Morgunblaðið - 17.01.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.01.2012, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012 Sudoku Frumstig 3 6 7 5 3 8 9 7 5 8 3 5 7 2 4 3 7 9 5 6 2 9 8 6 4 6 9 3 4 2 9 5 2 9 1 3 6 3 1 1 5 4 6 2 8 1 5 4 8 5 8 5 7 6 9 3 1 7 6 2 4 8 3 3 6 8 4 5 2 2 5 9 3 4 3 7 9 4 2 8 5 6 1 6 4 1 3 7 5 8 9 2 5 8 2 9 1 6 4 3 7 9 3 5 6 4 2 7 1 8 2 6 4 1 8 7 3 5 9 8 1 7 5 3 9 6 2 4 1 5 8 7 9 3 2 4 6 7 9 3 2 6 4 1 8 5 4 2 6 8 5 1 9 7 3 7 6 4 1 9 8 2 5 3 5 9 1 2 4 3 8 7 6 3 8 2 6 7 5 1 4 9 8 2 5 4 6 9 7 3 1 6 1 3 7 5 2 4 9 8 9 4 7 3 8 1 5 6 2 1 5 8 9 3 7 6 2 4 2 3 6 5 1 4 9 8 7 4 7 9 8 2 6 3 1 5 7 4 1 2 8 3 9 5 6 2 6 8 9 7 5 4 1 3 9 5 3 1 6 4 2 8 7 8 3 4 5 1 7 6 9 2 1 2 9 3 4 6 5 7 8 5 7 6 8 9 2 1 3 4 3 1 7 4 2 9 8 6 5 6 8 2 7 5 1 3 4 9 4 9 5 6 3 8 7 2 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 17. janúar, 17. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.) Nathan Dyer, Theo Walcott ogLeon Best voru allir meðal markaskorara í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu um helgina en þeir eiga það sameiginlegt að hafa allir hafið feril sinn hjá Southamp- ton. Dyer skoraði fyrir Swansea City, Walcott fyrir Arsenal og Best fyrir Newcastle. Þegar við bætum Gareth Bale, útherjanum spart- verska hjá Tottenham Hotspur, sem reyndar komst ekki á blað um helgina, og Alex Oxlade Chamberla- in, sem bankar nú þéttingsfast á dyr aðalliðs Arsenal, við þennan hóp sést glöggt að Dýrlingarnir búa að gríð- arlega öflugu unglingastarfi. Allir eru þessi piltar fæddir á árunum 1986-89, nema Chamberlain sem er fæddur árið 1993. x x x Það er ekki lítil blóðtaka fyrir fé-lag að missa slíka menn og í því ljósi er árangur Southampton á yfir- standandi leiktíð athyglisverður. Liðið kom upp úr C-deildinni í fyrra en hefur lengst af leitt B-deildina í vetur og situr nú á toppnum á hag- stæðari markamun en annað forn- frægt félag, West Ham United. Það er líklega kaldhæðni örlag- anna að í 3:0-sigri Southampton á Nottingham Forest á útivelli um helgina var aðeins einn uppalningur, miðvellingurinn sókndjarfi Adam Lallana, sem ólst upp með þeim hópi leikmanna sem rætt var um hér að ofan. Annar kom inn á, miðvellingur- inn Ben Reeves. En líklega gildir einu hvaðan gott kemur, alltént skili Southampton sér upp í úrvalsdeildina, þar sem liðið lék síðast árið 2005. Því fylgir þó alltaf ákveðinn sársauki fyrir stuðn- ingsmenn að liðið þeirra sé útung- unarstöð fyrir önnur félög. x x x Síðastur téðra South-unga til aðslá í gegn í úrvalsdeildinni er hinn agnarsmái Nathan Dyer en hann átti mjög góðan leik fyrir Swansea gegn Arsenal um helgina. Samkvæmt Wikipediu er hann að- eins 1.35 m á hæð. Það hlýtur að vera innsláttarvilla, Dyer losar örugglega 1.60. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 agn, 4 tannstæði, 7 blóm, 8 slagbrandurinn, 9 bragðvísan mann, 11 trassi, 13 karlfugl, 14 slá, 15 lipur, 17 skríls, 20 gruna, 22 að baki, 23 aumingja, 24 mannsnafn, 25 ákveð. Lóðrétt | 1 skinnpoka, 2 illska, 3 óhreinkar, 4 íþrótt, 5 saur, 6 landrimi, 10 gufa, 12 vond, 13 húð, 15 þrúga, 16 spilið, 18 vargur, 19 dáið, 20 ofnar, 21 nabbi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fannfergi, 8 tærar, 9 dynur, 10 róa, 11 lúlla, 13 reisn, 15 legil, 18 skáld, 21 oft, 22 áfátt, 23 arinn, 24 kinnungur. Lóðrétt: 2 apríl, 3 narra, 4 endar, 5 gengi, 6 stél, 7 grun, 12 lúi, 14 eik, 15 ljár, 16 grámi, 17 lotin, 18 stafn, 19 álitu, 20 