í DAG - 600 KR. Á ALLAR MYNDIR
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr. 600
kr.
600 kr.
- Haukur Viðar Alfreðsson,
Fréttablaðið
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 4.45 - 8 - 9 16
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO LÚXUS KL. 4.45 - 8 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 - 5.50 - 8 L
MI – GHOST PROTOCOL KL. 6 - 8 - 10.50 16
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN 3D KL. 3.40 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 10.10 7
JÓLAMYNDIN 2011
H.S.S., MBL.H.V.A., FBL.
TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG
JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS!
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 5.10 - 8 - 10.50 16
ELÍAS KL. 6 12
MONEYBALL KL. 8 - 10.20 L
GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6 - 8 - 10 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 - 8 L
ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 5.50 L
JACK AND JILL KL. 10 L
ÆVINTÝRI TINNA KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI
í dag, Þorláksmessu
á allar myndir
allan daginn.
ll i
ll i .
Jólin byrja í Laugarásbíói
600 kr
Jólasveinninn verður á staðnum og gefur öllum nammipoka frá
Nóa Síríus og svala eða kók frá Vífilfelli á 2, 4 og 6 sýningum.*
*Nammipoki og drykkur fylgir öllum keyptum miðum á meðan húsrúm leyfir.
Tryggðu þér miða á eða í miðasölu Laugarásbíós.