dáni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is (1) Sveitakeppni með Rubens. S-Allir. Norður ♠D94 ♥53 ♦1032 ♣KG1086 Vestur Austur ♠G762 ♠K103 ♥K107 ♥D984 ♦9854 ♦G76 ♣43 ♣Á52 Suður ♠Á85 ♥ÁG62 ♦ÁKD ♣D97 Suður spilar 3G. Ekki fer mikið fyrir Jeff Rubens, rit- stjóra The Bridge World. Rubens er New-York búi, fæddist í borginni 1941, gekk þar í skóla og lærði stærðfærði, gerðist kennari og síðar prófessor við Pace-háskólann. Hann spilaði töluvert sem ungur maður, en hefur síðari árin helgað sig kennslu og skriftum. Rub- ens er höfundur að þrautaformi, sem byggist á því að koma lesandanum fyr- ir í miðjum sveitakeppnisleik. Hér er lesandinn í austur. Sagnir voru einfald- ar: opnun á 2G í suður og hækkun í þrjú. Makker kemur út með ♠2, fjórða hæsta, og sagnhafi lætur smátt í borði. Rubens: „Ekki setja tíuna! Þú munt auðvitað dúkka laufið tvisvar, en það kemur að litlu haldi ef þú lætur ♠10, því blindur á þá örugga innkomu á ♠D9. Nei – þú verður að láta þristinn duga í fyrsta slag.“ 17. janúar 1850 Skólasveinar hrópuðu að Sveinbirni Egilssyni rektor Lærða skólans: „Pereat“ (nið- ur með hann). Þeir voru að mótmæla skylduaðild að bind- indisfélagi. Í kjölfarið voru nokkrir nemendur reknir úr skólanum. 17. janúar 1914 Eimskipafélag Íslands hf. var stofnað í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík. Fundarmenn voru á fimmta hundrað. Fánar voru dregnir að hún um allan bæ- inn, frí var gefið í skólum og verslanir og skrifstofur lokað- ar. Fyrstu skip félagsins komu til landsins rúmu ári síðar. 17. janúar 1939 Fimmtíu útgerðarmenn komu saman og stofnuðu Lands- samband íslenskra útvegs- manna, LÍÚ, í því skyni að tryggja sameiginlega hags- muni. 17. janúar 1975 Þyrla í eigu Þyrluflugs hf. hrapaði á Kjalarnesi og sjö fórust. Hún var á leið frá Reykjavík til Snæfellsness. Þetta er mannskæðasta þyrlu- slys hérlendis. 17. janúar 2004 Frostvirkni, sýning Ólafs Elí- assonar, var opnuð í Hafnar- húsinu í Reykjavík. Í umsögn í Morgunblaðinu sagði: „Ólafur er Björk íslenskra myndlistar- manna.“ Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég ætla að reyna að eiga notalega og góða stund,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á Sauðárkróki og odd- viti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Skaga- fjarðar, en hann fagnar fertugsafmæli sínu í dag. Hann segir veisluhöld bíða betra tækifæris „enda þriðjudagar ekki góðir dagar fyrir slíka fögnuði“. Spurður nánar út í veisluna segist Stefán ekki enn hafa fundið réttu dagsetninguna en hún verði vel kunngjörð þeim sem fá boðskort. Árið 2012 er þó merkisár að öðru leyti fyrir Stefán því fimmtán ár eru frá því hann fyrst hóf störf fyrir lögregluna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan 1997 og hann meðal annars starfað í sérsveit ríkislögreglustjóra og við greiningardeild sama embættis. Árið 2008 sneri hann hins vegar aft- ur til Sauðárkróks sem yfirlögregluþjónn, þar sem hann hóf fyrst störf. Þá bauð Stefán sig fram og var kjörinn í sveitarstjórnarkosn- ingunum 2010, og er formaður byggðarráðs sveitarfélagsins Skaga- fjarðar. Þegar hann er spurður hvort hann stefni á landspólitíkina segist Stefán afar sáttur með stöðu sína í dag, en bætir við að ekki sé hægt að skjóta loku fyrir neitt í þeim efnum. andri@mbl.is Stefán Vagn Stefánsson fertugur í dag Veislan bíður betri tíma Nýirborgarar Akureyri Anna Björk Jónsdóttir og Elvar Daði Guðjónsson eignuðust dóttur 6. jan- úar kl. 9.55. Hún vó 15 merkur og var 53 cm löng. Flóðogfjara 17. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.06 3,4 6.22 1,1 12.32 3,2 18.50 1,1 10.52 16.25 Ísafjörður 0.22 0,5 6.39 1,9 13.05 0,5 19.02 1,7 11.22 16.04 Siglufjörður 2.31 0,4 8.50 1,1 15.13 0,2 21.39 1,1 11.06 15.46 Djúpivogur 1.47 1,6 8.04 0,6 13.59 1,4 20.03 0,4 10.27 15.48 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Fólk hlustar þegar þú talar, en í dag læturðu meira gott af þér leiða með því að hlusta. Læknaðu gömul sár með því að vera fyrstur til þess að fyrirgefa. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt ekki að lúffa fyrir öðrum með hluti sem þú hefur sterka trú á. Drífið í hlut- unum og hamrið járnið meðan það er heitt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er fyrirhyggja fólgin í því að láta nýtt fólk sanna sig áður en þú gerir upp hug þinn til þess. Afgreiðið málið strax og á heiðarlegan hátt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það þýðir lítið að stinga við fótum þegar allt er á fleygiferð í kringum þig. Not- aðu kvöldið fyrir sjálfan þig. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Gefðu þér tíma til að leysa málin áður en þau vaxa þér yfir höfuð. Þú munt eiga hreinskilnislegar samræður við vini þína og kunningja í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nú er tíminn til að viðra vandamál sem þú hefur lengi falið. Flas er ekki til fagn- aðar og það á við á öllum sviðum, hvað svo sem þér finnst málið lítilvægt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur ástæðu til að fylgjast vel með einhverjum sem er tortrygginn í þinn garð. Sá tími kemur að þú munt geta sagt hug þinn. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Láttu þér ekki detta í hug að þú getir ekki unnið þau verk sem þér hafa verið falin. Nú kemur sér vel að eiga góða sam- starfsmenn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Heiðraðu ímyndunarafl þitt með því að gefa því pláss, tíma og athygli. Ekki reyna að draga mat annarra í efa. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Mundu að fæstir hlutir eru sem þeir sýnast og að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Láttu það ekki slá þig út af laginu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Kona í fjölskyldunni leggur að þér að grípa til óvenjulegrar heilsubótar. Fólk freistast til þess að beita áróðri til að hafa áhrif á aðra. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ef þú átt lausa stund aflögu máttu vita, að þeir eru margir sem þurfa á aðstoð að halda. Gættu þess vandlega að enginn hlunnfari þig í viðskiptum. Stjörnuspá 1. e4 c5 2. Rc3 e6 3. f4 Re7 4. Rf3 d5 5. Bb5+ Rbc6 6. 0-0 a6 7. Bxc6+ bxc6 8. d3 Rg6 9. f5 exf5 10. exf5 Bxf5 11. Rg5 Be6 12. Rxe6 fxe6 13. Dg4 Dd7 14. Bg5 Bd6 15. Hae1 e5 16. Dh5 De6 17. Re2 Kd7 18. c3 h6 19. Bd2 Hhf8 20. h3 Hf6 21. b4 Haf8 22. Hxf6 Dxf6 23. Hb1 Kc7 24. Kh1 Rh4 25. bxc5 Bxc5 26. d4 Bd6 27. c4 Df2 28. Ba5+ Kc8 29. Dg4+ Rf5 30. cxd5 Staðan kom upp á Skákþingi Reykja- víkur, Kornax-mótinu, sem stendur yfir þessa dagana í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Vignir Vatnar Stefánsson (1.461), sem er á níunda ári, hafði svart gegn Stefáni Bergssyni (2.175). 30. … h5?? svartur hefði unnið eftir 30. … Dxe2! þar sem eftir 31. Dxe2 Rg3+ yrði hann manni yfir. 31. Dg6! hvítur stend- ur nú til vinnings. 31. … Rxd4 32. Dxd6 Rb5 33. Hxb5 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.